Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Síða 47
sakamál 4716. febrúar 2018
U
m hálf sex leytið mánu-
daginn 15. ágúst 1977
voru eldri hjón á ferðinni
skammt frá Elliðavatni.
Þannig var mál með vexti að þau
dvöldust gjarna við vatnið um
sumur og fátt sem gaf til kynna að
þessi dagur yrði öðruvísi en aðrir.
Sú varð þó raunin.
Ekki allt með felldu
Hjónin óku fram á kyrrstæða,
ljósbláa Peugeot-bifreið sem lagt
hafði verið gegnt akstursstefnu við
afleggjarann að Rauðhólum. Var
bifreiðin með sænskt skrásetn-
ingarnúmer.
Við nánari athugun varð hjón-
unum strax ljóst að ekki var allt
með felldu. Undir stýri sat ungur
maður, Einar Hjörtur Gústafsson,
og var verulega af honum dregið. Í
sætinu við hliðina var ung kona og
litlum vafa undirorpið að hún var
látin. Var þar um að ræða Halldóru
Ástvaldsdóttur, unnustu Einars.
„Ég skaut mig“
Skömmu síðar kom þar að Reynir
Sveinsson, bóndi á Elliðavatni, og
var fjórtán ára dóttir hans með í
för. Þegar feðginin komu að bif-
reiðinni stundi Einar Hjörtur: „Ég
skaut mig.“
Nánast í sömu andrá bar þar
að þriðja bílinn og sendi Reynir
bílstjórann tafarlaust af stað til að
gera lögreglu viðvart. Hófst Reyn-
ir síðan handa við að stöðva blæð-
inguna, en Einar Hjörtur hafði
skorið á slagæðar á báðum úlnlið-
um með rakvélarblaði.
Haskaði Reynir sér síðan heim
að Elliðavatni, hringdi í lögregluna
og ítrekaði hjálparbeiðnina.
Með .22 kalíbera riffil
Þegar lögreglan kom á vettvang var
Einar með .22 kalíbera rússneskan
riffill, með sex skota magasíni, í
höndunum. Hann veitti þó ekkert
viðnám og var opinskár um það
sem gerst hafði. Lík Halldóru var
flutt á brott og Einari Hirti komið
undir læknishendur.
Ekki var unnt að yfirheyra Ein-
ar frekar enda illa haldinn á hvort
tveggja líkama og sál. Þó lá fyrir
að hann hafði skotið unnustu sína
nokkrum skotum í háls og höfuð.
Síðan reyndi hann að svipta sig lífi
með skoti í hjartað. Hann hæfði
ekki og kúlan fór í gegnum líkama
hans. Greip Einar þá til þess ráðs
að skera á slagæðar í úlnliðum,
eins og fyrr segir.
Í stuttu fríi
Um Einar Hjört og Halldóru var
það vitað að þau voru 22 ára og
höfðu verið búsett í Nyköping í Sví-
þjóð í tæpt ár. Þau höfðu komið til
landsins með Smyrli þremur dög-
um áður og hugðust halda heim til
Nyköping einhvern næstu daga.
Þegar unnt var að yfirheyra
Einar Hjört sagði hann að ástæða
þess að hann réð unnustu sinni
bana hefði verið einhvers kon-
ar uppgjör, án þess þó að
fara nánar út í þá sálma.
Tvö skot í höfuð og eitt í háls
Að hans sögn höfðu þau ekið út
á vegarkafla ekki langt frá Norð-
lingabraut. Þar hafði hann stig-
ið út úr bílnum og tekið sér riffil í
hönd. Síðan skaut hann Halldóru
inn um opnar dyrnar. Hann skaut
nokkrum skotum og hæfðu þrjú
skot Halldóru; tvö í höfuðið og eitt
fór í gegnum hálsinn.
Síðan settist Einar í bíl-
stjórasætið og breiddi teppi yfir
lík Halldóru. Sem fyrr segir reyndi
hann að svipta sig lífi og sagð-
ist hann hafa ekið inn í Rauðhóla
með það fyrir augum að láta sér
blæða þar út.
Einar var síðar dæmdur til 16
ára fangelsisvistar, en dómurinn
síðan mildaður í 14 ár. Hann
lést 1979, skömmu eftir
að dómur í máli hans
féll. n
ur fjallaði um mál Wanetu Hoyt,
bandarískrar konu sem sakfelld
var fyrir að hafa myrt öll sín börn,
fimm talsins.
Um ári síðar birtist grein eft-
ir rannsóknarblaðamann í
tímaritinu Philadelphia og hafði
hann grafist fyrir um svipuð mál.
Umræddur blaðamaður lét lög-
regluna fá niðurstöður sínar og
boltinn fór að rúlla.
Játaði undanbragðalaust
Í sjálfu sér var ekki um flókna
rannsókn að ræða af hálfu lög-
reglunnar. Eftir að hafa kynnt
sér það efni sem hun hafði undir
höndum var Marie kölluð til við-
tals, þá sjötug að aldri.
Vafningalaust viðurkenndi
Marie að hafa kæft fjögur barna
sinna. Hún fullyrti að hún myndi
ekki hvort örlög fjögurra annarra
hafi borið að höndum með sama
hætti.
Marie var ákærð fyrir morð í
ágúst 1998 og náðist samkomu-
lag í því. Það fól í sér að Marie ját-
aði sig seka um manndráp varð-
andi átta barnanna og féll dómur
í málinu í júní 1999.
Stofufangelsi og geðrannsókn
Marie Noe naut greinilega skiln-
ings því dómurinn hljóðaði upp
á skilorðsbundinn 20 ára dóm, þó
ætti hún að afplána fimm fyrstu
árin í stofufangelsi.
Enn fremur var eitt skilyrðanna
að Marie samþykkti að undir-
gangast geðrannsókn í von um
að hægt yrði að varpa ljósi á hvað
hefði valdið því að hún svipti
börn sín lífi. Eigin-
maður Marie var
aldrei grunaður um
nokkuð misjafnt.
Í september árið
2001 voru lögð
fram dómskjöl
þar sem fram
kom að Marie
Noe þjáðist af
persónuleika-
röskun. n
leyndardómUr liðins tí a Marie Noe Dómur Noe var til þess að gera vægur.
Blóðugt
Hvaða mál Einar hugðist gera upp er enn á huldu
„Þó lá
fyrir að
hann hafði
skotið unnustu
sína nokkrum
skotum í háls
og höfuð
Á vettvangi Lögregla rannsakar
bifreið Einars og Halldóru.
uppgjör