Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Síða 22
22 28. mars 2018fréttir Þ etta er hefndaraðgerð. Þessir aðilar eru dæmdir þjófar og þurftu að endur­ greiða okkur háa fjárhæð vegna þess að þeir innheimtu gjald í ára raðir sem okkur bar ekki að greiða. Síðan ætla þeir að halda þjófnaðinum áfram með upp­ færðum leigu samningi og henda þeim út sem ekki skrifa undir. Þeir rændu ekki bara peningunum okkar heldur líka áhyggjulausu ævikvöldi,“ segir Ólafur Guð­ mundsson, íbúi að Boðaþingi 22 í Kópavogi. Ólafur og eiginkona hans, Súsanna O. Jónmundsdóttir, fengu á dögunum bréf þess efnis að þeim yrði gert að yfirgefa leigu­ íbúð sína fyrir þann 1. október næstkomandi. Húsið er í eigu Naustavarar ehf. sem er félag í eigu Sjómannadagsráðs og er ætlað einstaklingum sem eru 60 ára eða eldri. Ólafur og Súsanna eru í hópi fimm einstaklinga og hjóna sem verður hent út á guð og gaddinn, í þeim hópi er ein kona sem er 90 ára gömul. Sigur vannst í héraðsdómi Naustavör ehf. á 201 íbúð í Reykja­ vík, Kópavogi og Hafnarfirði, þar af 95 íbúðir í Boðaþingi 22 og 24. Upp úr 2011 fór að kvisast að stjórnendur Naustavarar ehf. væru ekki að fara að húsaleigulög­ um. Ástæðan var sú að innheimt var húsaleiga að viðbættu sérs­ töku húsgjaldi. Húsgjaldið átti að­ eins að fara í að greiða kostnað við rekstur sameignar húsanna en í ljós kom að ýmis annar kostnaður, meðal annars stjórnunarkostnað­ ur, var greiddur með húsgjaldinu. Deilurnar drógust á langinn árum saman en að endingu sáu fimm leigutakar sér ekki annað fært en að fara með málið fyrir dómstóla. Héraðsdómur kvað upp dóm sinn  í febrúar 2017  og var niður­ staðan skýr. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að Naustavör ehf. hefði um árabil ofrukkað eldri borgara með innheimtu hús­ gjaldsins. Áðurnefnd hjón, Ólafur og Súsanna, sem fluttu inn árið 2013 fengu til dæmis um 500 þús­ und krónur endurgreiddar frá Naustavör. Martröðin hefst Ólafur segir að þá hafi martröð­ in fyrst byrjað. Eftir dómsupp­ kvaðningu fóru forsvarsmenn Naustavarar ehf. í allar íbúðir og kynntu nýjan leigusamning fyrir íbúum. Þar var búið að hækka húsaleiguna sem nam gjaldinu ólöglega auk þess sem gerð var sú krafa að eldri borgararnir myndu afsala sér þeirri endurgreiðslu sem héraðsdómur hafði dæmt þeim. Að öðrum kosti yrði þeim sagt upp leigusamningi og gert að yfirgefa húsnæðið. „Þetta var með ólíkindum. Flestir íbúar fögn­ uðu sigri og töldu að málinu væri lokið þegar dómurinn lægi fyrir. Maður vonaði að forsvarsmenn Naustavarar ehf. myndu una hon­ um eins og almennilegir borgarar. Það var öðru nær,“ segir Ólafur. Hann segir að íbúar hafi upp­ lifað mikla valdbeitingu og niður­ lægingu. „Það vill enginn vera í húsnæðishrakningum á gamals aldri, að leita sér að nýrri íbúð til þess að leigja með tilheyrandi óvissu og raski. Það voru margir íbúar grátandi hérna á göngunum því fólk vissi ekki sitt rjúkandi ráð. Það er erfitt að sætta sig við að ein­ hver hafi brotið á manni í mörg ár og þegar dómur er kveðinn upp þá hafi viðkomandi ekki meiri sóma­ kennd en svo að hann hótar manni húsnæðismissi nema maður skrifi undir skjal þar sem maður afsalar sér skaðabótunum. Þetta er ekkert annað en fjárkúgun,“ segir Ólafur. Hann og Súsanna hafi haft of ríka réttlætiskennd og neitað að skrifa undir þennan viðauka við leigu­ samninginn, það sama gerðu um átta aðrir. Uppsögn leigu Samningum þeirra var sagt upp í mars fyrir ári en uppsagnarfrestur­ inn var tólf mánuðir. „Við höfðum ekkert heyrt í forsvarsmönnum Naustavarar og innst inni vonaði maður að þeir myndu láta sér segj­ ast og leyfa þeim sem þeir brutu á að halda áfram að leigja húsnæðið,“ segir Ólafur. Naustavör hefði síðan getað boðið nýjum leigutökum upp á þennan endurbætta samning og þeir þá metið hann í samræmi við aðra kosti á húsnæðismarkaði fyrir eldri borgara. „Það er auðveldara að koma að hreinu borði en að þurfa að kyngja stoltinu og sætta sig við svona óréttlæti,“ segir Ólafur. Á dögunum barst síðan bréf þar sem Ólafi og eiginkonu hans er gert að yfirgefa húsnæðið fyrir 1. október 2018. „Þetta er afar sárt því okkur líður afar vel í þessu húsnæði. Mað­ ur getur hins vegar ekki látið bjóða sér hvað sem er,“ segir Ólafur. Þau eru ekki ein, eins og áður segir, en alls verður fimm einstaklingum og hjónum gert að yfirgefa húsnæðið fyrir 1. október næstkomandi. Þar af ein kona um nírætt. Sanngirnissjónar- mið ræður för „Það eru fyrst og fremst sanngirnis­ sjónarmið gagn­ vart yfirgnæfandi meirihluta leigjenda sem liggja að baki uppsögnum þessara fáu leigusamninga sem um ræðir,“ segir Sigurður Garðarsson, framkvæmdastjóri Naustavarar ehf., í skriflegu svari til DV. Hann segir að um erfitt mál sé að ræða en kjarninn sé sá að mánaðarleg greiðsla þessara fimm aðila sé í dag lægri en annarra leigj­ enda og við það verði ekki unað. Sigurður segir að niður­ staða héraðsdóms á sínum tíma hafi komið forsvarsmönnum Naustavarar á óvart. „Í megin­ atriðum komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að þar sem íbúð­ ir Naustavarar stæðu 60 ára eldri til boða, en ekki 67 ára og eldri, þá nyti félagið ekki undanþáguá­ kvæðis sem heimilaði innheimtu sérstakra kostnaðarliða með hús­ gjaldi og því bæri Naustavör að fella gjaldið undir sjálfa leiguna,“ segir Sigurður. Hann segir að félagið hafi unað dómnum til þess að reyna að forð­ ast áframhaldandi deilur. „Við gerðum þá breytingu á innheimtu leigugjaldsins, sem dómurinn fjall­ aði um, og buðum öllum leigutök­ um einfalda skilmálabreytingu á gildandi leigusamningum þannig að húsgjaldið var fellt niður og samsvarandi upphæð færð und­ ir leiguna með þeim skilmálum að veitt yrði áfram sama þjónusta fyr­ ir sömu krónutölu og verið hafði,“ segir Sigurður. Að hans sögn féllust langflestir leigutakar á þetta. „Satt að segja lýstu margir leigutakar megnustu óánægju með þá veg­ ferð sem þessir tilteknu leigutakar efndu til gagnvart félaginu,“ segir Sigurður. Eldri borgurum sagt upp leigusamningi: „Þetta er hefndaraðgerð“ Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Ólafur og Súsanna þurfa að yfirgefa leiguíbúð sína hjá Sjómannadagsráði fyrir 1.október. Fundað „Þeir rændu ekki bara peningunum okkar heldur líka áhyggjulausu ævikvöldi,“ segir Ólafur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.