Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.03.2018, Qupperneq 108

Fréttablaðið - 17.03.2018, Qupperneq 108
17. mars Tónlist Hvað? Tónleikar á 100 ára afmæli sjálfstæðis Lettlands Hvenær? 15.00 Hvar? Hannesarholt, Grundarstíg Lettnesku tónlistarkonurnar Dr. Dzintra Erliha, píanó, og Emma Aleksandra Bandeniece, selló, halda tónleika í Hannesarholti í dag. Til- efnið er 100 ára afmæli sjálfstæðis Lettlands. Lettar gleyma því ekki að Íslendingar voru fyrstir þjóða til að veita stuðning þegar Lettland lýsti yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum árið 1991, í tíð Jóns Baldvins Hannibals- sonar sem utanríkisráðherra. Hvað? Grafík Hvenær? 22.00 Hvar? Fish house, Grindavík Hljómsveitin Grafík fagnaði því með tónleikum í lok síðasta árs að 30 ár voru liðin frá útgáfu plötunnar Leyndarmál. Það þóttist takast það vel að eftirspurn hefur verið eftir því síðan að leikið sé meira og víðar. Nú er það Menningarhátíðin í Grinda- vík. Viðburðir Hvað? Tveir fyrirlestrar í boði Grikk- landsvinafélagsins Hellas Hvenær? 14.00 Hvar? Þjóðarbókhlaðan „Jesús sem heimspekingur: Heim- spekileg stef í samstofna guðspjöll- unum.“ Fyrirlesari dr. Rúnar M. Þor- steinsson prófessor við guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands, fjallar út frá væntanlegri bók sinni, „Jesus as Philosopher“, um nokkur heimspekileg stef í guð- spjöllum Nýja testamentisins sem virðast leggja áherslu á heimspeki- legt samhengi Jesú. „Blálogalandið í suðri.“ Dr. Atli Harðarson kynnir okkur Grikkland í máli og myndum, en þar hefur hann víða farið um héruð og eyjar á undanförnum árum og segir frá fögrum og merkilegum stöðum sem hann hefur heimsótt. Atli er landsþekktur skólamaður, fyrrverandi skólameistari, heim- spekingur og doktor í uppeldis- og Pi pa r\T BW A SAMKEPPNI UM KÓRLAG ALDARAFMÆLIS FULLVELDIS ÍSLANDS Kórlaginu (í raddsetningu fyrir blandaðan kór án undirleiks) skal skila á skrifstofu afmælisnefndar Kirkjustræti 8 fyrir kl. 16, 20. júlí 2018 merkt „Samkeppni um kórlag“. Verk sem berast eftir auglýstan skilafrest verða ekki gjaldgeng í samkeppnina. Þegar úrslit liggja fyrir verður tónskáldinu falið að útsetja lag sitt fyrir blandaðan kór og sinfóníuhljómsveit og verður greitt sérstaklega fyrir þá útsetningu lagsins. Tillagan skal merkt dulnefni og nöfn höfunda eiga að fylgja í lokuðu umslagi merktu dulnefninu. Nánari upplýsingar og samkeppnisreglur er að finna vefsíðu afmælisársins www.fullveldi1918.is og www.sinfonia.is. www.fullveldi1918.is Afmælisnefnd í samvinnu við Sinfóníuhljómsveit Íslands efnir til samkeppni um nýtt kórlag sem frumflutt verður 1. desember 2018 á hátíðardagskrá í Hörpu. Kórlagið skal samanstanda af frumsömdu og óbirtu ljóði og lagi fyrir blandaðan kór. Verkið skal hæfa tilefninu og henta vel til söngs. Verðlaunafé er 1.000.000 kr. sem skiptist til helminga milli tónskálds og ljóðskálds. Dómnefnd skipa fulltrúar Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sem fer með formennsku í dómnefndinni, Tónskáldafélags Íslands, Rithöfundasambands Íslands, Félags tónskálda og textahöfunda, Félags íslenskra hljómlistarmanna og Ríkisútvarpsins, auk fulltrúa afmælisnefndar. Hvað? Hvenær? Hvar? Laugardagur Hvar@frettabladid.is menntunarfræðum og mikilvirkur fræðimaður og höfundur ýmissa rita. Hvað? Afmælisfagnaður og lokapartí HönnunarMars Hvenær? 21.00 Hvar? Út í bláinn, Perlunni HönnunarMars stendur á tímamót- um. Hátíðin fagnar 10 árum og því er vert að staldra við og stilla stefnuna. En svo fer allt í hringi og kannski er ekki nema við hæfi að fagna fortíð, framtíð og nútíð með snúningi í hinni einu sönnu Perlu, sem einmitt hefur tekið hringinn og er sannar- lega komin aftur. Fögnum árunum, árangrinum og nýjum tímum saman á veitingastaðnum Út í bláinn í dag. Hvað? Grapíka setur upp andlitið Hvenær? 14.00 Hvar? Hafnarhúsið Um leið og Grapíka þakkar kærlega fyrir allar frábæru tillögurnar sem bárust í lógósamkeppnina getur hún varla beðið eftir að setja upp sitt nýja andlit. Komið og fagnið með okkur þegar vinningshafi lógósamkeppn- innar tekur við viðurkenningu kl. 14. Hvað? Þeyttu skífum með DJ Yamaho Hvenær? 13.00 Hvar? Íslandsbanki, Hagasmára Í dag verður boðið upp á DJ nám- skeið sem hentar sérstaklega krökkum á aldrinum 12 til 17 ára. Natalie Gunnarsdóttir, öðru nafni Dj YAMAHO, fer yfir það helsta sem allir plötusnúðar þurfa að hafa á hreinu og fá þátttakendur að spreyta sig á samskonar tækjabúnaði og er notaður á stærstu næturklúbbum heims. Viðburðurinn er haldinn í útibúi Íslandsbanka í Norðurturni (Hagasmára 3 við Smáralind). Sýningar Hvað? Ex libris | Sýning á bókmerkjum Hvenær? 13.00 Hvar? Borgarbókasafnið, Tryggvagötu Í dag eru bókmerki ekki algeng sjón, en áður fyrr voru slík skrautmerki hönnuð af listafólki og sett innan á bókarkápur til að tilgreina eiganda þeirra. Óhætt er að segja að um er að ræða menningarverðmæti sem lítið hefur farið fyrir og gaman er að kynna betur fyrir yngri kynslóðinni. Það þótti því kjörið að fá nemendur við Myndlistaskólann í Reykjavík til að spreyta sig á hönnun bókmerkja með skírskotun í hefðina en um leið með skýra tengingu inn í nútímann. Nemendum var jafnframt gert að setja fram hönnunarferli sitt með skissum og myndum sem gefa til kynna hvaðan hugmyndir þeirra eru sprottnar. Hvað? Opnun – Elizabeth Peyton – The Universe of the World-Breath Hvenær? 17.00 Hvar? Kling og Bank, Marshallhúsinu Kling og Bang kynnir með stolti fyrstu sýningu Elizabeth Peyton á Íslandi sem verður opnuð í dag. Á sýningunni verða níu verk unnin á árunum 2017 og 2018: tvö einþrykk, ein teikning með litblýanti og pastel, dj Yamaho fer yfir það helsta sem plötusnúðar þurfa að hafa á hreinu í Íslandsbanka, Hagasmára í dag kl. 13.00. 1 7 . m a r S 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r56 m e n n i n G ∙ F r É T T a B L a ð i ð 1 7 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :2 5 F B 1 2 0 s _ P 1 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 3 8 -9 0 4 C 1 F 3 8 -8 F 1 0 1 F 3 8 -8 D D 4 1 F 3 8 -8 C 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 2 0 s _ 1 6 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.