Fréttablaðið - 10.03.2018, Side 77

Fréttablaðið - 10.03.2018, Side 77
Penne pasta með kjúkling og chorizo pylsu. Það tekur aðeins fimmtán mínútur að útbúa þennan góða pastarétt sem er uppá- hald margra. Í uppskriftinni er notað penne pasta en það má auðvitað nota það sem manni finnst best. Uppskriftin miðast við tvo. 300 g kjúklingur, skorinn í bita 1 haus spergilkál, tekinn í sundur 80 g chorizopylsa, skorin í bita 1 laukur, smátt skorinn Olía til steikingar 1 dl vatn 2 dl rjómi 1,5 tsk. cayennepipar Salt og pipar Hökkuð steinselja Parmesanostur Sjóðið pasta eftir leiðbeiningum á pakkanum. Setjið olíu á pönnu og steikið chorizopylsuna í 2-3 mín- útur. Takið þá af pönnunni en haldið olíunni sem hefur mikið bragð af pylsunni. Steikið lauk og kjúkling. Hellið vatni á pönn- una og bætið spergilkálinu út í. Loks er rjómanum bætt við og allt látið sjóða. Bragðbætið með kryddinu. Setjið chorizo aftur út í og blandið pastanu saman við. Rífið parmesan ost yfir í lokin og skreytið með steinselju. Kjúklingapasta með chorizo Gott kartöflusalat lyftir meðalmat upp í hæstu hæðir. Það þarf ekki að vera flókið eða innihalda mörg hráefni. Hér er einföld uppskrift að góðu kartöflusalati fyrir helgina. Fyrir 8 1,4 kg rauðar kartöflur, vel hreinsaðar og skornar niður í jafna teninga 1½ msk. salt ½ bolli ólífuolía 2 msk. rauðvínsedik 1½ msk. sítrónusafi 1 msk. dijonsinnep 3 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir ½ tsk. svartur pipar ⅓ bolli fínt söxuð steinselja 2½ msk. saxaður graslaukur (eða basilíka, dill eða rósmarín) 1 msk. saxað ferskt timían Setjið vatn í pott og 1 msk. af salti. Sjóðið kartöflurnar í vatninu þar til þær eru tilbúnar. Passið þó að sjóða ekki of lengi. Hellið vatninu af og látið kartöflurnar kólna í um tíu mín. Á meðan kartöflur eru soðnar skal blanda saman í skál olíunni, rauðvínsedikinu, sítrónu- safanum, sinnepinu, hvítlauknum, piparnum og kryddjurtum. Setjið ½ msk. af salti út í og látið standa. Setjið að lokum kartöflur út í og hrærið varlega saman. Berið fram volgt eða kalt. Ljúffengt kartöflusalat  Danshópurinn Les Coquettes sýnir á hátíðinni Únglingurinn í Reykjavík. Únglingurinn í Reykjavík Únglingurinn í Reykjavík er fjögurra daga dans- og sviðslistadagskrá sem hófst 5. mars og stendur til 17. mars. Dagskráin er troðfull af spennandi viðburðum og nú um helgina er ýmislegt á döfinni. Listmundur er listaþjóðfundur sem stendur yfir í Norræna húsinu frá 10 til 15 í dag þar sem rætt verður um möguleika listarinnar til breytinga, á okkur sjálfum, hverju öðru og samfélaginu í kringum okkur. Í ár munu Ása Hjörleifsdóttir, Hugleikur Dagsson, Korkimon og Króli taka þátt í Listmundi. Milli 17 og 18 verður svo hlustunarpartí í Kúlunni í Þjóðleik- húsinu. Á morgun, sunnu dag, má svo nefna hönnunarstofu í Hafnar- húsinu klukkan eitt og danssýning- arnar Les Coquettes og Allar mínar systur sem einnig verða í Hafnarhús- inu. Nánari upplýsingar og dagskrá Únglingsins má nálgast á heimasíðu Reykjavik Dance Festival og Úng - lingurinn í Reykjavík á Facebook. Veitingarekstur Til leigu stórglæsilegur fullbúinn veitingastaður ásamt glæsilegum veislusal. Húsnæðið skiptist í veitingastað og veislusal sem er einnig hægt að nota saman ásamt fullbúnu keyrslueldhúsi og veislueldhúsi. Húsnæðið er virkilega vel innréttað og hefur hvergi verið til sparað. Sýningar Leitum að aðilum sem hafa áhuga á að setja upp sýningar fyrir ferðamenn í reiðhöllinni við Fákasel Ingólfshvoli allt að fjórar sýningar á dag. Verslun Erum með verslunarpláss sem hentar fyrir verslun með vörur fyrir ferðamenn. Hestaleiga Erum með til leigu hesthús ásamt beitarhólfum undir rekstur hestaleigu og reiðskóla. Frábærar reiðleiðir eru til staðar ásamt afnotum af glæsilegri reiðhöll skv. samkomulagi. Einnig er hægt að tengja hestaleiguna við uppsetningu á hestasýningum fyrir ferðamenn í reiðhölinni á staðnum. Vinsamlegast sendið fyrirspurnir á netfangið andres@fakasel.is eða hafið samband í síma 7720202 Andrés Fákasel / Ingólfshvoll Ferðaþjónusta sem skiptist í veitingastað, hestasýningar fyrir ferðamenn, hestaleigu, gistiþjónustu, útleigu á reiðhöll fyrir sýningar, kennslu og námskeið. Á Ingólfshvoli er veitingastaður, reiðhöll með áhorfendastúku fyrir 800 manns, hesthús fyrir 104 hesta, tamningastöð, íbúðir og áform um uppbyggingu á gistiaðstöðu. Aðilar sem koma að rekstri munu vinna saman að verkefninu í heild ásamt markaðssetningu. Eigendur er tilbúnir að vinna að uppbyggingu í samstarfi við rekstraraðila. Fákasel Ingólfshvoll Ölfusi Til leigu Veitingarekstur - Hestaleiga - Hestasýningar - Verslun FÓLK KYNNINGARBLAÐ 9 L AU G A R DAG U R 1 0 . M A R S 2 0 1 8 1 0 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :3 2 F B 1 2 0 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 2 9 -F 7 D 8 1 F 2 9 -F 6 9 C 1 F 2 9 -F 5 6 0 1 F 2 9 -F 4 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 2 0 s _ 9 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.