Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Blaðsíða 22
22 28. mars 2018fréttir
Þ
etta er hefndaraðgerð.
Þessir aðilar eru dæmdir
þjófar og þurftu að endur
greiða okkur háa fjárhæð
vegna þess að þeir innheimtu
gjald í ára raðir sem okkur bar ekki
að greiða. Síðan ætla þeir að halda
þjófnaðinum áfram með upp
færðum leigu samningi og henda
þeim út sem ekki skrifa undir. Þeir
rændu ekki bara peningunum
okkar heldur líka áhyggjulausu
ævikvöldi,“ segir Ólafur Guð
mundsson, íbúi að Boðaþingi 22
í Kópavogi. Ólafur og eiginkona
hans, Súsanna O. Jónmundsdóttir,
fengu á dögunum bréf þess efnis
að þeim yrði gert að yfirgefa leigu
íbúð sína fyrir þann 1. október
næstkomandi. Húsið er í eigu
Naustavarar ehf. sem er félag í eigu
Sjómannadagsráðs og er ætlað
einstaklingum sem eru 60 ára eða
eldri. Ólafur og Súsanna eru í hópi
fimm einstaklinga og hjóna sem
verður hent út á guð og gaddinn,
í þeim hópi er ein kona sem er 90
ára gömul.
Sigur vannst í héraðsdómi
Naustavör ehf. á 201 íbúð í Reykja
vík, Kópavogi og Hafnarfirði,
þar af 95 íbúðir í Boðaþingi 22
og 24. Upp úr 2011 fór að kvisast
að stjórnendur Naustavarar ehf.
væru ekki að fara að húsaleigulög
um. Ástæðan var sú að innheimt
var húsaleiga að viðbættu sérs
töku húsgjaldi. Húsgjaldið átti að
eins að fara í að greiða kostnað við
rekstur sameignar húsanna en í
ljós kom að ýmis annar kostnaður,
meðal annars stjórnunarkostnað
ur, var greiddur með húsgjaldinu.
Deilurnar drógust á langinn árum
saman en að endingu sáu fimm
leigutakar sér ekki annað fært en
að fara með málið fyrir dómstóla.
Héraðsdómur kvað upp dóm
sinn í febrúar 2017 og var niður
staðan skýr. Dómstóllinn komst
að þeirri niðurstöðu að Naustavör
ehf. hefði um árabil ofrukkað eldri
borgara með innheimtu hús
gjaldsins. Áðurnefnd hjón, Ólafur
og Súsanna, sem fluttu inn árið
2013 fengu til dæmis um 500 þús
und krónur endurgreiddar frá
Naustavör.
Martröðin hefst
Ólafur segir að þá hafi martröð
in fyrst byrjað. Eftir dómsupp
kvaðningu fóru forsvarsmenn
Naustavarar ehf. í allar íbúðir og
kynntu nýjan leigusamning fyrir
íbúum. Þar var búið að hækka
húsaleiguna sem nam gjaldinu
ólöglega auk þess sem gerð var sú
krafa að eldri borgararnir myndu
afsala sér þeirri endurgreiðslu
sem héraðsdómur hafði dæmt
þeim. Að öðrum kosti yrði þeim
sagt upp leigusamningi og gert
að yfirgefa húsnæðið. „Þetta var
með ólíkindum. Flestir íbúar fögn
uðu sigri og töldu að málinu væri
lokið þegar dómurinn lægi fyrir.
Maður vonaði að forsvarsmenn
Naustavarar ehf. myndu una hon
um eins og almennilegir borgarar.
Það var öðru nær,“ segir Ólafur.
Hann segir að íbúar hafi upp
lifað mikla valdbeitingu og niður
lægingu. „Það vill enginn vera í
húsnæðishrakningum á gamals
aldri, að leita sér að nýrri íbúð til
þess að leigja með tilheyrandi
óvissu og raski. Það voru margir
íbúar grátandi hérna á göngunum
því fólk vissi ekki sitt rjúkandi ráð.
Það er erfitt að sætta sig við að ein
hver hafi brotið á manni í mörg ár
og þegar dómur er kveðinn upp þá
hafi viðkomandi ekki meiri sóma
kennd en svo að hann hótar manni
húsnæðismissi nema maður skrifi
undir skjal þar sem maður afsalar
sér skaðabótunum. Þetta er ekkert
annað en fjárkúgun,“ segir Ólafur.
Hann og Súsanna hafi haft of ríka
réttlætiskennd og neitað að skrifa
undir þennan viðauka við leigu
samninginn, það sama gerðu um
átta aðrir.
Uppsögn leigu
Samningum þeirra var sagt upp í
mars fyrir ári en uppsagnarfrestur
inn var tólf mánuðir. „Við höfðum
ekkert heyrt í forsvarsmönnum
Naustavarar og innst inni vonaði
maður að þeir myndu láta sér segj
ast og leyfa þeim sem þeir brutu á
að halda áfram að leigja húsnæðið,“
segir Ólafur. Naustavör hefði síðan
getað boðið nýjum leigutökum upp
á þennan endurbætta samning og
þeir þá metið hann í samræmi við
aðra kosti á húsnæðismarkaði fyrir
eldri borgara. „Það er auðveldara að
koma að hreinu borði en að þurfa
að kyngja stoltinu og sætta sig við
svona óréttlæti,“ segir Ólafur.
Á dögunum barst síðan bréf þar
sem Ólafi og eiginkonu hans er gert
að yfirgefa húsnæðið fyrir 1. október
2018. „Þetta er afar sárt því okkur
líður afar vel í þessu húsnæði. Mað
ur getur hins vegar ekki látið bjóða
sér hvað sem er,“ segir Ólafur. Þau
eru ekki ein, eins og áður segir, en
alls verður fimm einstaklingum og
hjónum gert að yfirgefa húsnæðið
fyrir 1. október næstkomandi. Þar af
ein kona um nírætt.
Sanngirnissjónar-
mið ræður för
„Það eru fyrst og
fremst sanngirnis
sjónarmið gagn
vart yfirgnæfandi
meirihluta leigjenda
sem liggja að baki
uppsögnum þessara
fáu leigusamninga
sem um ræðir,“ segir Sigurður
Garðarsson, framkvæmdastjóri
Naustavarar ehf., í skriflegu svari
til DV. Hann segir að um erfitt mál
sé að ræða en kjarninn sé sá að
mánaðarleg greiðsla þessara fimm
aðila sé í dag lægri en annarra leigj
enda og við það verði ekki unað.
Sigurður segir að niður
staða héraðsdóms á sínum tíma
hafi komið forsvarsmönnum
Naustavarar á óvart. „Í megin
atriðum komst dómurinn að
þeirri niðurstöðu að þar sem íbúð
ir Naustavarar stæðu 60 ára eldri
til boða, en ekki 67 ára og eldri,
þá nyti félagið ekki undanþáguá
kvæðis sem heimilaði innheimtu
sérstakra kostnaðarliða með hús
gjaldi og því bæri Naustavör að
fella gjaldið undir sjálfa leiguna,“
segir Sigurður.
Hann segir að félagið hafi unað
dómnum til þess að reyna að forð
ast áframhaldandi deilur. „Við
gerðum þá breytingu á innheimtu
leigugjaldsins, sem dómurinn fjall
aði um, og buðum öllum leigutök
um einfalda skilmálabreytingu á
gildandi leigusamningum þannig
að húsgjaldið var fellt niður og
samsvarandi upphæð færð und
ir leiguna með þeim skilmálum að
veitt yrði áfram sama þjónusta fyr
ir sömu krónutölu og verið hafði,“
segir Sigurður. Að hans sögn féllust
langflestir leigutakar á þetta. „Satt
að segja lýstu margir leigutakar
megnustu óánægju með þá veg
ferð sem þessir tilteknu leigutakar
efndu til gagnvart félaginu,“ segir
Sigurður.
Eldri borgurum sagt upp leigusamningi:
„Þetta er hefndaraðgerð“
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Ólafur og Súsanna þurfa að yfirgefa leiguíbúð sína hjá
Sjómannadagsráði fyrir 1.október.
Fundað
„Þeir rændu ekki bara peningunum okkar heldur
líka áhyggjulausu ævikvöldi,“ segir Ólafur.