Fréttablaðið - 17.03.2018, Qupperneq 8
DJ námskeið fyrir 14 til 17 ára í útibúi Íslandsbanka í Norðurturni
17. mars kl. 13–14
Natalie Gunnarsdóttir, öðru nafni DJ Yamaho, fer yfir það helsta
sem allir plötusnúðar þurfa að hafa á hreinu og fá þátttakendur
að spreyta sig á samskonar tækjabúnaði og er notaður á stærstu
næturklúbbum heims.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Þeyttu
skífum með
DJ Yamaho
Krakkabankinn
is
la
nd
sb
an
ki
.is
@
is
la
nd
sb
an
ki
4
4
0
4
0
0
0
umhverfismál „Mér finnst svo sér-
kennilegt að þessi litla þjóð okkar
skuli ekki vera framsýnni en það
að vera með flugvöll í hjarta mið-
bæjarins,“ segir listakonan Guðrún
Kristjánsdóttir, íbúi á Nönnugötu í
miðbæ Reykjavíkur.
Guðrún og eiginmaður henn-
ar, Ævar Kjartansson útvarps-
maður, skrifuðu í fyrrasumar bréf
til umhverfis og skipulagsráðs
Reykjavíkurborgar vegna hávaða- og
olíumengunar frá flugumferð.
„Hvunndagurinn verður á ein-
hvern óljósan hátt óttablandinn.
Sérstaklega á góðviðrisdögum, því þá
fer hávaðinn yfir öll velsæmismörk,“
segir í bréfi hjónanna sem lagt var
fyrir á síðasta fundi umhverfis- og
skipulagsráðs með umsögn frá heil-
brigðiseftirliti Reykjavíkur.
Hjónin hafa búið við Nönnugötu
í 45 ár. Þau segja hávaðann og olíu-
þefinn í vissri vindátt angra þau
mikið. Í fyrrasumar hafi þó keyrt
um þverbak.
„Á sólríkum dögum má oft telja
smárellur og þyrlur sem taka á loft á
4 til 5 mínútna fresti og valda ólýsan-
legum hávaða. Í brekkunni frá Hall-
grímskirkju niður í Hljómskálagarð
er hávaðinn sennilega hvað mestur,
en allur miðbærinn er undirlagður,“
er rakið í bréfinu.
„Nú er svo komið að flugvéla-
hávaðinn nær fram yfir miðnætti
og byrjar eldsnemma á morgnana.
Umferð þyrla hefur aukist stórlega
og útsýnisflug og/eða kennsluflug
einnig.“
Umhverfisráð fékk umsögn heil-
brigðiseftirlitsins. Hún er byggð
á gögnum frá Isavia, sem annast
rekstur flugvalla hérlendis.
Kemur fram að þótt „flughreyf-
ingum“ við Reykjavíkurflugvöll hafi
vissulega fjölgað 2014 til 2016 miðað
við næstu þrjú ár þar á undan hafi
„flughreyfingum“ við völlinn fækkað
sé horft tuttugu ár aftur í tímann.
„Þessi gögn styðja því ekki þá
fullyrðingu kvartanda að stóraukin
flugumferð sé yfir miðbæ Reykja-
víkur,“ segir í umsögninni.
Þá kemur fram að heilbrigðis-
eftirlitið hafi ekki gert mælingar
á hávaða frá flugumferð í tilefni
kvartana. „Ástæðan er sú að ekki er
hægt að greina hávaða frá flugi frá
bakgrunnshávaða, svo sem umferð.“
Guðrún segir það koma mjög
óvart á að flugumferð sé sögð hafa
dregist saman. Það sé ekki sú tilfinn-
ing sem þau Ævar hafi. Augljóst sé til
dæmis að þyrluflug hafi aukist mikið.
Einkaþotum fjölgi einnig.
„Það sem kemur mér líka á óvart
er að umsögn heilbrigðiseftirlitsins
sé beint upp úr svörum Isavia. Það
er eins og þeir hafi engar rannsóknir
sjálfir gert,“ segir Guðrún.
Að sögn Guðrúnar eru þau ekki
að kvarta stórlega undan áætlunar-
flugi. „Það er miklu meira álag frá
litlum rellum sem gefa frá sér mikinn
hávaða,“ undirstrikar hún. Fólk ætti
að spyrja sig hvort það vilji menga
höfuðborgina með hávaða.
Þrátt fyrir umsögn heilbrigðis eftir-
litsins bókar umhverfis- og skipu-
lagsráð að mikilvægt sé að brugðist
verði við kvörtunum íbúa vegna
aukins hávaða af flugumferð. Flug-
rekstraraðilar eigi eftir föngum að
minnka ónæði sem íbúar verða fyrir.
„Svo virðist sem það sé einkum
hringsól lítilla flugvéla og þyrlu-
flug sem veldur mestu ónæði. Ráðið
minnir á að fyrir liggur samningur
milli ríkis og borgar frá 25. október
2013 um að innanríkisráðuneytið
og Isavia skuli hafa forgöngu um að
kennslu- og einkaflugi verði fundinn
nýr staður,“ segir ráðið.
gar@frettabladid.is
Flugvélar að æra þau Ævar og Guðrúnu
Guðrún Kristjánsdóttir og Ævar Kjartansson á Nönnugötu segja flugumferð keyra um þverbak í miðbænum. Heilbrigðiseftirlitið vitnar
til Isavia um að flugumferð hafi minnkað. Umhverfisráð Reykjavíkur minnir á samkomulag um nýjan stað fyrir einka- og kennsluflug.
Guðrún Kristjánsdóttir og Ævar Kjartansson segja sér vart vært í garði sínum á Nönnugötu á góðviðrisdögum vegna
ólýsanlegs hávaða frá flugumferð. „Hvunndagurinn verður á einhvern óljósan hátt óttablandinn.“ Fréttablaðið/Valli
Það sem kemur mér
líka á óvart er að
umsögn heibrigðiseftirlitsins
sé beint upp úr svörum
Isavia. Það er eins og þeir
hafi engar rannsóknir sjálfir
gert.
Guðrún Kristjánsdóttir listakona
1 7 . m a r s 2 0 1 8 l a u G a r D a G u r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
1
7
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
3
8
-B
7
C
C
1
F
3
8
-B
6
9
0
1
F
3
8
-B
5
5
4
1
F
3
8
-B
4
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
0
s
_
1
6
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K