Fréttablaðið - 17.03.2018, Side 88
Unnur Anna Valdi-marsdóttir, prófess-or við læknadeild Háskóla Íslands, stýrir viðamestu rannsókn sem gerð
hefur verið hér á landi á áfallasögu
kvenna. Henni við hlið við stjórn
rannsóknarinnar starfar besta vin-
kona hennar, Arna Hauksdóttir,
sem er einnig prófessor við lækna-
deild Háskólans.
Rannsóknir bæði Unnar og Örnu
snúa að áhrifum áfalla og þung-
bærrar lífsreynslu á heilsufar. Þær
hafa starfað saman að rannsóknum
í tuttugu ár, eru bestu vinkonur og
hittust eiginlega fyrir skemmti-
legan misskilning þegar þær hófu
nám í sálfræði við Háskóla Íslands
árið 1992.
Þær bjóða upp á kaffi og kleinur á
heimili Örnu í Vesturbænum. Þessa
dagana undirbúa þær að senda af
stað tugi þúsunda smáskilaboða á
konur og bjóða þeim að taka þátt
í rannsókninni á heimasíðunni
www.áfallasaga.is.
Arna: „Við höfum verið í ströng-
um undirbúningi undanfarin
ár fyrir þessa rannsókn. Nú geta
konur frá átján ára aldri með skráð
símanúmer búist við því að fá sms
á næstu dögum þar sem þeim er
boðið að taka þátt. Það er einfalt. Í
skilaboðunum er konum boðið að
taka þátt í rannsókninni og fara á
heimasíðuna okkar og skrá sig þar.
Það þarf þó ekki að bíða eftir skila-
boðum, því allar konur frá 18 ára
aldri geta nú þegar skráð sig í rann-
sóknina á vefsíðunni.“
Hvernig ráðleggið þið konum að
bera sig að í þessu?
Arna: „Ég held að það sé mjög
mikilvægt þegar kona er búin að
ákveða að taka þátt að ákveða að
gefa sér góðan tíma. Við höfum
sagt að meðaltími til að svara
þessum spurningum sé um hálf-
tími. Sumar þurfa styttri tíma,
aðrar lengri. En í öllu falli er gott
að gefa sér góðan tíma og setjast
niður þar sem konan getur verið
ein með sjálfri sér, helst án truflunar
og þannig svarað spurningunum
í næði. Við viljum ítreka að konur
geta verið fullvissar um að þessi svör
á hver fyrir sig og engan annan.“
Hvað gerið þið svo við gögnin?
Unnur: „Við höfum sett okkur
þrjú meginmarkmið. Í fyrsta
lagi ætlum við að kortleggja
algengi margvíslegra áfalla meðal
kvenna á Íslandi. Það hefur í raun-
inni ekki verið gert áður og ekki
með þeim umfangsmikla hætti eins
og við erum að gera. Í spurninga-
listanum er meðal annars að finna
langan lista af alls konar áföllum
sem fólk getur lent í. Ekki bara þau
áföll sem samfélagið hefur verið
mest með hugann við undan-
farið vegna #metoo byltingarinnar,
heldur líka aðra lífsreynslu eins
og erfiða fæðingarreynslu, ástvina-
missi, einelti, skilnað, framhjáhöld,
alls konar áföll. Við höfum flestar
lent í einhverjum áföllum, stórum
eða smáum. Þetta hefur ekki verið
kortlagt áður með þessum hætti.
Annað markmiðið er að skilja
tengsl þessara áfalla við sálræna og
líkamlega heilsu. Við vitum heil-
mikið um áhrif áfalla á sálræna
heilsu en minna um tengsl þeirra
við líkamlega heilsu. Eins og áhætt-
una á sjálfsónæmissjúkdómum,
hjartasjúkdómum, krabbameinum
og fleiru.
Og svo er þriðja markmiðið, að
skilja hvort erfðirnar spili þarna
einhverja rullu. Hvort erfðaþættir
hafi áhrif á það hvernig heilsufar
þitt þróast eftir slík áföll. Það gerum
við í samstarfi við Íslenska erfða-
greiningu með tengingu við gögn
sem eru þegar til staðar.“
Í okkar fyrri rannsóknum
höfum við tekið eftir að það
er mjög misjafnt hvaða áhrif
áföll hafa á heilsufar einstakl-
inga, sumir virðast jafna sig
meðan aðrir missa algjörlega
heilsuna. Og við vitum töluvert um
umhverfisþættina. Að fjölskylda
og vinir skipta miklu máli, að geta
talað við einhvern. Hafa öruggan
fjárhag og ýmislegt fleira. En við
vitum lítið um það hvort það sem
við fáum í vöggugjöf, erfðirnar,
skiptir máli í þessu samhengi.
Það eru því þessar þrjár vörður
sem við erum að einblína á. Síðan
eru endalausir möguleikar. Þegar
við héldum fjölsóttan og vel heppn-
aðan kynningarfund um rannsókn-
ina um daginn þá kom til dæmis
tillaga úr sal: Er hægt að skoða mis-
munandi algengi og áhrif áfalla eftir
kynslóðum? Og við höfðum ekkert
sérstaklega verið að hugleiða það en
finnst það frábær hugmynd. Þetta
getum við gert með þessum gögn-
um. Það er endalaust af verkefnum
sem þessi efniviður getur skapað.
Þátttaka hverrar konur getur verið
mikilvæg fyrir hana sjálfa en líka
gjöf sem stuðlar að almannahag.“
Arna: „Já, einmitt í gegnum mikil-
væga þekkingarsköpun til framtíð-
ar, og þannig breytt heiminum, svo
ég gerist háfleyg. Það má líka nefna
að þegar kona samþykkir að taka
þátt í rannsókninni þá er hún ekki
bara að samþykkja að taka þátt í að
svara þessum spurningalista heldur
líka mögulegum eftirfylgdarrann-
sóknum. Á þann hátt höfum við
möguleika á að fylgja betur eftir ein-
hverjum ákveðnum þáttum í þeim
spurningum sem við erum að leggja
fyrir núna. Og þá höfum við mögu-
leika á að hafa samband aftur til að
rannsaka nánar eitthvað ákveðið
efni. Akkúrat núna er fókusinn á
áföll og sögur kvenna um áföll en
þessi rannsókn gefur líka tækifæri
til að rannsaka aðra þætti með.“
Hverjar eruð þið og hvernig lá leið
ykkar í sálfræði?
Unnur: „Ég er frá Ólafsfirði og
ólst þar upp þar til ég var sex-
tán ára. Svo fór ég í MA og kláraði
þaðan stúdentspróf. Ég var á nátt-
úrufræðibraut í MA, var með æðis-
legan líffræðikennara. Var búin að
vera að velta þessu fyrir mér, vissi
að ég vildi fara í nám sem tengdist
að einhverju leyti lífeðlisfræði eða
heilsufari mannsins. Ég var mikið
að hugsa um að fara í læknisfræði,
líffræði eða sálfræði. Ég ákvað að
velja sálfræði. Ég hélt áfram að hafa
þennan áhuga á lífeðlisfræðinni og
tengslum tilfinninga við heilsufar og
lífeðlisfræðilega þætti. Þetta er allt
beint framhald af því.
Ég byrjaði svo í sálfræðinni 1992.
Þar hitti ég Örnu! Ég þekkti auð-
vitað engan og var hálf villuráfandi
um ganga háskólans. Arna hélt að ég
væri önnur manneskja á kynningar-
fundi um námið, heilsaði mér og
upp úr því fórum við að tala saman.
Ég var nýflutt i borgina og spurði út
í strætisvagnaferðir og hún kenndi
mér á fleira sem tengdist mínu nýja
borgarlífi. Þarna hófst okkar vin-
skapur sem hefur staðið óslitinn
upp frá því.“
En þú Arna?
Arna: „Ég er fædd og uppalin í
Reykjavík og er Reykvíkingur í húð
og hár þó að ég eigi ættir að rekja til
Suðurlands í báðar ættir. Eftir MH
árin ákvað ég að fara í sálfræði. Og
ég var ekki jafn fókuseruð og Unnur
þegar ég valdi sálfræðina. Ég var að
spá í að fara í myndlistarnám, ég
byrjaði á því þegar ég var stúdent
að skrá mig í frönsku í háskólanum.
Svo hætti ég við það og þá varð sál-
fræði endanlega fyrir valinu. Það var
í rauninni mamma mín sem sann-
færði mig um það að ég gæti það.
Þetta var spurning um sjálfstraust
og ég fékk þar hvatninguna sem ég
þurfti á að halda.“
Þú hefur kolfallið fyrir faginu?
„Já, ég gerði það. Ég hafði alltaf
haft áhuga á andlegri líðan. Hafði
lengi verið að vinna með börnum
til dæmis. Ætlaði þá að leggja fyrir
mig barnasálfræði en svo eftir því
sem leið á námið þá opnuðust fleiri
víddir. Ég man að í lok námsins þá
tók ég valnámskeið í heilsusálfræði
og það var það sem kveikti á þess-
ari tengingu minni sem Unnur er
að tala um. Tengsl hugar og líkama.“
Þið gerðuð saman lokaverkefnið
ykkar í háskólanum og gerðuð
rannsókn á krabbameinssjúkum.
Þá voruð þið líka að rannsaka áhrif
áfalla á heilsu? Á þessum tíma var
þetta ekki mikið rætt, er það? Sam-
spil áfalla og heilsu?
Arna: „Einmitt, það er rétt.
Það var til dæmis erfitt að finna
eldri rannsóknir um efnið. Við
héldum áfram að rannsaka áhrif
áfalla á heilsufar í doktorsnám-
inu okkar í Svíþjóð. Við lukum
báðar doktorsprófi frá Karolinska
Institutet í Stokkhólmi og þó á
ólíkum tímum væri vorum við
með svipað rannsóknarefni á þessu
sviði, Unnur var á undan og rann-
sakaði árhrif á heilsu meðal ekkja
og svo kom ég með sambærilega
rannsókn meðal ekkla. Þegar við
vorum að kynna niðurstöður
okkar úr doktorsverkefninu okkar
á þessum tíma, þá fengum við
stundum þau viðbrögð að þetta
væru lítil dúlluverkefni sem væru
ekki alvöru vísindi. Af því að við
vorum að skoða áhrif áfalla á heilsu,
þá þóttum við vera svolítið eins
Bestu vinkonur í vísindum
Prófessorarnir Arna Hauksdóttir og Unnur Valdimarsdóttir segja frá einstakri vináttu sinni og stóru rannsókninni
Áfallasaga kvenna. Þær hittust við upphaf náms í sálfræði við Háskóla Íslands 1992 og hafa fylgst að síðan þá.
Arna og Unnur hafa fylgst að síðan þær hittust í Háskóla Íslands árið 1992. FréttAblAðið/SteFán
Ég VAr nýflUtt i
borginA og spUrði út í
strætisVAgnAferðir og
Hún kenndi mÉr á
fleirA sem tengdist
mínU nýjA borgArlífi.
ÞArnA Hófst okkAr
VinskApUr sem HefUr
stAðið óslitinn Upp frá
ÞVí.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
↣
1 7 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r36 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
1
7
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
3
8
-C
6
9
C
1
F
3
8
-C
5
6
0
1
F
3
8
-C
4
2
4
1
F
3
8
-C
2
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
0
s
_
1
6
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K