Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Page 46
46 16. febrúar 2018
2012 fékk bandaríska hjúkrunarkonan Kimberly Clark Fowler lífstíðardóm án möguleika á reynslulausn. Frá janúar til apríl 2008 myrti hún fimm sjúklinga sinna með því að
gefa þeim bleikiefni í æð. Kimberly var handtekin 1. apríl 2008. Við réttarhöldin
yfir Kimberly sagði dóttir eins fórnarlamba hennar við hana:
„Ég vona að þú brennir í helvíti.“Sakamál
Þ
ann 28. júní, 1999, játaði
sjötug, bandarísk kona
sig seka um að hafa kæft
til bana átta barna sinna.
Konan, Marie Noe, framdi morðin
á nítján ára skeiði, frá 1949–1968.
Þess má geta að Marie hafði um
langt skeið glímt við andlega sjúk-
dóma sem höfðu verið greindir og
vandlega skrásettir.
Foreldrar Marie, sem fæddist
árið 1928, áttu slatta af börn-
um, en hjónabandið hafði ein-
kennst af miklum vandræðum.
Marie fékk skarlatssótt þegar hún
var fimm ára og seinna sagði hún
veikina hafa valdið námsörð-
ugleikum. Hún hætti ung að
árum í skóla og fór að vinna auk
þess sem hún sá um unga dóttur
eldri systur sinnar. Stúlkan, sem
fæddist þegar Marie var tólf ára,
var alin upp sem litla systir henn-
ar.
Tíu börn
Marie kynntist Arthur Noe í
einkaklúbbi í West Kensington í
norðurhluta Philadelphiu í Penn-
sylvaniu-fylki í Bandaríkjunum.
Eftir stutt tilhugalíf ákváðu þau að
stinga af. Þau gengu síðar í hjóna-
band og eignuðust tíu börn sem
öll dóu innan fjórtán mánaða
aldurs. Eitt barnanna dó fimm
daga gamalt.
Öll þau átta börn sem um
ræddi höfðu fæðst heilbrigðið
uppmálað og þroskast með eðli-
legum hætti og þegar þau dóu var
skuldinni skellt á vöggudauða.
Marie kom hvergi nærri dauða
tveggja barna; Letitiu, sem var
andvana fædd, og Theresu, sem
dó á sjúkrahúsi skömmu eftir
fæðingu.
Bók og tímaritsgrein
Lögreglan í Philadelphiu fékk
áhuga á málinu í mars 1998.
Þannig var mál með vexti að
árið 1997 kom út bók, The Death
of Innocents, þar sem höfund-
leyndardómur liðins tíma
Marie Noe játaði sig seka um um manndráp „Þau gengu síðar í hjónaband og
eignuðust tíu börn sem öll dóu
innan fjórtán mánaða aldurs
J
ack Unterweger var Austurríkis-
maður, nánar tiltekið upp-
runninn í Styriu, héraði í suð-
austurhluta Austurríkis. Jack
var óskilgetinn, sonur bandarísks
hermanns og austurrískrar vændis-
konu. Hann fæddist 1951 og ólst
upp innan um hórur og melludólga.
Lundarfar Jacks var ofsafengið og
níu ára að aldri var honum trúandi
til alls. Sextán ára var hann hand-
tekinn í fyrsta sinn eftir að hann
gekk í skrokk á vændiskonu.
Lífstíðardómur
Næstu níu árin fékk hann 16
dóma, aðallega fyrir kynferðis-
ofbeldi gagnvart konum. Allt í allt
var hann í tólf mánuði á bak við lás
og slá á þeim tíma.
Eftir skammvinnt frelsi árið
1976 var Jack ákærður fyrir morð.
Þá hafði hann barið vændiskonu
með járnröri og síðan kyrkt hana
með brjóstahaldara hennar.
Um morðið hafði hann þetta að
segja: „Ég sá móður mína fyrir mér
og ég drap hana.“
Nú, Jack fékk lífstíðardóm fyrir
vikið og notaði tíma til skrifa og
gaf sig út fyrir að vera höfundur
„mikil vægra“ bókmennta.
Geislar frægðar
Jack skrifaði ljóð, leikrit, smásög-
ur og meira að segja sjálfsævisögu.
Fyrir vikið varð hann þekktur í
ákveðnum kreðsum austurríska
listasamfélagsins.
Mikilsmetnir Austurríkismenn
biðluðu til yfirvalda um að veita
Jack frelsi og hann fékk reynslu-
lausn 23. maí, 1990, sem „endur-
hæfður“ maður. Í viðtölum við
fjölmiðla sagði hann að fyrra líf
hans væri að baki: „Vindum okkur
í það nýja.“
Það gerði Jack svikalaust.
Hann kom fram í spjallþáttum
og varð nánast ómissandi í hana-
stélshófum. Þessu lífi fylgdi fé og
merkjafatnaður og dýrir bílar ein-
kenndu lífsstíl Jacks auk þess sem
hann nældi sér í unga, ljóshærða
kærustu.
Efnisöflun í Los Angeles
Þetta var þó einungis hið sýnilega
yfirborð. Undir glysinu og frægð-
inni var allt annar Jack á kreiki, eins
og síðar átti eftir að koma í ljós.
Um mitt ár 1991 bauðst Jack að
túra, eins og sagt er, þegar austur-
rískt tímarit fékk hann til að fjalla
um glæpi í Los Angeles. Jack skaust
með hraði til Bandaríkjanna með
kærustuna sér við hlið. Í Los Ang-
eles fékk hann að rúnta um með
lögreglunni í efnisöflun. Hann
skrifaði nokkrar greinar og beindi
sjónum sínum einkum og sér í lagi
að vændiskonunum í Hollywood
og ekki að ástæðulausu.
Morð á morð ofan
Skyndilega fóru að hrannast upp
lík í Los Angeles. Fyrsta líkið var
af 35 ára konu, Shannon Exley,
og fannst það 20. júní í Boyle
Heights. Tíu dögum síðar fannst
lík Irene Rodriquez, 33 ára, í sama
hverfi, og 10. júlí fannst lík 26
ára konu, Peggy Booth, í Malibu
Canyon.
Allar höfðu konurnar verið
vændiskonur. Þær höfðu verið
barðar hrottalega áður en þær
voru kyrktar með brjóstahöldur-
unum sínum.
Þegar Interpol loks, í febrúar
1992, hnaut um líkindin
með morðunum í Los
Angeles og morðinu
sem Jack hafði framið
löngu fyrr, var hann
kominn heim til
Austurríkis.
Ergir lögregluna
Austurríska lög-
reglan beið ekki boð-
anna og réðst inn í íbúð
Jacks í Vín en greip í tómt.
Jack Unterweger hafði lagt land
undir fót ásamt ungri ástkonu
sinni, og á ferðalaginu ferðuð-
ust skötuhjúin gegnum Sviss og
Frakkland og einnig fóru þau til
Kanada og enduðu í Bandaríkjun-
um.
Á ferðalaginu hringdi Jack iðu-
lega í austurríska fjölmiðla og lýsti
jöfnum höndum yfir sakleysi sínu og
sendi lögreglunni ergjandi skilaboð.
Að lokum var Jack gripinn á
Flórída.
Framseldur
Jack var ákærður fyrir að hafa myrt
11 vændiskonur síðan hann varð
frír maður; sex morð í Austur-
ríki, þrjú í Los Angeles og tvö í
Tékkóslóvakíu sem var og hét.
Tékkar sóttust ekki eftir að fá
hann framseldan, en Austurríki
og Bandaríkin deildu um lög-
sögu. Þegar Austurríkismenn
samþykktu að sækja Jack til saka
fyrir öll ellefu morðin náðist
samkomulag og Jack var framseld-
ur til Austurríkis.
Réttarhöld yfir Jack hófust ekki
fyrr en í apríl 1994 og
þegar upp var staðið,
28. júní, var Jack sak-
felldur fyrir níu morð
en sýknaður af tveim-
ur. Jack Unterweger
fékk lífstíðardóm, en sá
hlær best sem síðast
hlær því daginn eft-
ir fannst hann látinn í
klefa sínum. Hann hafði hengt
sig í reiminni sem hugsuð var til
að halda joggingbuxum hans upp.
Þannig fór nú það. n
Vændiskvenna-
morðinginn í Vín
n morðinginn Jack unterweger naut skammvinnrar frægðar n nýtti frelsið til ódæðisverka„Ég sá
móður
mína fyrir mér
og ég drap hana
Ljúfa lífið Í kjölfar
reynslulausnar baðaði
Jack sig í frægðarsól.