Fréttablaðið - 17.03.2018, Qupperneq 30
Katrín Halldóra Sig-urðardóttir leik- og söngkona á að baki annasama og langa sýningartörn í hlut-verki Ellyar á fjölum
Borgarleikhússins. Sýningin er afar
vinsæl, sextíu og fimm þúsund
Íslendingar hafa séð hana. Sýn-
ingarnar eru orðnar 138 talsins og
sú síðasta í bili í kvöld. Þær hefjast
aftur í haust enda virðist ekkert lát á
vinsældum. Þangað til leikur Katrín
Halldóra í gamanleiknum Sýningin
sem klikkar í leikstjórn Halldóru
Geirharðsdóttur.
Það er mikill erill í Borgarleikhús-
inu þegar blaðamann ber að garði.
Um leikhúsið allt er skrautklætt
fólk á ferð, syngjandi og raulandi
línurnar sínar. Frumsýning á Rocky
Horror nálgast.
Núllstillir sig
Katrín hefur nánast búið í Borgar-
leikhúsinu undanfarið. Hún hefur
líka verið í tveimur stórum verk-
efnum utan leikhússins. Hún er með
hlutverk í Ófærð 2 og tók einnig þátt
í Jólagestum Björgvins.
„Já, maður er stundum alveg
búinn á því eftir helgina. Mánu-
dagar eru rólegir dagar, þá geri ég
lítið. Reyni að sofa. Ná góðri hvíld.
Einhver sagði að ein sýning jafnaðist
á við heila vinnuviku á skrifstofu. Ég
trúi þessu, maður gefur allt í þetta,“
segir Katrín sem segir álagið bæði
andlegt og líkamlegt. Til að verja
sig álaginu hugleiðir hún og stundar
sjósund og kalda potta.
„Eftir langa sýningartörn er ég
algjörlega búin á því að öllu leyti og
þá er nauðsynlegt að hlusta á líkam-
ann og taka það alvarlega að hann
þarf að hvíla. Annars myndi maður
brenna út fljótlega. Ég reyni að sofa
eins lengi og ég get í törnum, það er
langbest fyrir röddina og þannig er
líkaminn þá búinn að hlaða sig fyrir
næstu átök. Eins hugleiði ég og fer
mikið í gufubað, sjósund og kalda
potta. Það er algjörlega brilljant
að dýfa sér ofan í, núllstillir mann
alveg – þú getur ekki hugsað um
neitt annað en að anda inn og út og
blóðflæðið í líkamanum spýtist af
stað og manni líður svo vel eftir á.“
Í miðasöluleik
Katrín hefur alið með sér draum um
að verða leikkona frá barnsaldri.
Móðir hennar, Ragnheiður Kristín
Hall, vann í miðasölunni í Þjóð-
leikhúsinu. Katrín fékk oft að koma
með henni í vinnuna.
„Það var líf mitt og yndi að fá að
vera þarna í leikhúsinu. Krakkar
fóru í búðarleik þegar þeir voru
litlir, ég fór hins vegar í miðasölu-
leik. Prentaði út miða og gaf fólki.
Svo hélt ég heilu leiksýningarnar í
fjölskylduboðum. Oft ansi drama-
tísk og þung verk. Lék kvalafulla
dauðdaga á gólfinu. Mesta sportið
fannst mér nefnilega að fara á full-
orðinsleikritin. Ég var mikið þarna,
að deyja úr draugahræðslu, þræða
gangana og fylgjast með fyrstu
fyrirmyndum mínum í leikhús-
inu. Ein sýning er mér sérstaklega
minnisstæð, Þrek og tár. Í henni
léku Steinunn Ólína, Edda Heið-
rún Backmann og Hilmir Snær. Ég
horfði oft á þessa sýningu. Og líka
eftir að hætt var að sýna hana, þá
horfði ég á hana á spólu heima hjá
mér. Ég man að þarna fann ég fyrst
þessa ógurlega sterku tilfinningu,
að mig langaði einn daginn til þess
að standa á sviði. Og framkalla líka
þessar sterku tilfinningar hjá áhorf-
endum,“ segir Katrín frá.
Er „nobbari“
Katrín ólst upp í Mosfellsbæ þar
til hún varð tíu ára. Þá flutti hún á
Neskaupstað með fjölskyldu sinni.
„Ég var þar öll unglingsárin. Ég segi
alltaf að ég sé frá Neskaupstað.
Þar er heima fyrir mér. En svo var
ég reyndar að flytja í Mosfellsbæ
núna og mér finnst það æðislegt.
Allt í einu púslaðist allt saman.
Mér fannst ég alltaf vera gestur í
þeim hverfum þar sem ég bjó áður
í Reykjavík en núna þegar ég er að
keyra heim úr vinnunni, þá finnst
mér ég vera að keyra heim.
Ég vissi ekki að umhverfið hefði
svona mikil áhrif á mig. Ég myndi
auðvitað finna þessa tilfinningu líka
á Neskaupstað. Þetta eru staðir þar
sem mér finnst gott að vera,“ segir
Katrín. „Ég segi alltaf að ég sé „nobb-
ari“ því föðurættin er Norðfirðingar.
Ég kemst sjaldan heim á Neskaup-
stað vegna vinnunnar. Áður fór ég
alltaf um hver jól. Núna fer ég helst
á sumrin. Þetta er algjör paradís,“
segir Katrín og nefnir nokkra staði
sem koma upp í hugann. „Fanna-
dalurinn, Seldalurinn, ég gæti
haldið áfram. Mér þykir meira að
segja vænt um Oddsskarðið sem
ég þræddi við hvert tækifæri um
leið og ég var komin með bílpróf,
í öllum veðrum. Til að komast á
böllin!“ Útskýrir hún og hlær. „Nú
eru komin göng svo foreldrar þurfa
ekki að liggja andvaka eftir ungl-
ingunum sínum. Ég skildi aldrei af
hverju mamma beið alltaf eftir mér
þegar ég var á balli. Ég skil það auð-
vitað í dag.“
Katrín á tvö eldri systkini. Bæði
starfa sem lögfræðingar. Faðir
hennar, Sigurður Rúnar Ragnarsson,
er sóknarprestur á Neskaupstað.
Móðir hennar, Ragnheiður, vinnur
á skrifstofu Síldarvinnslunnar.
„Þau tengjast ekki leikhúsheim-
inum á nokkurn hátt. Ég hefði aldr-
ei fengið þessa innsýn í heim leik-
listar ef það hefði ekki verið vegna
mömmu. Þó að nú væri ég flutt langt
í burtu frá leikhúsinu þá var samt
gott að flytja á Neskaupstað. Erfitt
stundum að vera í fámenninu, en
gott. Ég verð alltaf sveitastelpa. Það
breytist aldrei. Ég þarf að hafa svo-
lítið pláss, ég þarf að sjá til fjalla og
hafa kyrrð. Það er það sem ég er alin
upp við og sæki í.“
Ekki á réttri hillu
Katrín fór í framhaldsskóla í Nes-
kaupstað. Að honum loknum flutt-
ist hún til Reykjavíkur. Staðráðin í
því að verða leikkona. Það átti hins
vegar eftir að taka Katrínu þrjár til-
raunir að hljóta inngöngu í Leik-
listarskólann.
„Það er erfitt að fá höfnun. En
þetta átti allt að fara svona. Ég gerði
margt á þessum árum áður en ég
komst að í Leiklistarskólanum.
Sumt gekk vel, annað ekki, segir
hún og brosir út í annað. „Ég var til
dæmis ekki á réttri hillu í íslensku-
námi í Háskóla Íslands. Ég náði
nokkrum mánuðum þar. Ég segi oft
frá því að síðasta kennslustundin
snerist um beygingarhátt þátíðar á
tímum víkinga. Þá bara gafst ég upp
og hætti að mæta.
Ég hef líka mikla ástríðu fyrir
matreiðslu. Ef ég væri ekki í leik-
list eða söng, þá væri ég kokkur. Ég
eldaði á veitingastöðum og á leik-
skóla Hjallastefnunnar. Naut þess
mjög. Ég reyndi svo aftur inngöngu
í Leiklistarskólann og var hafnað í
annað sinn,“ segir Katrín sem ákvað
að reyna fyrir sér í söng.
Sterkari til leiks
„Ég fór út til Danmerkur í söngnám
og var þar í heilan vetur. Þegar ég
kom heim komst ég inn í söngnám
á djass- og rokkbraut í FÍH. Það var
æðislegur tími, ég fílaði mig svo
svakalega í djassinum. Í allri þeirri
músík og senu. Ég fann að ég gæti
gert þetta allan daginn. Allt lífið!
En samt fann ég fyrir þessari löngun.
Að læra leiklist. Ég ákvað að láta slag
standa og sækja um í þriðja sinn
og ef ég á að vera alveg hreinskilin
þá var það bara svolítið erfitt fyrir
egóið. Ég sagði til dæmis engum
frá því að ég væri að þreyta prófin
í þriðja sinn,“ segir hún.
„En svo kemst ég inn. Og þá gerist
það að ég finn fyrir sorg. Þyrfti ég
að kveðja sönginn? En svo fer allt
eins og það á að fara. Ég áttaði mig á
því að ég kom sterkari til leiks með
sönginn í farteskinu. Ég fann að ég
gat haldið söngkonudraumnum lif-
andi í náminu. Ég var með frábæra
söngkennara, Björk Jónsdóttur og
Kjartan Valdimar píanóleikara.
Stundum voru bestu stundir mínar
í náminu með þeim. Ég finn fyrir
svo sterkri frelsistilfinningu þegar
ég syng. Og það skemmtilegasta
sem ég geri er að leika. Að fá að gera
hvort tveggja, það er nú gæfan ein.“
Kraftur og frelsi
Katrín fékk sitt fyrsta hlutverk í
Þjóðleikhúsinu, í verkinu Í hjarta
Hróa hattar. „Það var töfrum líkast
að ég skyldi fá hlutverk í Þjóðleik-
húsinu strax eftir útskrift. Og tengja
þannig við æskudrauminn,“ segir
Katrín.
Katrínu hafði alltaf dreymt um
að syngja lög Ellyar. Þegar Gísli Örn
Garðarsson leikstjóri hafði sam-
band við hana þurfti hún ekki að
hugsa sig um.
„Fólk sagði stundum við mig að ég
líktist henni svolítið. Og ég var upp
með mér. Mig hafði lengi langað að
gera eitthvað úr lögum Ellyar. Svo
er ákveðið að setja upp sýningu um
Lék í 138 sýningum á leikárinu
Ég hef lagt hjartað að veði í þessa sýningu. Ég held það hafi skilað sér,” segir Katrín. FrÉttablaðið Eyþór
Katrín Halldóra
Sigurðardóttir fór
krókaleið að draumi
sínum að verða leik-
kona. Með viðkomu
í eldhúsi í leik-
skóla, þrælþungum
kennslustundum í
beygingarfræði í Há-
skólanum og söng-
námi í Danmörku.
Katrín komst inn í
leiklistarskólann í
þriðju tilraun.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Ferillinn var nýhaF-
inn. Þetta heFði getað
orðið minn banabiti. Ég
hugsaði, Þá er eins gott
að gera Þetta vel.
1 7 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r30 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
1
7
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
3
8
-9
5
3
C
1
F
3
8
-9
4
0
0
1
F
3
8
-9
2
C
4
1
F
3
8
-9
1
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
2
0
s
_
1
6
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K