Fréttablaðið - 17.03.2018, Blaðsíða 98
1 7 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r46 t í m a m ó t ∙ F r É t t a B L a ð i ð
Á þessum degi fyrir þrjátíu árum gerðist sá merkisat b u r ð u r a ð f y r st a íslenska glasabarnið leit dagsins ljós. Um var að ræða tólf marka dreng
sem tekinn var með keisaraskurði.
Blaðamaður DV mætti upp á fæðingar
deild, ásamt blaðamönnum frá flestum
fjölmiðlum landsins á þessum tíma, til
að berja barnið augum, foreldrunum
vafalaust til mikillar skemmtunar.
Móðirin tjáði blaðamanni við það til
efni að þetta hefði verið ótrúleg upp
lifun og ekki síst vegna dvalarinnar á
Bourn Hall sjúkrahúsinu á Englandi,
en þangað leitaði móðirin í aðgerðina.
Hinn frægi Steptoe læknir, sá sem fyrstur
framkvæmdi glasafrjóvgun í heiminum,
sá auðvitað um aðgerðina.
„Steptoe læknir á myndir af öllum
þeim börnum sem hann hefur hjálpað í
heiminn á þennan hátt og er einn veggur
í skrifstofu hans þakinn þeim myndum,“
sagði Halldóra Björnsdóttir, móðirin,
við blaðamann DV árið 1988.
Tíu árum áður, fjörutíu árum frá því í
dag, fæddist fyrsta glasabarn heimsins,
hún Louise Brown. Hún eignaðist svo
sjálf sitt fyrsta barn árið 2007.
Glasafrjóvgun var auðvitað mikil
bylting þegar hún kom fram í kringum
1978. Þó hefur aðferðin hlotið nokkra
gagnrýni og orðið völd að miklum
læknamistökum – fóstur hafa ruglast á
tilraunastofum eins og hjá konu einni í
Kaliforníu sem fæddi son sem reyndist „í
eigu“ annars pars. Einnig eru til mál þar
sem fósturvísar para hafa verið teknir
viljandi og notaðir til að frjóvga aðrar
konur, af einhverri ástæðu.
Glasafrjóvgun fer annars þannig
fram að kona sprautar sig með lyfi sem
slekkur á hormónastarfsemi líkamans.
Um er að ræða 23 vikna ferli sem ein
kenni breytingaskeiðsins geta fylgt. Þá
er konan sprautuð með öðru lyfi sem
hvetur eggjastokkana til að þroska
mörg eggbú. Þegar eggbú konunnar
hafa þroskast nægilega er hún kölluð
inn í eggheimtu þar sem eggin eru tekin
með lítilli aðgerð. Á þessum tímapunkti
kemur glasið til sögunnar en egginu
og sæði eiginmanns eða sæðisgjafa er
blandað í tilraunaglasi þar sem náttúru
leg frjóvgun fer fram. Eftir það er fóstur
vísinum komið fyrir í legi konunnar og
hún fer heim og tekur því rólega þangað
til vitað er hvort hún er þunguð.
stefanthor@frettabladid.is
Fyrsta glasabarnið leit
dagsins ljós fyrir 30 árum
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma
Dýrleif Jónsdóttir
áður til heimilis að
Lindasíðu 2, Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð þann 5. mars.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
María Daníelsdóttir
Númi Friðriksson
Oddný Friðriksdóttir Sverrir Pálmason
Sæmundur Friðriksson Hulda Friðjónsdóttir
Magnea Friðriksdóttir
Þórey Friðriksdóttir Gunnar Torfason
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðný Sæmundsdóttir
lést á Hrafnistu, Hafnarfirði,
fimmtudaginn 15. mars. Útför hennar
fer fram frá Garðakirkju miðvikudaginn
21. mars klukkan 15.00.
Margrét Teitsdóttir Jón Ásgeir Eyjólfsson
Magnús Teitsson Erla S. Ragnarsdóttir
Oddný Teitsdóttir Ari Freyr Steinþórsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Lára Árnadóttir,
umsjón útfara
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Steptoe læknir á mynd-
ir af öllum þeim börn-
um sem hann hefur hjálpað í
heiminn á þennan hátt og er
einn veggur í skrifstofu hans
þakinn þeim myndum.
Á þessum degi fyrir þrjátíu
árum fæddist fyrsta íslenska
glasabarnið. Tíu árum fyrr,
eða fyrir fjörutíu árum,
fæddist fyrsta glasabarn
heimsins í Bretlandi sem
var algjör bylting.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Daníel Þórir Oddsson
lést í Brákarhlíð, Borgarnesi,
mánudaginn 12. mars síðastliðinn.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna, mánudaginn
19. mars frá Borgarneskirkju. Þeim sem vilja minnast hans,
er bent á Hollvinasamtök Brákarhlíðar, sjá heimasíðu:
www.brakarhlid.is
Ólöf Ísleifsdóttir
Guðrún E. Daníelsdóttir Jón Kristinn Jakobsson
Daníel Andri Jónsson
Ólöf Kristín Jónsdóttir Guðmundur B. Kristbjörnsson
Jón Anton Guðmundsson
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Gísli Steinar Jóhannesson
skipstjóri, frá Gauksstöðum í Garði,
sem lést 11. mars verður jarðsunginn
frá Neskirkju, miðvikudaginn
21. mars klukkan 13.
Sigríður Skúladóttir
Helga Gísladóttir Eiríkur Sigurðsson
Gísli Steinar Gíslason Inga Rós Aðalheiðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri faðir, afi og langafi,
Lars Eiríkur Björk
ljósmyndari,
lést þann 5. mars á Vífilsstöðum.
Kveðjuathöfn fer fram frá Áskirkju
miðvikudaginn 21. mars kl. 13.00.
Einar Ívar Eiríksson Björk Þorsteinsdóttir
Astrid Björk Eiríksdóttir Einar Jónasson
afabörn og langafabörn.
Mín ástkæra móðir, amma,
systir og mágkona,
Guðrún Hrólfsdóttir
er látin.
Hún verður jarðsungin frá
Ísafjarðarkirkju þriðjudaginn 20. mars
klukkan 16:00.
Halldóra Magnea Fylling
barnabörn,
systkyni og aðrir aðstandendur.
Merkisatburðir
1610 Geirþrúðarbylur geisar. Mikið illviðri stóð í einn dag
og urðu tugir manna úti, aðallega í Borgarfirði og í Miðfirði.
1757 Undir Eyjafjöllum farast 42 menn af þremur skipum
frá Vestmannaeyjum.
1865 Eldingu lýstur niður í bæinn Auðnir á Vatnsleysu-
strönd og verður þremur mönnum að bana. Margir
brenndust mjög illa.
1965 Leikfélag Reykjavíkur hefur sýningar á farsanum
Þjófar, lík og falar konur eftir Dario Fo, en hann varð eitt af
vinsælustu leikritum þeirra.
1988 Fyrsta íslenska glasabarnið fæðist, tólf marka
drengur.
2008 Gengisvísitala íslensku krónunnar fellur um 6,97%.
Var það mesta lækkun hennar á einum degi fram að því.
tímamót
1
7
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
3
8
-B
C
B
C
1
F
3
8
-B
B
8
0
1
F
3
8
-B
A
4
4
1
F
3
8
-B
9
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
2
0
s
_
1
6
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K