Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Side 24
24 28. mars 2018fréttir
D
agur B. Eggertsson, borgar-
stjóri Reykjavíkur, hefur far-
ið á fleiri opna fundi og birst
á fleiri myndum á síðustu
vikum en á sama tíma fyrir tveim-
ur árum. Dagur og meirihlutinn í
borginni hafa verið sakaðir um að
nýta sér opna fundi og myndatæki-
færi í áróðursskyni fyrir komandi
kosningar. Í síðustu viku óskuðu
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins eftir
upplýsingum um hversu marga
fundi Dagur hefði haldið á kjör-
tímabilinu og hversu margir fund-
ir yrðu haldnir fram að kosningum
í lok maí. Borgarstjóri hefur verið
sakaður um svipaða hluti allt kjör-
tímabilið. Til dæmis þegar skólp-
málið svokallaða kom upp sumarið
2017 töluðu andstæðingar borgar-
stjóra um að hann léti aðeins sjá
sig til að taka af sér myndir en léti
embættismenn sjá um að svara
fyrir erfið mál.
Af því tilefni ákvað DV að leggja
í létta rannsóknarvinnu til að kom-
ast að því hvort borgarstjóri og full-
trúar meirihlutans væru meira
áberandi í jákvæðum fréttatil-
kynningum Reykjavíkurborgar
núna, þegar það er stutt til kosn-
inga, eða ekki. Verkefnið er ansi
stórt þar sem Reykjavíkurborg hef-
ur birt meira en 2.800 fréttatilkynn-
ingar frá því að Dagur tók við af Jóni
Gnarr sem borgarstjóri þann 16.
júní 2014. Fréttatilkynningarnar
eru af ýmsum toga, allt frá manna-
ráðningum til tilkynninga frá heil-
brigðiseftirliti Reykjavíkur. Af þeim
sökum voru teknar stikkprufur af
fréttatilkynningum Reykjavíkur-
borgar, fyrstu þrjá mánuðina árið
2016 og fyrstu þrjá mánuðina í ár.
Tíu fundir
Það sem af eru árinu 2018 hafa
átján ljósmyndir af Degi B. Egg-
ertssyni borgarstjóra birst á vef
Reykjavíkurborgar. Tilefnin eru
margvísleg, allt frá stuðningi við
Skáksamband Íslands, þar
sem borgarstjóri er mynd-
aður þar sem hann skrifar
undir samstarfssamning, til
mynda af borgarstjóra taka
skóflustungu vegna nýrra
íbúða. Opnir fundir voru alls
tíu, ýmist íbúafundir, fundir
um tiltekið málefni þar sem
borgar stjóri flutti ávarp eða
stórra kynninga á áætlunum
Reykjavíkurborgar. Dagur
heimsótti einnig grunnskóla
í Úlfarsárdal.
Myndirnar af borgarstjóra
voru eilítið færri á sama
tímabili fyrir tveimur árum,
þrettán í stað átján. Athygli
vekur að á þessu tímabili
var aðeins einn íbúafundur með
borgar stjóra og engar stórar kynn-
ingar á áætlunum Reykjavíkur-
borgar. Borgarstjóri sendi einu
sinni samúðarkveðjur og fór í tvær
heimsóknir. n
Fleiri fundir
og fleiri
myndir fyrir
kosningar
Ari Brynjólfsson
ari@dv.is
n Meira áberandi en áður í aðdraganda kosninga
n Átján myndir á árinu