Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Blaðsíða 53
16. febrúar 2018 53
Þegar náminu lauk, í desember
2001, ákvað Snorri að flytja ekki
heim á klakann heldur láta á það
reyna að búa og starfa í New York.
Hann var líka kominn með auga-
stað á stelpu sem hann kynntist
á stefnumótasíðu á netinu og var
mjög spenntur að hitta að loknu
jólafríi á Íslandi.
Þau mæltu sér mót á götuhorni
á Manhattan og fóru þaðan á
veitingastað en Snorri segir að þarna
hafi hann upplifað ást við fyrstu sýn.
Sú heppna heitir Lydia Holt og er
sagnfræðingur og rithöfundur af
afrísk-amerískum uppruna, fædd
og uppalin í Texas. Þau Snorri hafa
nú verið gift í rúman áratug og eiga
tvo syni, þá Andra Luke og Nicholas
Jaka.
Dagurinn sem Trump tók við embætti
verri en 11. september
Hann segist lítið hafa fundið
fyrir fordómum í garð þeirra hjóna
sérstaklega en engu að síður hafi
það komið honum mjög á óvart
hversu mikið kynþáttahatur sé enn
ríkjandi í Bandaríkjunum.
„Á yfirborðinu eru allir vinir
í New York þótt fólk sé af ólíkum
uppruna en við það að búa þarna
í nokkra mánuði byrjar maður að
sjá í gegnum þessa falsmynd. Öll
lægst launuðu störfin í þjóðfélaginu
eru unnin af svörtum Bandaríkja-
mönnum, meira að segja innflytj-
endur, sama af hvaða uppruna
þeir eru, fá betri tækifæri en
blökkumenn. Það var mikið áfall
að átta sig á þessu og þess vegna
finnst mér svo merkilegt hvað er
að gerast núna. Black Lives Matter
og MeToo eru á vissan hátt hluti af
sömu byltingunni, það er að segja
hópar sem hafa verið undirokaðir
og beittir misrétti árum saman sem
rísa nú upp gegn hvíta karlmann-
inum, feðraveldinu, sem berst þó
um á hæl og hnakka,“ segir hann.
Hann segir stemninguna í New
York hafa breyst gríðarlega eftir að
Trump var kjörinn forseti. Daginn
eftir að Obama tók við völdum hafi
birt yfir öllu og fólk horfði bjartsýnt
fram á veginn en um leið og Trump
tók við embætti hafi svartnættið
hellst yfir.
„Þótt ótrúlegt megi virðast eru
flestir íbúar New York sammála
um að 7. nóvember 2017, dagurinn
sem Trump tók við embætti, hafi
verið verri en 11. september. Eftir
árásirnar fundum við samkennd,
samstöðu og styrk hvert í öðru en
þegar Trump tók við myndaðist
sundrung og vonleysi helltist yfir.
Vinahópar splundruðust af því
einhver í hópnum gaf Trump at-
kvæði sitt. Þetta varð persónulegt.
Samkynhneigðir, svartir, konur
… bara allir sem ekki tilheyrðu
einhverjum forréttindahópum
tóku því sem persónulegri árás að
vinir skyldu kjósa Trump. Það var
verið að kjósa gegn þeim og með
kvenfyrirlitningu og kynþáttahatri.
Margir kjósenda hans létu sem
ástæðan væri önnur, en undir niðri
vita allir um hvað valið snerist og
það var óhugnanlegt að sjá þetta
koma svona upp á yfirborðið.“
Með hornskrifstofu á hæð
63 í Empire State-byggingunni
Snorri átti mjög farsælan starfsferil í
þau sextán ár sem hann bjó í heims-
borginni. Fyrsta „alvöru“ starfið
hans var hjá hip-hop fatamerkinu
FUBU og fyrsta skrifstofan, –
hornskrifstofa á 63. hæð í Empire
State-byggingunni. Þar vann hann í
fjögur ár sem listrænn stjórnandi og
fórst það vel úr hendi.
„FUBU, sem þýðir For Us By US,
var stofnað af fjórum svörtum strák-
um sem byrjuðu á að selja húfur upp
úr skottinu á bílnum sínum. Svo fóru
þeir að selja fleiri flíkur í svona hálf-
gerðum sjoppum sem eru við flestar
lestarstöðvarnar en það er yfirleitt í
þessum búðum sem „trendin“ verða
til í New York. Þetta sprakk svo alveg
út og á ótrúlega skömmum tíma
urðu þeir að heimsveldi sem velti
fleiri milljörðum á ári.“
Eftir að hann sagði skilið við
FUBU vann hann á auglýsinga-
stofu um skeið en daginn sem
eldri sonurinn kom í heiminn
gerði hann það sem allir ráðlögðu
honum að gera ekki – sagði upp
vinnunni og fór að vinna sjálfstætt.
Það tókst þó vonum framar en í
tólf ár starfaði hann sem auglýs-
ingaleikstjóri og ljósmyndari um
allan heim. Hápunktur ferilsins
var Superbowl-auglýsing fyrir
tölvurisann Dell, en ásamt þáver-
andi samstarfsfélaga sínum, Eiði
Snorra Eysteinssyni, starfaði Snorri
fyrir Nokia, Benz og fleiri stórfyrir-
tæki með stórstjörnum á borð við
Tom Brady, Dennis Hopper og Eric
Roberts og fleirum.
„Þetta var rosalega góður tími
en svo skildi leiðir okkar Eiðs árið
2013. Hann flutti til Los Angeles og
ég hélt áfram að vinna við aug-
lýsingar og kvikmyndagerð í New
York og víðar. Síðasta verkefnið
mitt var að leikstýra skemmtilegri
gamanmynd sem heitir Love in
Kilnerry. Hún segir frá litlum
bæ þar sem íbúarnir, flestir eldri
borgarar, verða skyndilega gripnir
miklum losta með tilheyrandi
gleði fyrir suma og sálarstríði fyrir
aðra,“ segir hann og brosir kíminn.
Þetta hljómar eins og það hafi
verið talsvert stuð á þér í stór-
borginni. Hvað réð úrslitum um þá
ákvörðun að flytja aftur til Íslands?
„Það var sitt lítið af hverju. Til
dæmis hafa stjórnmálin haft mjög
leiðinleg áhrif á stemninguna í New
York og svo vorum við að hugsa um
strákana okkar. Ef þeir áttu að öðlast
íslenska sjálfsmynd þá var þetta svolítið
svona „now or never“. Nú stunda þeir
nám við Austurbæjarskóla og líkar
mjög vel enda eru margir krakkar
þar sem hafa ekki íslensku sem fyrsta
tungumál og komin ákveðin reynsla
hjá kennurunum. Svo kunnum við
öll vel að meta frelsið hérna. Þegar
við fjölskyldan lentum þá fundum
við strax að það þurfti ekki einu sinni
að ræða það. Við þurftum ekkert að
setjast niður og útskýra reglurnar á
Íslandi fyrir þeim. Ef þá langar að
fara eitthvert út að leika sér þá þarf
maður ekki að stressa sig á því. Hér
er mikið öryggi. Í Bandaríkjunum líta
foreldrar ekki af börnunum sínum og
sér í lagi ekki í stórborgunum. Ísland
er sem betur fer ekki þannig og verður
það vonandi aldrei,“ segir Snorri að
lokum.
„Black Lives
Matter og
MeToo eru á vissan
hátt hluti af sömu
byltingunni, það
er að segja hópar
sem hafa verið
undir okaðir og
beittir misrétti árum
saman sem rísa
nú upp gegn hvíta
karlmanninum.
Ottó Og nashyrningarnir Strákarnir ungir að árum. Hljómsveitin var
stofnuð í Menntaskólanum við Sund.
Á hOrninu þar sem þau
hittust fyrst Snorri, Lydia
og synirnir Andri og Nicholas
á örlagahorninu á Manhattan í
New York. Mynd Snorri SturluSon
fuBu Snorri starfaði sem listrænn
stjórnandi hjá fatamerkinu FUBU í fjögur
ár og var með hornskrifstofu á 63. hæð
í Empire State-byggingunnni.
LOstafuLLir
eLdri BOrgarar
„Síðasta verkefnið
mitt var að leikstýra
skemmtilegri gaman-
mynd sem heitir Love
in Kilnerry. Hún segir
frá litlum bæ þar
sem íbúarnir, flestir
eldri borgarar, verða
skyndilega gripnir
miklum losta með
tilheyrandi gleði fyrir
suma og sálarstríði
fyrir aðra.“
Mynd Snorri SturluSon