Læknablaðið - 01.02.2017, Blaðsíða 50
106 LÆKNAblaðið 2017/103
Löngu tímabært endurmat á félagsupp-
byggingu lækna og mótun stefnu um
endurskipulagningu hennar er framund-
an. Kerfið okkar er komið til ára sinna
svo ekki sé fastar að orði kveðið og flest-
um sem komið hafa að stjórnarstörfum
í einstökum félögum læknastéttarinnar
er ljóst að fyrirkomulagið er á margan
hátt bæði flókið og þunglamalegt. Þess
vegna er vonandi að læknar taki endur-
skoðunarferlinu ekki einungis fagnandi
heldur leggi sitt af mörkum með virkri
þátttöku.
Læknafélag Reykjavíkur (LR) var
stofnað af 9 læknum þann 18. október
1909 til þess að semja fyrir hönd lækna
við Sjúkrasamlag Reykjavíkur. Sú hefð
hefur haldist frá stofnun félagsins að
samningar sjálfstætt starfandi lækna séu
gerðir í nafni þess og sem stendur er í
gildi rammasamningur á milli einstakra
stofulækna við Sjúkratryggingar Íslands
fyrir milligöngu félagsins.
LR hóf útgáfu Læknablaðsins árið 1915.
Læknafélag Íslands (LÍ) var stofnað þann
14. janúar 1918 og 100 ára afmælið er því
framundan í byrjun næsta árs. LÍ sinnir
almennum hagsmunamálum lækna og
kjaramálum. Læknablaðið hefur verið gefið
út af LR og LÍ sameiginlega frá árinu 1955.
Eins og hjá öðrum svæðafélögum koma
tekjur LR sem ákveðin tíund af félags-
gjöldum sem greidd eru til LÍ. Tíundin
nemur 10% af félagsgjöldunum sem nú eru
110.000 krónur á ári. Auk þess greiða sjálf-
stætt starfandi sérfræðilæknar prósentu-
hlutfall af innkomu sinni í samningasjóð
sem er aðskilinn árgjaldinu í bókhaldi
félagsins. Sjóðnum er ætlað að standa
straum af öllum kostnaði sem félagið hef-
ur af hagsmunagæslu fyrir stofulækna.
Innan vébanda LÍ eru 9 svæðafélög
og er LR eðlilega langstærst. Að auki eru
nokkur fagfélög lækna aðilar að LÍ en það
eru Félag íslenskra heimilislækna, Félag
almennra lækna, Félag bráðalækna, og
loks Skurðlæknafélagið sem er auk þess
sjálfstætt stéttarfélag með eigin samn-
ingsrétt. Á aðalfundi LÍ árið 2014 var
samþykkt lagabreyting sem gerir félags-
mönnum þess kleift að vera í fleiri en einu
aðildarfélagi.
Undir lok síðasta árs tilkynntu 108
heimilislæknar að þeir hefðu flutt atkvæð-
isrétt sinn frá LR til Félags íslenskra heim-
ilislækna. Hið sama gerðu 27 bráðalæknar
en þeir fluttu sinn atkvæðisrétt til Félags
bráðalækna. Um 50 skurðlæknar fluttu
sinn atkvæðisrétt til Skurðlæknafélagsins
um leið og lögunum var breytt. Um þess-
ar mundir eru tæplega 840 félagsmenn
í LR en af þeim hafa einungis um 650
atkvæðisrétt til að velja fulltrúa á aðal-
fund LÍ. Ég tel augljóst að þessi breyting
sé til þess fallin að auka stéttarvitund
og efla samstöðu inni í fagfélögunum og
fylgja árgjöldum og atkvæðisrétti þessara
félagsmanna LR yfir í Félag íslenskra
heimilislækna og Félag bráðalækna góðar
óskir.
Um leið vekur þessi nýja staða LR upp
ýmsar spurningar. Velta þarf fyrir sér
hverja slíkt félag starfar fyrir og hvernig
eðlilegast sé að haga hagsmunagæslu fyrir
félagsmenn sem hvorki greiða árgjald til
félagsins né hafa atkvæðisrétt fyrir hönd
þess á aðalfundi LÍ. Er til dæmis eðlilegt
að slíkir félagsmenn sitji í stjórn LR?
Í öllum aðildarfélögum LÍ, og einnig
í því öfluga félagi, er kominn tími til að
spyrja áleitinna spurninga. Hver erum
við? Hvert stefnum við? Hvernig er best
að komast þangað? Þessum vangaveltum
verður ekki frestað. LR er staðráðið í að
leggja sitt af mörkum til þessarar krefjandi
stefnumótunarvinnu, verða áfram leiðandi
afl innan LÍ og standa sem fyrr vörð um
hagsmuni sérgreinalækna. Markmiðin
verða væntanlega þau sömu en verklagið
kann að breytast í takt við nýja tíma og
aðstæður. Það getur einungis verið af hinu
góða.
Undirritaðri hefur verið falin for-
ysta í þeirri nefnd sem LÍ hefur skipað
til að hafa umsjón með fyrrgreindri
stefnumótunarvinnu. Í afrakstri hennar
má ekki tjalda til einnar nætur. Við
þurfum að horfa raunsæjum augum
fram á veginn, hugsa í lausnum, bjóða
breytingar velkomnar og leggja okkur
fram við að útfæra þær með jákvæðum
huga. Grundvallarforsendan fyrir
því hugarfari er öflug þátttaka sem
allra flestra félagsmanna í vinnunni.
Niðurstaðan verður að taka mið af ólíkum
sjónarmiðum, sætta þau eins og frekast
er unnt og hafa á bak við sig traustan
meirihluta þess fjölbreytta hóps sem
skipar íslensku læknastéttina.
Tímabært endurmat
Arna
Guðmundsdóttir
innkirtlalæknir
formaður Læknafélags
Reykjavíkur
arnagu@landspitali.is
Læknafélag Reykjavíkur
Tíðni
munnþurrks
sambærileg við
lyfleysu1,2
Er munnþurrkur umkvörtunarefni
sjúklinga með ofvirka þvagblöðru?
Fyrsti ß3-örvinn við ofvirkri
þvagblöðru1,2
Hefur áhrif á öll aðaleinkenni
ofvirkrar þvagblöðru1,2
Tíðni munnþurrks sambærileg
við lyfleysu1,2
Opnaðu umræðu um
ofvirka þvagblöðru við
þína sjúklinga
BET-165760-IC
09.2016
Heimildir: 1. Khullar et al. European Urology 63;(2013):283–295. 2. Nitti et al. J Urol 2013;189:1388–1395
Læknastofur til leigu
Tvær læknastofur eru til útleigu í Læknastöð Vesturbæjar,
Melhaga 20-22, 107 Rvk.
Upplýsingar í síma 5628090 (Helga).