Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Síða 40
Konudagurinn 16. febrúar 2018KYNNINGARBLAÐ
Gæðastund við þjóðveginn
Dalakofinn á laugum
Dalakofinn er veitingastaður og verslun, staðsettur við þjóðveg 1 í þéttbýliskjarnanum á laug-
um í Þingeyjarsveit. Í Dalakofanum er
opið allan ársins hring, nokkuð sem
ferðalangar, íslenskir sem erlendir,
kunna mjög vel að meta. Í Dalakof-
anum er lögð áhersla á góðan mat á
sanngjörnu verði og góða þjónustu.
að sögn Haraldar Bóassonar
veitingamanns er Dalakofinn vinsæll
allt árið um kring en þreföldun verður
á gestafjölda á sumrin: „Erlendir
ferðamenn eru í miklum meirihluta
yfir sumartímann, 70–80 prósent, en
á veturna rétt innan við helmingur.
fólk kann vel að meta að við höfum
opið hér til 20 á kvöldin á veturna
og til 22 á sumrin,“ segir Haraldur
en Dalakofinn er óneitanlega góður
áningarstaður á ferð um landið.
„Þetta er góður staður til að
stoppa og njóta veitinga. Það er
þægileg aðkoma hér og við erum á
milli mývatnssveitar og akureyrar.
Sundlaugin á laugum og íþrótta-
völlurinn eru mjög flott og þar eru
falleg svæði sem gaman er að ganga
um og njóta náttúrunnar.“ Dalakofinn
rekur tjaldstæði við laugavöll á
sumrin.
Heimagerðar pítsur skipa veg-
legan sess á matseðli Dalakofans.
„Pítsurnar standa upp úr, þær eru
heimagerðar, um helmingur af
matar sölunni. Við gerum þetta allt
frá grunni og fáum mikið hól fyrir það
en við gerum okkar pítsusósu sjálf. á
meðal annarra góðra rétta sem í boði
eru allt árið eru hamborgarar beint
frá býli, íslensk kjötsúpa og gratíner-
aður plokkfiskur. Bæði útlendingar og
Íslendingar eru afskaplega hrifnir af
því að komast í kjötsúpuna enda er
hún kraftmikið veganesti. Hráefnið í
fiskrétti og kjötrétti er að mestu leyti
úr héraði,“ segir Haraldur.
ágæt verslun með miklu vöruúrvali
er hluti af Dalakofanum sem margir
nýta sér: „fólk kann vel að meta
verslunina hjá okkur og ferðalangar
eru þakklátir fyrir að geta leita þang-
að því oft gleymist að kaupa eitthvað
áður en haldið er í ferðalag.“
Dalakofinn er klárlega staður til að
eiga notalega stund á ferðalögum
um landið. Nánari upplýsingar eru á
vefsíðunni dalakofinn.is.