Fréttablaðið - 17.03.2018, Blaðsíða 6
Stjórnmál Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins, segir
Sigríði Andersen dómsmálaráð-
herra hafa staðið í miklum mótvindi
á síðustu mánuðum, en Sjálfstæðis-
flokkurinn hafi verið henni mikill
bakhjarl og gert henni kleift að
standa upprétt. Bjarni ræddi stöðu
Sigríðar við setningu landsfundar
Sjálfstæðisflokksins í gær. Sigríður
hefur, sem kunnugt er, sætt ámæli
eftir skipan dómara í landsrétt og
eftir að dæmdum kynferðisbrota-
mönnum var veitt uppreist æru.
„Ég veit ekki hvort ég geti sagt
að það hafi verið vonbrigði að sjá
fyrrverandi samstarfsflokk og fyrr-
verandi flokksfélaga okkar greiða
atkvæði með fáheyrðri vantrausts-
tillögu í síðustu viku, þar sem það
er svo sem ekki við miklu að búast
úr þeirri átt,“ sagði Bjarni.
Bjarni sagði að Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir, formaður Við-
reisnar, hefði þó einhvern tímann
komið kvenkyns stjórnmálamanni
til varnar. „Það virðist bara ekki eiga
við um Sigríði Andersen sem hefur
staðið sig vel og átti mikið inni fyrir
stuðningi meirihluta Alþingis og
ykkar. Hún stendur sterkari eftir,“
Bjarni sagði að milli núverandi
stjórnarflokka ríkti gott traust og
mikill vilji til samstarfs. „Bæði til að
vinna þau verk sem vitað er að þarf
að vinna, en líka til að takast á við
öll þau mál sem koma óvænt upp.
Til þess að þarf styrk og reynslu sem
er ekki öllum gefin, sérstaklega ekki
smáflokkum sem eru að eigin mati
aðallega í því að rugga bátnum en
detta svo bara útbyrðis í öllum gusu-
ganginum,“ sagði Bjarni.
Bjarni sagði að myndun ríkis-
stjórnar með VG og Framsóknar-
flokknum væri á margan hátt
söguleg. „Við höfum áður átt gott
samstarf við Framsókn, en það
er ekki sjálfgefið að ná saman við
Vinstri græn, sem eru hinum megin
á pólitíska ásnum,“ sagði hann.
Í ræðu sinni vísaði Bjarni til þess
að verkefni ríkisstjórnarinnar fram
undan væru fjölmörg. „Við ætlum
að halda áfram að lækka skatta á
þessu kjörtímabili. Tekjuskatturinn
mun lækka. Tryggingagjald mun
lækka. Þetta er stefna okkar. Þetta er
skrifað í stjórnarsáttmálann. Þetta
mun gerast. Fyrstu skrefin verða
tekin strax á næsta ári.“
Þá sagði hann að ætlunin væri
að auka stuðning við nýsköpun og
þróun. Virðisaukaskattur af bókum
yrði afnuminn og höfundarréttar-
greiðslur færðar úr tekjuskatti í fjár-
magnstekjuskatt.
Landsfundur stendur fram á
sunnudag. Í dag verður fyrirspurna-
tími með forystu flokksins og ráð-
herrum, auk þess sem málefnastarf
hefst í sal. Á morgun verður kosning
forystu flokksins og stjórnmála-
ályktun afgreidd. Að auki mun odd-
viti flokksins fyrir borgarstjórnar-
kosningarnar, Eyþór Arnalds,
ávarpa fundinn.
jonhakon@frettabladid.is
Bjarni skaut á Þorgerði
Katrínu og smáflokka
Formaður Sjálfstæðisflokksins segir gott traust og mikinn vilja til stjórnarsam-
starfs. Stjórnarmyndunin hefði verið söguleg. Hann gerði stuðning Viðreisn-
ar við vantraust á dómsmálaráðherra að umtalsefni við setningu landsfundar.
Reykjavík Kletthálsi 7. Opið virka daga kl. 8-18, laugard. 10-16
Reykjanesbær Fuglavík 18. Opið virka daga kl. 8-18, laugard. 10-14
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Flísalím og fúga
fyrir fagmenn
Bostik Ardaflex Top 2 Flísalím
Frostþolið flíslím f. inni, úti, votrými og yfir hitalagnir
Gönguhæft eftir rúmlega 12klst
Þyngd: 25kg
Verð: 2.590 kr.
Fæst í 5kg poka,
verð1.595 kr.
Einnig til í 2kg, verð 740 kr.
Einnig til í 25kg, verð 2.690 kr.
Murexin FM 60
Flexfúga
Frostþolin flísafúga
Margir litir
Þyngd: 8kg
Verð: 1.990 kr.
Mikið úrval
af gjafavöru
fyrir dömur
og herra
· Töskur
· Hanskar
· Seðlaveski
· Ferðatöskur
· Tölvutöskur
· Belti
· Skart og
skartgripaskrín
Góðar vörur
Sanngjarnt verð
Persónuleg þjónusta
María er sjötug og
vill selja verslunina
Áhugasamir hafi samband við:
fasteignakaup@fasteignakaup.is
Erna Valsdóttir, sími 892-4717
María Maríusdóttir
Drangey ehf. / kt. 500169 6219
Kynntu þér ferðina betur á www.icelinetravel.com
Ástralía 5.-25. október
Verð 649.000 á mann miðað við 2 í herbergi.
Upplýsingar í símum 845-1425 / 899-1295
eða á tölvupósti info@iceline.is
Þriggja vikna spennandi ferð um Ástralíu frá 5.-25. október.
Mikið innifalið
Bjarni Ben sagði Sigríði Andersen hafa átt mikið inni fyrir stuðningi meirihluta Alþingis. FréttABlAðið/Andri MArinó
Við höfum áður átt
gott samstarf við
Framsókn, en það er ekki
sjálfgefið að ná saman við
Vinstri græn, sem eru hinum
megin á pólitíska ásnum.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins og fjármálaráðherra
Stjórnmál Á þingflokksfundi VG
á mánudaginn verður reynt að bera
klæði á vopnin og ræða um það sem
aflaga hefur farið í samskiptum innan
þingflokksins. Tveir þingmenn, Rósa
Björk Brynjólfsdóttir og Andrés Ingi
Jónsson, hafa eins og frægt er orðið
bæði samþykkt vantraust á einn ráð-
herra í ríkisstjórn VG sem og að sam-
þykkja ekki stjórnarsáttmála
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir,
þingflokksformaður VG, sagði í við-
tali við Fréttablaðið í gær að sam-
skipti innan þingflokksins hafi verið
stirð allt frá því þing kom saman eftir
kosningar.
„Það er óhætt að segja að sam-
skiptin eru erfið innan þingflokks-
ins. Það er ekkert sérstaklega við
mig frekar en aðra en þau eru svo-
lítið erfið og hafa verið það og það
er ekkert nýtt,“ sagði Bjarkey.
Forsætisráðherra gefur lítið fyrir
að samskiptin séu stirð og erfið
og segir að þetta sé mál sem verði
afgreitt innan þingflokksins. „Það
er nú þannig að ég hef verið á þingi
í tíu ár. Það hafa oft verið ólíkar
skoðanir innan VG og ég held að
það séu engar ástæður til að ætla
að við getum ekki leyst þetta,“ segir
Katrín. „Það er krefjandi að vera í
stórum verkefnum eins og að vera
í ríkisstjórn, við þekkjum það, og
skoðanir eru ólíkar. Andrés og Rósa
eru félagar í okkar hreyfingu eins og
ég og allir aðrir.“
Í næstu viku verða þingstörf með
eðlilegum hætti en í síðustu viku
hafa staðið yfir nefndastörf. – sa
Gefur lítið fyrir vanda innan þingflokks
Katrín
Jakobsdóttir.
1 7 . m a r S 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
1
7
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
3
8
-A
4
0
C
1
F
3
8
-A
2
D
0
1
F
3
8
-A
1
9
4
1
F
3
8
-A
0
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
0
s
_
1
6
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K