Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Qupperneq 66
66 lífsstíll 16. febrúar 2018
Gefur egg í
annað sinn
Ninna Karla Katrínardóttir
er um þessar mundir að gefa
egg í annað skiptið. Hún er
hvergi af baki dottin og seg
ist ætla að halda áfram að
gefa þar til hún má það ekki
lengur. „Í fyrsta skiptið sem
ég gaf egg þá bað vinkona
mín mig um að gefa sér það.
Ég hafði ætlað að gera þetta
heillengi en aldrei gert neitt
í því og dreif því loksins í því.
Núna er ég að gefa í annað
skipti og ég gef vegna þess
að það er löng bið eftir eggj
um og mig langar að hjálpa
fólki að láta drauma sína
um barneignir rætast,“ seg
ir Ninna í viðtali við Bleikt.
Sjálf á hún tvær fullkomn
ar dætur og telur ólíklegt
að hún muni sjálf eignast
fleiri börn. „Ég lít þannig
á þetta að ég á fjölda eggja
sem ég hef engin not fyrir,
ég er búin að eignast börn
og ætla mjög líklega ekki
að eiga fleiri svo ég vil að
aðrir geti upplifað þetta dá
samlega hlutverk sem er að
verða foreldri,“ segir Ninna.
Hún leyfir áhugasömum að
fylgjast með meðferðinni
á Snapchat undir not
andanafninu: ninnakarla.
Í ofbeldis-
sambandi í
sex ár
Ósk Arn
þórsdóttir
var aðeins
15 ára göm
ul þegar hún
hóf samband
með manni
sem var sjö árum eldri en hún.
Fljótlega fór að bera á því að
ekki væri allt með feldu og átti
hann eftir að beita hana and
legu og líkamlegu ofbeldi allt
þeirra samband. „Hann byrj
aði á því að beita mig andlegu
ofbeldi þegar við vorum búin
að vera saman í kannski tvo
mánuði. Hann sagði við mig að
ég væri heppin að hann vildi
vera með mér því engin ann
ar myndi líta við mér,“ segir
Ósk sem deilir reynslu sinni til
að vekja athygli á átaki Stíga
móta sem ber heitið Sjúk ást.
Fljótlega mátti Ósk ekki hitta
karlkyns vini sína og í kjölfar
ið taldi hann henni trú um að
stelpurnar hefðu slæm áhrif á
hana.
„Hann kom því inn í haus
inn á mér að fjölskylda mín
væri vond við mig og vildi ekk
ert með mig hafa. Ég fór því að
loka mig meira af og tala minna
við vini og fjölskyldu,“ segir hún.
Líkamlegt ofbeldi fylgdi í kjöl
farið. „Ef hann fékk ekki það
sem hann vildi, þá tók hann
það með afli. Ég man sérstak
lega eftir því þegar hann tók mig
hálstaki og kreisti eins fast og
hann gat,“ segir Ósk sem komst
úr sambandinu með hjálp fjöl
skyldu og vina eftir sex ár. Hún
hvetur alla sem eru í sömu
stöðu til þess að leita sér hjálpar.
Sítrónukjúklingur
að hætti Bjargeyjar
Uppskrift:
n Kjúklingalæri og leggir
n 2–3 sítrónur Ferskt timjan
n Góð ólífuolía
n 3 hvítlauksrif
n Kjúklingakrydd
n Sjávarsalt
Aðferð:
Setjið kjúklinginn í stóra skál og kreistið
eina sítrónu yfir. Kryddið með kjúklinga-
kryddi, sjávarsalti og vel af ólífuolíu. Leyfið
kjúklingnum að marínerast og setjið hann
svo í eldfast mót. Setjið timjan-greinar
og niðurskornar sítrónusneiðar yfir ásamt
hvítlauknum. Eldið í ofni í um 30 mínútur við
190 gráðu hita.
Berið fram með sætum kartöflum, fersku
salati og þessari dásamlegu Dijon-
dressingu.
Dijon-dressing
n 1 dós sýrður rjómi
n 2 tsk. Dijon-sinnep
n 1 msk. hlynsíróp
n Örlítill sítrónusafi
n Salt og pipar
Hægt er að nálgast fleiri góðar uppskriftir á
síðu Bjargeyjar, bjargeyogco.com
E
va Dögg Guðmundsdóttir
og eiginmaður hennar hafa
reynt að eignast barn í sex
ár án árangurs. Eva hefur
þrisvar sinnum orðið ólétt en hef
ur í öll skiptin misst fóstur og hef
ur það tekið gríðarlega á þau. Einn
fallegan morgun árið 2015 vaknaði
Eva og varð ljóst að hana langaði
til þess að ættleiða barn og eru þau
hjónin í því ferli núna.
„Ég er með endómetríósu og
pcos, polycystic ovary syndrome,
og hef þurft að fara í eina að
gerð vegna þess. Við höfum reynt
að eignast barn í sex ár og hef ég
meðal annars farið á frjósemislyf
en ekkert hefur gengið,“ segir Eva
og bætir því við að hún hafi alltaf
elskað börn og eytt miklum tíma
með þeim um ævina.
„Ég passaði mikið þegar ég var
í framhaldsskóla og hef einnig
unnið sem leiðbeinandi barna í
þriðja bekk.“
Eva bar upp hugmyndina um
ættleiðingu við eiginmann sinn
en það tók hann ör lítið lengri
tíma að taka þessa
ákvörðun.
Var óstöðvandi í að
skoða ferlið
„En ég gaf mig ekki og
var eiginlega óstöðv
andi í að skoða ætt
leiðingarferlið og
afla mér upplýs
inga. Ég ákvað þó að
ræða þetta ekki við
hann í nokkurn tíma
og leyfa honum að
koma með þetta til
mín og einn góðan
veðurdag var hann
tilbúinn. Áður en við
vissum af vorum við
komin í viðtal hjá Ís
lenskri ættleiðingu
og í kjölfarið fórum
við að safna saman
öllum pappírum
sem við skiluðum svo inn í nóv
ember árið 2016. Nýlega fengum
við viðtal við Barnavernd og erum
að fara í viðtal þar í næstu viku og
svo munum við fá reglulegar heim
sóknir frá þeim og fara í viðtöl og
einnig þurfum við að taka sálfræði
próf sem verður þýtt og sent út.“
Eva og maðurinn henn
ar ákváðu að ættleiða barn
frá Tékklandi og segir hún
að ferlið taki allt frá tveimur
og upp í fjögur ár.
„Það má því segja að
þetta sé löng meðganga ef
svo má að orði komast. Við
eigum engin börn fyrir og
því er þetta barn sem við
verðum pöruð við mjög vel
komið. Ferlið hefur verið
algjör tilfinningarússíbani
en við hugsum í lausnum
og erum jákvæð með fram
haldið. Við erum ekki mikið
að vorkenna okkur fyrir að
eiga ekki barn núna held
ur reynum við að njóta þess
að vera tvö á meðan við get
um. En við erum afar heppin
því við eigum nóg af yndislegum
frændsystkinum sem koma nánast
daglega í heimsókn eða pössun til
okkar. En ég verð að segja að ég er
svo spennt eftir því að fá símtalið
stóra, þegar að því kemur, að ég
get eiginlega ekki beðið.“
Tjáir sig opinberlega á
Snapchat
Eva segir að það hafi hjálpað þeim
mikið að fá að fara á fundi og fyrir
lestra hjá Íslenskri ættleiðingu
sem og að fá að kíkja í heimsókn til
fólks sem hefur ættleitt.
Eva tók ákvörðun um að
opna sig um ættleiðingarferlið
á Snapchat því henni finnst það
hjálpa henni að ræða um það
opin berlega.
„Ég vona að það hjálpi öðrum
líka og vonandi sjá fleiri að það er
til svo mikið af góðum lausnum til
þess að eignast barn og þetta er
ein af þeim.“ n
Hægt er að fylgjast með ætt-
leiðingarferli Evu á Snapchat und-
ir notandanafninu: evanadia
Eva Dögg hefur misst
fóstur þrisvar sinnum
n Talar opinskátt á Snapchat n Ákváðu að ættleiða barn frá Tékklandi
Aníta Estíva Harðardóttir
anita@pressan.is „Það
má
segja að
þetta sé löng
meðganga
Geta vart beðið Eva Dögg með eiginmanni sínum.
Alltaf elskað
börn Eva Dögg
Guðmundsdóttir á
giftingardaginn.
Húsráð gegn tárvotum
augum í laukskurði
Laukur er ríkur af B-, C- og G-vítamínum,
próteinum, sterkju og lífsnauðsynlegum
frumefnum. Hann er því virkilega hollur
fyrir okkur en það sem við borgum fyrir
kosti lauksins eru tárin sem við fellum
þegar við skerum hann niður.
Það eru þó til nokkur góð húsráð til þess
að draga úr táraflóðinu:
Hægt er að hita laukinn áður en hann
er skorinn niður til dæmis með því
að setja hann í örbylgjuofninn í um
30–40 sekúndur.
Einnig er gott ráð að frysta laukinn
áður en hann er skorinn niður.
Best er að afhýða laukinn og leyfa
honum að liggja í frystinum í um
það bil hálftíma.
Þriðja ráðið hljómar kannski
furðulega en það virkar. Áður en
þú hefst handa við að skera niður
laukinn settu þá brauðsneið upp í
þig og leyfðu henni að hanga á milli
varanna. Brauðið virkar eins og svampur
og mun það draga í sig megnið af efninu
sem fær okkur til þess að gráta áður en
það kemst upp að nefi þínu og augum.