Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Síða 36
Konudagurinn 16. febrúar 2018KYNNINGARBLAÐ
Litríkir og fjölbreyttir
blómvendir á konudaginn
BjarkarBlóm
Verslunin Bjarkarblóm er staðsett við nýja innganginn í Smáralind og er í eigu Berg-
þóru Bjargar karlsdóttur en hún rekur
auk þess verslun með sama nafni í
Þorlákshöfn. Hjá Bjarkarblómum er
lögð mikil áhersla á framúrskarandi
úrval af ferskum blómum auk fjöl-
breyttrar gjafavöru þar sem íslensk
hönnun skipar stóran sess.
„rómantíkin ræður ríkjum hjá okkur
á konudaginn og hér er alltaf mikið
að gera á þessum degi sem á sér svo
ríka hefð á Íslandi,“ segir Bergþóra.
„Við höfum alltaf fjölbreyttara
úrval af blómvöndum á konudaginn.
rósirnar eru langvinsælastar en við
erum líka með mikið úrval af fallegum
blómvöndum sem við gerum dagana
á undan. Undirbúningur fyrir konu-
daginn er sannkölluð vertíð hjá okkur
blómaskreytum.“
Það er áralöng hefð fyrir því hjá
karlmönnum að færa sinni heittelsk-
uðu blóm á konudaginn og að sögn
Bergþóru er sá góði siður síst á
undanhaldi heldur virðist hann fremur
sækja í sig veðrið.
Verslanir Bjarkarblóma í Smáralind
og Þorlákshöfn eru opnar frá kl. 8 til
18 á konudaginn. Það er um að gera
að fullkomna konudaginn með því að
koma við í Bjarkarblómum og velja
litríkan og fallegan blómvönd handa
ástinni sinni. Segðu það með blóm-
um!
Sjá nánar á bjarkarblom.is.
Rómantískur konudagur
á Lækjarbrekku
Töluverðar áherslubreytingar hafa orðið á hinum gróna og rómaða veitingastað lækjar-
brekku frá því að nýir rekstraraðilar
tóku við staðnum, fyrir um ári. „Við
leggjum mikla áherslu á ferskt hráefni
og að vinna allt á staðnum. Við kaup-
um ekki tilbúna matvöru né berum
við slíkt á borð fyrir okkar gesti. Þá er
matreiðslan orðin öll nútímalegri og
tekur meira mið af nýjum straumum
og stefnum,“ segir Stefán Stefánsson,
framkvæmdastjóri lækjarbrekku.
Staðurinn nýtur mikilla vinsælda,
gestahópurinn er afar fjölbreyttur og
úrvalið af réttum er mikið með jafn-
mikilli áherslu á kjöt og fisk auk þess
sem vegan-réttir koma sterkir inn.
Það verður rómantísk stemning
næstkomandi sunnudagskvöld, á
sjálfum Valentínusardeginum, þar sem
mörg pör munu eiga ógleymanlega
stund. Til að fá örugglega borð borgar
sig að panta sem fyrst en bæði er
hægt að bóka borð í síma 551-4430
eða á vefsíðunni laekjarbrekka.is.
Sérstakur fjögurra rétta matseðill
verður í boði á konudeginum: Fyrsta
er nauta-carpaccio, síðan tekur við
reykt ýsa, réttur sem vakið hefur mikla
athygli og fengið frábærar viðtökur;
í þriðja rétt er val um steiktan þorsk
og lambafille og í eftirrétt er manjari-
súkkulaðimús með dökku súkkulaði,
jarðarberjum og skyrís.
Sjá nánar á laekjarbrekka.is.