Fréttablaðið - 17.03.2018, Side 80
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Leggið gömul dag-
blöð undir vinnu-
aðstöðuna og klæðist
svuntu eða gömlum
fötum sem mega fá í sig
lit.
M a s a I n t e r n a t i o n a l - m a s a i c e l a n d @ g m a i l . c o m - w w w. m a s a i n t e r n a t i o n a l . i s
Kynningin verður haldin þann 17. mars n.k. frá kl. 13:00 - 17:00
á Hótel Reykjavík Centrum Aðalstræti 16.
Kynntar verða skoðunarferðir til Spánar.
MASA International hefur selt fasteignir á Spáni frá 1981
og vinnur eftir ISO 9001 gæðastaðli.
MASA International á Íslandi
Sími 555 0366
KYNNING Á FASTEIGNUM Á SPÁNI
MASA International heldur kynningu á eignum
og kaupferlinu á Spáni.
Egg má ýmist tæma eða harðsjóða til verksins. Harðsoðin egg fara betur í höndum barna
þar sem tóm eggjaskurn er brot
hætt en gaman er að prófa hvort
tveggja.
Takið til harðsoðin kæld egg,
matarlit, edik, tóman eggjabakka,
svuntu, dagblöð, málaralímband
og skálar.
Leggið gömul dagblöð undir
vinnuaðstöðuna og klæðist svuntu
eða gömlum fötum sem mega fá í
sig lit.
Fyllið skálar til hálfs með heitu
vatni, teskeið af ediki og teskeið
af matarlit; eina skál fyrir hvern lit
sem á að nota.
Setjið egg í
litabað og látið liggja í
fimm mínútur. Lyftið
egginu því næst úr
litabaðinu með töng
til að forðast kám og
fingraför og svo að
liturinn þeki eggið vel.
Áður en eggi er dýft
í litabað er líka hægt að
úthugsa ýmis munstur á
eggið:
Hægt er að setja límband utan
um eggið áður en það er litað. Þá
verður eggið röndótt þegar lím
bandið er tekið af eftir litun.
Hægt er að nota hvítan vaxlit til
að skrifa orð eða teikna munstur og
myndir á eggið fyrir litabaðið. Þá
hrindir vaxliturinn matarlitnum frá
sér og eftir standa falleg skilaboð
eða myndir á lituðu egginu.
Hægt er að setja límmiða á eggið
áður en það er litað. Þá standa
útlínur límmiðans eftir þegar búið
er að lita og fallegt að nota límmiða
sem sýna til dæmis hjörtu, stjörnur,
ávexti eða kanínur.
Best er að setja lituð egg til þerris
í tóman eggjabakka þegar þau
koma úr litabaðinu. Þegar eggin
eru orðin þurr er hægt að mála á
þau munstur að vild og líma á þau
glitsteina, glimmer, perlur eða hvað
eina sem hver og einn vill til að gera
sitt páskaegg sem glæsilegast.
Skreytt páskaegg eru sannkölluð
heimilisprýði og sett í fallega körfu
eða skál til skrauts yfir páskahá
tíðina.
+ Til að tæma egg til málunar er
notuð nál eða grannur grillteinn til
að stinga lítil göt í gegnum eggja
skurnina á mjórri enda eggsins
fyrst en svo á breiðari endann.
Þarna þarf að fara mjög varlega og
sumir setja málaralímband í kross
yfir staðinn sem á að stinga á til
að minnka líkur á að eggjaskurnin
brotni. Notið því næst nál eða
tannstöngul til að stinga betur inn í
eggið, rjúfa lífhimnuna og sprengja
eggjarauðuna þannig að auðvelt
sé að tæma eggið. Blásið því næst
í gegnum annað gatið með munni
eða sogröri þar til innihald eggsins
er tæmt. Skolið eggjaskurnina
nú vel en varlega með vatni, að
innan og utan. Þerrið og skreytið
á sama hátt með matarlit eða öðru
skreytingarefni að vild, og setjið svo
band í annað gatið til að geta hengt
eggið á páskagrein eða í glugga.
Hamingjustund fyrir páska
Páskar eru á næsta leiti og þá er viðeigandi að skreyta híbýlin með handmáluðum eggjum sem
fjölskyldan hefur skreytt saman. Það er gaman, auðvelt og ávísun á gleðistund í helgarfríinu.
Það er um að gera að nota næstu daga til að föndra og búa til fallegt páskaskraut.
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 7 . m A R s 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
1
7
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
3
9
-0
6
C
C
1
F
3
9
-0
5
9
0
1
F
3
9
-0
4
5
4
1
F
3
9
-0
3
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
0
s
_
1
6
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K