Fréttablaðið - 10.03.2018, Síða 68

Fréttablaðið - 10.03.2018, Síða 68
 __________ Útboð ___________ Faxaflóahafnir sf. óska eftir tilboðum í verkið: MALBIKUN 2018 Helstar magntölur eru: Malbik 2.600 tonn Útlögn 22.200 m2 Fræsing 5.200 m2 Útboðsgögnin verða afhent á rafrænu formi endur- gjaldslaust hjá Hnit verkfræðistofu. Hafa skal samband við skiptiborð í s: 5700500 eða í póstfang olafur@hnit.is frá og með miðvikudeginum 14. mars n.k. Tilboðum skal skila til skrifstofu Faxaflóahafna sf., Tryggvagötu 17, fyrir miðvikudaginn 28. mars 2018 klukkan 10:00. Tilboð verða opnuð á sama stað og tíma. Verklok eru 1. júlí 2018. Styrkirnir eru ætlaðir til niðurgreiðslu á kostnaði vegna kaupa á ljósmyndum til birtingar frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Styrkirnir eru vegna útgáfu bóka og/eða annars efnis sem kemur út á árinu 2018 eða í ársbyrjun 2019. Tilgangur styrkveitinganna er að hlúa að varðveislu menningar- arfleifðar Reykjavíkur og hvetja til miðlunar sögu hennar. Hópur skipaður þremur sérfræðingum á Menningar- og ferðamálasviði fer yfir umsóknir og gerir tillögu til menningar- og ferðamála- ráðs Reykjavíkurborgar. Í umsókn komi fram nauðsynlegar upplýsingar um umsækjanda ásamt lýsingu á fyrirhugaðri útgáfu og verðáætlun Ljósmynda- safns Reykjavíkur vegna afgreiðslu ljósmynda í höfundarétti sem bera birtingagjald skv. gjaldskrá safnsins. Umsókn merkt ,,Myndrík miðlun/útgáfa“ berist á netfangið menning@reykjavik.is. Umsóknir berist í síðasta lagi í dagslok fimmtudaginn 2. maí. Styrkir fyrir sérstaklega myndríka miðlun/útgáfu tengda sögu og menningu í Reykjavík Merki ráðuneytanna í 4 litum fyrir dagblaðaprentun Styrkir úr Sprotasjóði Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Sprotasjóði leik-, grunn- og framhaldsskóla vegna skólaársins 2018 - 2019. Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi. Í 4 gr. reglugerðar nr. 242/2009 um Sprotasjóð leik-, grunn- og framhaldsskóla segir: Leikskólastjórar, skólastjórar eða skólameistarar fyrir hönd skóla, kennarahópa eða einstakra kennara geta sent inn umsókn. Aðrir aðilar en skólar geta sótt um þróunarverkefni í samstarfi við skóla. Í þeim tilfellum skal staðfesting á þátttöku skóla fylgja umsókn. Áherslusvið sjóðsins verða að þessu sinni: • Menntun fyrir alla • Verklegt nám • Vellíðan Við mat á umsóknum verður skoðað hvernig verkefnin falla að hlutverki Sprotasjóðs ásamt því að markmið verkefnis séu skýrt fram sett, að verkefnisstjórn sé vel skilgreind, að raunhæfar kostnaðar-, verk- og tímaáætlanir séu lagðar fram og að framlag samstarfsaðila sé tryggt og vel skilgreint. Umsóknir sem falla utan ofannefndra áherslusviða fá sérstaka umfjöllun í ljósi áhrifa verkefna á menntun og skólastarf. Fyrir skólaárið 2018 - 2019 verða til úthlutunar allt að 54 milljónum kr. Vakin er sérstök athygli á að umsóknir um styrki skulu vera á rafrænu formi. Sækja þarf um aðgang að umsóknavef Sprotasjóðs, www.sprotasjodur.is. Tekið verður á móti umsóknum frá 10. til 31. mars 2018. Nánari upplýsingar um Sprotasjóð veitir Sigrún Vésteins- dóttir hjá Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri í síma 460-8904 eða í tölvupósti á sv@unak.is. Mennta- og menningarmálaráðuneyti MARKAÐSSTEFNUMÓTUN Hafnararðarbær hefur ákveðið að fara í heild- stæða markaðsstefnumótun fyrir Hafnarörð og mun Markaðsstofa Hafnararðar leiða þá vinnu. Markaðsstofa Hafnarfjarðar (MsH) leitar því eftir s mstarfsaðila til að vinna heildstæða markaðsstefnumótun og aðgerðaáætlun fyrir Hafnarfjörð. Nánari upplýsingar um verkið má finna á msh.is/markadsstefnumotun Skilafrestur fyrir forval er til og með 25. mars á asa@msh.is merkt markaðsstefnumótun. Dómnefnd ásamt Dr. Friðriki Larsen lektor við Háskóla Íslands fer yfir þær tillögur sem berast og í kjölfarið mun völdum aðilum verða boðið að kynna sínar hugmyndir. Samstarfsaðili mun vinna verkefnið í samráði við stýrihópinn. Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja: - Drög að mögulegri verkefnislýsingu. - Upplýsingar um sambærileg verk sem aðili hefur unnið. - Upplýsingar um hvaða einstaklingar myndu sjá um verkefnið og útlistun á hæfi þeirra til að takast á við það. - Upplýsingar um hvenær verkefnið geti hafist en æskilegt er að það hefjist sem fyrst. Ása Sigríður Þórisdóttir framkvæmdastjóri MsH veitir nánari upplýsingar asa@msh.is eða í 820 8269 Viðskiptatækifæri í ferðaþjónustu Til sölu er fyrirtæki með þekkt nafn, sem sérhæfir sig í dags-og hópferðum fyrir Íslendinga sem og erlenda ferðamenn. Fyrirtækið hefur starfað í 20 ár og er með góðan bílakost. Starfsemin hentar vel þremur starfsmönnum sem keyra og annast reksturinn, lítil yfirbygging. Frábært tækifæri fyrir aðila sem vinna við ferðaþjónustu og langar að hefja sjálfstæða starfsemi, einnig sem góð viðbót fyrir fyrirtæki í sömu grein. Sanngjarnt verð og auðvelt að eignast. Vinsamlegast sendið nafn og símanúmer á fremst@simnet.is fyrir 19. mars 2018. Til sölu: Fullbúið síma- og tölvuverkstæði í fullum rekstri miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Tilvalið fyrir einyrkja og aðra sem vilja færa út kvíarnar. Verð 1 M. kr. Áhugasamir hafa samband á netfangið tolvuverkstaedi@gmail.com Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur samþykkti þann 10. janúar 2018 að kynna drög að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, varðandi markmið um göngugötur í aðalskipulaginu. Í tillögunni felst að skerpa á almennum markmiðum aðalskipulagsins um göngugötur og setja nánari ákvæði um það hvernig standa skuli að tímabundinni og varanlegri lokun gatna fyrir bílumferð. Drög að breytingartillögu hafa verið aðgengileg á adalskipulag.is undanfarnar vikur. Þriðjudaginn 13. mars verður verkefnisstjóri til svara um tillöguna, milli kl. 15.00-16.00 í þjónustuverinu að Borgartúni 12-14. Áformað er að samþykkja tillöguna í lögformlega kynningu með 6 vikna athugasemdafresti á næstunni. Þeir sem óska frekari upplýsinga um málið geta snúið sér til umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Ábendingum og athugasemdum við drögin má koma á framfæri á netfangið skipulag@reykjavik.is. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur Skrifstofa borgarstjóra Skrifstofa borgarstjóra Borgarverkfræðingur Borgarverkfræðingur H gdeild Hagdeild Dagvist barna Dagvist barna Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipulagssvið Breyting á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 Miðborgin Markmið um göngugötur Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, sími: 411 1111, www.reykjavik.is ORKA NÁTTÚRUNNAR Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík · Sími 591 2700 · www.on.is Allar fyrirspurnir vegna útboðs skal senda á utbod@or.is Útboð Óskað er eftir tilboðum í hleðslur fyrir bifreiðar. Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Nánar lýst í útboðsgögnum „ONRS-2018-04 Hleðslur“ Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu á vefsíðu OR https://www.or.is/utbod Tilboð verða opnuð hjá Orku náttúrunnar ohf. Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík, þriðjudaginn 10.04.2018 kl. 11:00. ONRS-2018-04 10.03.2018 ONRS-2017-19/ 14.12.2017 Orka náttúrunnar ohf. óskar eftir tilboðum í: Hleðslur ORKA NÁTTÚRUNNAR Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík · Sími 591 2700 · www.on.is Allar fyrirspurnir vegna útboðs skal senda á utbod@or.is Útboð j l i , j í · í i · . .i ll i i l n.is 24 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 0 . M A R S 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 1 0 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :3 2 F B 1 2 0 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 2 A -1 5 7 8 1 F 2 A -1 4 3 C 1 F 2 A -1 3 0 0 1 F 2 A -1 1 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 2 0 s _ 9 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.