Fréttablaðið - 17.03.2018, Síða 28
Hátíðin Hönnunar-Mars fer fram í tíunda sinn um helgina og um 400 þátttakendur eru með í ár. Það er því
óhætt að segja að dagskráin í ár sé
fjölbreytt og allir ættu að finna eitt-
hvað við sitt hæfi.
Elín Þorgeirsdóttir, dagskrár-
stjóri hátíðarinnar, mun hafa í nógu
að snúast um helgina. „Ég verð á
hlaupum um bæinn enda er rosa-
lega margt að gerast. Ég ætla að nýta
helgina vel og reyna að sjá eins mikið
og ég mögulega get. Ég sem dagskrár-
stjóri er búin að vera að fylgjast með
viðburðunum fæðast, mikið í gegn-
um netið, þannig að ég er orðin mjög
spennt að sjá þá verða að veruleika.“
Spurð út í hvort hún mæli með
einhverjum ákveðnum viðburðum
fyrir þá sem vita ekki hvar þeir eiga
að byrja segir Elín: „Ég hvet alla til
að skoða heimasíðuna okkar því
þar er hægt að skoða dagskrána
eftir dögum, tegundum, svæðum og
fögum. En svo eru það þessar stóru
félagasýningar sem við mælum sér-
staklega með,“ segir Elín og tekur
sýningu FÍT í Hafnarhúsinu sem
dæmi. „Svo er mikið um að vera á
Korpúlfsstöðum, þar er Textílfélag-
ið með stóra sýningu og þar verða
uppákomur um helgina,“ segir Elín
sem setti saman meðfylgjandi lista
yfir spennandi viðburði á Hönn-
unarmars.
„Hátíðin er orðin rosalega stór
og flott og hönnuðir hafa verið að
undirbúa þetta í langan tíma þann-
ig að ég hvet auðvitað alla til að fara
og skoða dagskrána og upplifa.
gudnyhronn@frettabladid.is
Verður á hlaupum alla helgina
Elí n Þorgeirsdóttir, dagskrárstjóri HönnunarMars, mun hafa nóg að gera um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hafnarhús
l FÍT 2018 – ein af stærtu
sýningum HÖ-MA
Geysir HEIMA
l Theodora Alfredsdottir
l STUDIO A
l Ólöf Rögnudóttir x FÓLK REYKJA-
VIK
l SOUVENIR / MINNING
Korpúlfsstaðir
l Verðum í bandi – samsýning
meðlima Textílfélagsins
Hönnunarsafnið, Garðabæ
l Undraveröld Kron by Kronkron:
1.200 pör af skóm
l Safnið á röngunni með Einari
Þorsteini Ásgeirssyni
l ÐYSLEXTWHERE
Annað áhugavert
Harpa
Wave by GENKI INSTRUMENTS
MUN á Barónsstíg
Nýjungar kynntar á HönnMunar-
mars.
Gallerí Harbinger
ILLIKAMBUR – MILLA SNORRASON
X HANNA DÍS WHITEHEAD
MENGI Óðinsgötu
1+1+1+ Sweet Salone
Mælt með á HönnunarMars
Dagskrá Hönnunar-
Mars er einstaklega
fjölbreytt og spenn-
andi í ár. Dagskrá-
stjóri HönnunarMars
hvetur alla til að
kynna sér dagskrána
og setti saman lista
yfir nokkra spenn-
andi viðburði og sýn-
ingar fyrir lesendur.
Um helgina, af hverju ekki að …
Bjarki Rúnar
Sigurðarson eða
bara Bjarki, er einn
fremsti raftónlistar-
maður heimsins í
dag og, já, Ís-
lendingur. Hann er
meira að segja frá
Blönduósi, þar sem hann samdi sín
fyrstu lög. Bjarki hefur ekki mikið spilað
á Íslandi en nú gefst okkur Íslendingum
tækifæri til að sjá drenginn en hann spilar
klukkan hálf eitt á SonarClub sviðinu á
Sónar tónlistarhátíðinni sem fer fram í
Hörpu nú um helgina.
Pólski rithöfundurinn Bruno
Schulz var skotinn til bana af
nasistum þegar hann var tæp-
lega fertugur. Hann hefur oft
verið kallaður einn besti rithöf-
undur Póllands en eftir hann
liggja þó einungis tvær bækur:
Krókódílastrætið og Heilsuhæli
undir merki stundaglassins.
Hannes Sigfússon þýddi smá-
sagnasafnið Krókódílastrætið
árið 1994, en sögurnar í því byggja allar á
æsku höfundar þar sem líflegar lýsingar minna
helst á litrík málverk, en Bruno Schulz var einnig
myndlistarmaður.
Matreiðsluþætt-
irnir Ugly Deli-
cious á Netflix
eru svo mikið
meira en „bara“
matreiðsluþættir.
Þarna er kafað ofan í
kúltúrinn bak við nokkra þekkta og
minna „fína“ rétti og alla þá núansa
sem fylgja sögu matargerðar. Stjörnu-
kokkurinn David Chang er maðurinn
á bak við þessa þætti en hann ferðast
þarna um allan heim til að rann-
saka rétti eins og BBQ, djúpsteiktan
kjúkling og steikt hrísgrjón í víða sam-
henginu.
Lesa KróKódíLastræt-
ið eftir Bruno schuLz
sjá BjarKa á
sónar reyKja-
víK
horfa á ugLy
deLiciousPáskafríið nálgast og því til-
valið að gleðja börnin með
því að föndra svolítið páska-
skraut. Það má til dæmis klippa
greinar
og setja
í vasa
og festa
á þær
málað
pappírs-
skraut.
föndra pásKasKraut
1 7 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r28 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
helgin
1
7
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
3
8
-A
8
F
C
1
F
3
8
-A
7
C
0
1
F
3
8
-A
6
8
4
1
F
3
8
-A
5
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
2
0
s
_
1
6
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K