Fréttablaðið - 17.03.2018, Side 43
Atvinnuauglýsingar job.visir.isSölufulltrúar Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 512 5441
Viðar Ingi Pétursson, vip@frettabladid.is 512 5426
Viðskiptastjóri lækninga- og rannsóknabúnaðar
CETUS HEALTH GROUP (CHG) var stofnað
árið 1998 og fagnar því 20 ára afmæli í ár.
Fyrirtækið hefur aukið umsvif sín, meðal
annars með yfirtökum á fyrirtækjum, og
er umboðsaðili fyrir leiðandi vörumerki á
heilbrigðismarkaði. Hjá CHG er framúrskarandi
þekking, færni og reynsla af farsælu samstarfi
við helstu heilbrigðisstofnanir landsins, svo
sem LSH. Viðskiptavinir CHG eru traustir aðilar
og birgjar eru leiðandi fyrirtæki á þessum
vettvangi. Rekstur CHG grundvallast einkum
á samningum sem gerðir eru við viðskiptavini
í framhaldi af auglýstum útboðum.
Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á
heimasíðu þess www.cetus.is
Nánari upplýsingar um starfið veita Bylgja Björk Pálsdóttir (bylgja@intellecta.is) og Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is), í
síma 511-1225. Umsóknarfrestur er til og með 26. mars 2018. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja
starfsferilsskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
CETUS HEALTH GROUP (CHG) auglýsir laust til umsóknar starf viðskiptastjóra lækninga- og rannsóknabúnaðar.
Staðan heyrir beint undir framkvæmdastjóra. Um er að ræða áhugavert tækifæri hjá fyrirtæki í miklum vexti. Góð
laun í boði fyrir réttan aðila.
Intellecta Síðumúli 5, 108 Reykjavík, sími 511 1225.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði rafvirkjunar
eða rafeindavirkjunar
• Þekking á tækjum og búnaði á heilbrigðismarkaði
• Starfsreynsla innan heilbrigðisgeirans
• Reynsla af rekstri er kostur
• Sjálfstæði og vilji til að ná árangri
• Reynsla af ferli útboða er kostur
• Góð samskiptahæfni og jákvæðni
• Góð kunnátta í íslensku og ensku
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Þátttaka í opinberum útboðum og verðfyrirspurnum
• Stjórnun samninga, sala og markaðssetning á lækninga-
og rannsóknabúnaði
• Samskipti við viðskiptavini og birgja
• Þátttaka í námskeiðum í samstarfi við alþjóðlega birgja
erlendis
• Stjórnun pantana og samskipti við flutningsaðila
• Gerð og eftirfylgni með rekstraráætlun lækninga- og
rannsóknabúnaðar í samstarfi við framkvæmdastjóra
• Önnur tilfallandi stjórnunarstörf
CETUS HEALTH GROUP
Þverholti 2 | 270 Mosfellsbær | Sími 525 6700 | mos.is
Vilt þú starfa sem
Byggingarfulltrúi í
MOSFELLSBÆ?
Byggingarfulltrúi ber ábyrgð á framkvæmd opinbers byggingareftirlits í sam-
ræmi við gildandi lög (nr. 160/2010) og reglugerðir. Byggingarfulltrúi gefur út
byggingarleyfi og hefur eftirlit með leyfisskyldum framkvæmdum og annast
önnur verkefni sem kveðið er á um í mannvirkjalögum.
Byggingarfulltrúi starfar á umhverfissviði og leiðir faglega þróun byggingar-
mála innan sviðsins. Helstu verkefni felast í samskiptum við hönnuði, verktaka
og íbúa í tengslum við framkvæmdir í sveitarfélaginu. Þá annast byggingar-
fulltrúi útgáfu byggingarleyfa, yfirferð- og samþykkt aðaluppdrátta, verkfræði-
og séruppdrátta og útgáfu vottorða og skráningu mannvirkja.
Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni,
framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Prófgráða í verkfræði,arkitektúr, tæknifræði eða sambærileg
menntun í samræmi við ákvæði mannvirkjalaga skilyrði
• Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er æskileg
• Að lágmarki fimm ára starfsreynsla skv. 25. gr.
mannvirkjalaganna
• Byggingarfulltrúi skal hafa löggildingu sem hönnuður
sbr. 25. gr. mannvirkjalaga
• Góð tölvukunnátta og þekking á forritum skilyrði
• Góð þekking á lögum og reglugerðum tengdum
byggingarleyfum er æskileg
• Framúrskarandi samskiptahæfileikar eru nauðsynlegir
• Hæfni til að tjá sig í rituðu og töluðu máli
• Sjálfstæð, frumkvæði og öguð vinnubrögð eru nauðsynleg
• Önnur skilyrði sbr. ákvæði mannvirkjalaga
Mosfellsbær er ört stækkandi sveitarfélag þar sem
áhugaverð verkefni eru daglegt viðfangsefni. Við
leitum að öflugum byggingarfulltrúa í teymi okkar.
Umsóknarfrestur er til og með 3. apríl 2018.
Umsóknir ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi sem greinir frá reynslu,
menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið skulu berast
á netfangið mos@mos.is. Nánari upplýsingar um starfið veitir Hanna Guðlaugs-
dóttir, mannauðsstjóri, í síma 525 6700.
Um framtíðarstarf er að ræða. Öllum umsóknum verður svarað.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga
og viðkomandi stéttarfélags. Við hvetjum fólk af báðum kynjum
til að sækja um starfið.
1
7
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
3
8
-F
3
0
C
1
F
3
8
-F
1
D
0
1
F
3
8
-F
0
9
4
1
F
3
8
-E
F
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
0
s
_
1
6
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K