Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Side 8
8 28. mars 2018fréttir Nara beit tunguna úr eiginmanni sínum: „Ég ætlaði aldrei að meiða neinn“ Þ að sem kom fyrir manninn minn er hræðilegt. En ég valdi ekki að gera þetta við hann,“ segir Nara Walker sem þann 13. mars síðastliðinn hlaut 12 mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir lík- amsárás og stórfellt ofbeldisbrot í nánu sambandi. Nara var sakfelld fyrir að hafa í nóvember síðast- liðnum veist með ofbeldi að eigin- manni sínum og bitið í tungu hans þannig að hún fór í sundur. Þá var hún einnig sakfelld fyrir að hafa veist með ofbeldi að konu sem var gestur á heimili þeirra hjóna. Nara kveðst sjálf vera fórnarlamb áralangs heimilisofbeldis af hálfu eiginmanns síns og leggur áherslu á að tungubitið hafi verið ósjálf- ráð viðbrögð í hita leiksins. Hún hyggst áfrýja niðurstöðu héraðs- dóms. Í samtali við DV segist Nara hafa lagt fram kæru á hendur manninum sínum fyrir heimilis- ofbeldi í nóvember síðastliðnum. Hún kveðst um leið hafa lagt fram sannanir á borð við vitnisburð vin- konu sinnar og móður, auk einka- samtala á Facebook þar sem eigin- maður hennar játar að hafa beitt hana líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi og að hafa byrlað henni ólyfjan. Enn sem komið er hafi hún ekkert heyrt frá lögreglunni en hún segist vita að maður henn- ar hafi verið kallaður til yfirheyrslu tíu dögum áður en dómur féll í málinu. „Það var mjög erfitt að fara til lögreglunnar en ég er glöð að ég hafði mig í það. Ég vona að það verði hvatning fyrir aðrar kon- ur í þessari stöðu.“ Nara fæddist í Ástralíu árið 1990 og ólst upp í strjálbýli suð- austur af Queensland hjá foreldr- um sínum og á hún eldri systur. Strax í barnæsku fékk hún áhuga á listum. „Árið 2010 flutti ég til Ósló- ar og bjó þar í eitt ár og eftir það flutti ég aftur til Ástralíu, til Bris- bane, og hóf háskólanám í mynd- list.“ Elti eiginmann sinn til Íslands Eiginmaður Nöru er franskur og kynntust þau að hennar sögn árið 2013, á háskólabar í Brisbane. Í dómi kemur fram:   Ákærða kvað B hafa orðið árásargjarnari með árunum, en þau hafi verið saman í fjögur og hálft ár. Í seinni tíð hafi ákærða orðið honum háð.  Nara kveðst standa við þennan framburð sinn fyrir dómnum og segir að eiginmaður hennar hafi beitt hana andlegu, líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi í fjölmörg skipti. Hún segir að fyrsta skiptið hafi verið nokkrum mánuðum eft- ir að samband þeirra hófst. Hún fluttist til Íslands í október árið 2016, eftir að eiginmanni hennar bauðst tímabundið starf hér á landi. Hún segir að í upphafi hafi staðið til að þau myndu að- eins dvelja á Íslandi í þrjá mánuði. „Mig langaði að styðja við hann og hans feril og við vorum sam- mála um að þetta væri skref í rétta átt fyrir hann og okkur. Áður en ég flutti til Reykjavíkur þá bjugg- um við í London og þar giftum við okkur í apríl 2016. Hann flutti til Ís- lands nokkrum mánuðum á und- an mér og ég varð eftir í London og passaði húsbátinn okkar.“ Á öðrum stað í dómnum segir: Þau hafi flutt til Íslands. Við það hafi ákærða yfirgefið bakland sitt og starfsumhverfi. Hér á landi hafi B látið ákærðu fá peninga til að hafa fjármuni á milli handa. Nara kveðst hafa verið í afar viðkvæmri stöðu eftir flutningana til Íslands. Hún hafi ekki verið með atvinnuleyfi eða íslenska kenntölu og ekki þekkt neinn hér á landi nema vinnufélaga eiginmanns- ins. Eiginmaður hennar hafi verið í vinnu sem verktaki hjá fyrirtæki sem hafði útvegað honum hús- næði og bíl. „Hann skammtaði mér vasapeninga mánaðarlega og ef ég hagaði mér ekki nógu vel að hans mati þá refsaði hann mér með því að láta mig ekki fá neitt.“ Í dómnum kemur fram að Nara hafi sagt lögreglu að eiginmaður hennar hafi í þrígang ráðist á hana hér á landi og lamið, að meðtöldu umræddu kvöldi. Á öðrum stað kemur fram að hún hafi lýst því að eiginmaður hennar hefði áður gefið henni fíkniefni án hennar vitundar. Nara segir þetta satt og rétt. Hún segir að á þeim tíma sem atvikið átti sér stað hafi hún verið farin að hugleiða alvarlega að yfir- gefa eiginmann sinn. „Ég var lengur með honum því við vorum gift og það var meiri skuldbinding. Ég var auðvitað bara ástfangin, ég var með þessi rósrauðu gleraugu. Ég vildi laga hann.“ Segist hafa verið byrluð ólyfjan Í niðurstöðu dómsins segir: „Annars vegar er ákærðu gefið að sök að hafa klórað brotaþolann B í andlitið, slegið hann og bitið í tungu hans þannig að tungan fór í sundur. B er eiginmaður ákærðu. Hins vegar er ákærðu gefið að sök að hafa veist að brotaþolanum C, m.a. tekið í hár hennar og haldið í það meðan hún hristi og ýtti henni til og frá, klórað í andlit hennar og bitið og klórað í fingur henn- ar.Ákærða neitar sök. Hefur hún lýst því að eiginmaður hennar og brotaþolinn C hafi veist að henni með líkamlegu ofbeldi umrætt sinn. Hafi hún gripið til neyðar- varnar gagnvart árásinni. Fram- burð hennar fyrir dóminum verður að skilja á þann veg að hún í raun viðurkenni að hafa bitið hluta tungunnar úr ákærða, en hún kveðst hafa verið í sjokki og ekki áttuð á því sem var að gerast.“ Hvað varðar atburði kvölds- ins þann 9. nóvember síðastliðinn þá kveðst Nara standa við frásögn sína fyrir dómnum sem er á skjön við framburð eiginmanns hennar og hinnar konunnar.  Fram kem- ur í dómnum að umrætt kvöld hafi hún og eiginmaður verið úti að skemmta sér ásamt umræddri konu og bandarískum karlmanni og var síðan haldið heim til þeirra hjóna. Þar hafi átök átt sér stað sem leiddu til þess að Banda- ríkjamaðurinn yfirgaf samkvæm- ið. Hún bendir á að framburður hennar og Bandaríkjamannsins af atburðum kvöldsins hafi í megin- atriðum verið sá sami. Við yfirheyrslur sagði konan sem var gestur á heimili þeirra að eiginmaður Nöru hafi boðið upp á vodkaskot sem innihélt kókaín. Nara segir hann hafa byrlað henni eiturlyfinu. Hún hafi ekki vitað að kókaín var í drykknum. Fyrir dómi hélt Nara því fram að hún og bandaríski karlmaður- inn hefðu reynt að yfirgefa íbúð- ina en eiginmaður hennar hafi meinað Nöru að fara. Bandaríkja- maðurinn hafi verið komin fram á ganginn fyrir utan íbúðina og segir Nara að eiginmaður hennar hafi ýtt honum niður stigann með þeim afleiðingum að Bandaríkja- maðurinn hlaut brákað rifbein. „Maðurinn minn stóð yfir honum og ég stillti mér upp á milli þeirra.“  Nara segir að maðurinn hennar hafi því næst kýlt hana margsinnis. Hún segir hann því næst hafa bor- ið hana inn í íbúðina, lagt hana þar á sófa og varnað henni farar. „Ég náði andanum aftur og ætlaði að fara en hann hélt þéttingsfast um handleggina á mér.“  Nara segir að maðurinn henn- ar hafi komið með andlit sitt nær hennar og hún hafi grátið og viljað fara. „Ég var dauðskelkuð. Hann sagði upphaflega að hann hefði verið að reyna að róa mig en síðar meir sagði hann að ég hefði nálg- ast hann að fyrra bragði, sem mér finnst mjög undarlegt þar sem að hann er höfðinu hærri en ég. Ég held að hann hafi gert sér grein fyrir að ég væri að fara frá honum endanlega og að ég myndi ekki vera „hans“ lengur. Kannski var þetta eitthvað sem hann gerði í hita leiksins. Ég veit það ekki al- mennilega. Hann hélt svo fast í handleggina á mér að ég gat ekki hreyft mig. Ég fékk marbletti á handleggina eftir þetta. Ég var ekki í stöðu til að komast í burtu frá honum. Það var eins og hann yrði að fá mig.“   Nara kveðst hafa orðið stjörf af hræðslu með andlit mannsins svo nærri hennar og þegar hann hafi reynt að kyssa hana þá hafi það gerst, að hún beit helminginn af tungu hans, í einum bita. „Hann þvingaði tungunni upp í mig og þetta voru ósjálfráð við- brögð. Ég var í áfalli,“ segir Nara og bætir við að á þessum tímapunkti hafi hún ekki fundið fyrir tungu mannsins uppi í munninum á sér. Hún segist gera ráð fyrir að meint lyfjabyrlun fyrr um kvöldið hafi spilað þar inn í. Hún kveðst á ein- hverjum tímapunkti hafa spýtt tungubitanum út úr sér á gólfið og því næst hafi hin konan skellt henni niður í gólfið og haldið henni niðri, líkt og fram kemur í framburði Nöru fyrir dómnum. Þar segir að Nara hafi „reynt að ýta konunni af sér og þær hafi togað í hárið á hvor annarri.“ Margt hafi verið í gangi og „ákærða hafi gert allt til að ná C af sér.“ Nara segist hafa náð að rífa sig í burtu og farið að stiga upp á efri hæð í íbúðinni og sest þar. „Ég skalf og grét og líklega var ég að fá einhvers konar taugaáfall, ég átti allavega mjög erfitt með að anda. Þegar lögreglan kom á staðinn þá benti maðurinn minn á mig og sagði: „Hún gerði þetta, hún gerði þetta,“ en ég reyndi að segja þeim að ég hefði orðið fyrir árás þetta

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.