Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Page 39
Hlaup 28. mars 2018 KYNNINGARBLAÐ
Þórólfur Ingi Þórsson byrjaði ekki að hlaupa fyrr en hann var 26 ára gamall. Fjórtán árum síðar,
eða um áramótin 2015/2016, ákvað
hann að verða afreksmaður í lang-
hlaupum. Skömmu eftir það sló hann
Íslandsmet í 10 kílómetra hlaupi í sínum
aldursflokki.
Þórólfur, sem er 42 ára, var staddur
í Valencia á Spáni, þegar DV náði tali
af honum rétt fyrir síðustu helgi, en
þá var hann að búa sig undir þátt-
töku í risastóru hálfmaraþoni sem
fór fram í borginni um síðustu helgi.
Hlaupið var tvískipt á þann hátt að
fyrir hluta keppenda var það jafnframt
heimsmeistaramótið í hálfmaraþoni en
Þórólfur var ekki skráður í það. Hann
segir frábært að hlaupa í borginni og
hlaupaleiðin meira og minna á jafn-
sléttu og því sé almennt mjög góður
hraði hjá hlaupurum.
Þórólfur hefur hlaupið sex maraþon
um ævina, mun fleiri hálfmaraþon, en
oftast hefur hann keppt í 10 kílómetra
hlaupi. Hann á Íslandsmetið í sínum
aldursflokki í þeirri vegalengd, eða
33:10 mínútur, sem þýðir að hann hef-
ur hlaupið hvern kílómetra á 3 mínút-
um og 19 sekúndum.
Gat ekkert í fótbolta
Þórólfur byrjaði hins vegar ekki að
hlaupa reglulega fyrr en hann var 26
ára og á þeim tíma benti ekkert til þess
að hann ætti eftir að verða afreks-
maður í hlaupum:
„Þetta var árið 2002 og ég starfaði
hjá hugbúnaðarfyrirtæki. Þar kynntist
ég konu sem var að byrja að hlaupa,
við felldum hugi saman og ég smitað-
ist af hlaupabakteríunni hennar. Það
var líka smá hópur í vinnunni sem var
að byrja að hlaupa. Ég æfði ekki mikið
fyrst til að byrja með, kannski einu sinni
til tvisvar í viku. Um ævina hafði ég ekki
stundað mikið íþróttir, ég er alinn upp
í Keflavík og þar var bara í boði fót-
bolti, körfubolti og sund. Ég gat ekkert
í fótbolta, byrjaði allt of seint að æfa
körfubolta og ég var svo horaður að ég
vildi ekki láta sjá mig í sundi! Ég hjólaði
hins vegar frekar mikið þegar ég var
krakki. En á unglingsárum stundaði ég
lítið íþróttir, bara skólaleikfimina,“ segir
Þórólfur.
Þórólfur segir að hann hafi ekki órað
fyrir því þegar hann byrjaði að hlaupa
reglulega 26 ára að hann ætti eftir að
verða afreksmaður í hlaupum: „Hins
vegar uppgötvaði ég fljótt að þetta
átti vel við mig og það var auðvelt fyrir
mig að hlaupa. Oftar en ekki var ég
fyrstur í mark af öllum í æfingahópn-
um. Um síðir ákvað ég að taka þetta
lengra og fyrir tæpum áratug skráði
ég mig í ÍR og fór að æfa hlaup.“
Áramótaheitið 2016
Segja má að með því að byrja að æfa
í ÍR hafi Þórólfur stigið annað skrefið á
hlaupaferlinum en það fyrsta var að
byrja að hlaupa árið 2002. Í ársbyrj-
un 2016 tók hann hins vegar þriðja
skrefið: „Ég var ekki að ná neinum
toppárangri hjá ÍR fyrr en eftir ára-
mótin 2015/2016. Ég varð fertugur
árið 2016 og ákvað á áramótunum
að verða besti hlauparinn á Íslandi í
mínum aldursflokki. Upp frá því setti
ég stefnuna á þetta markmið og æfði
samkvæmt því. Ég hef tekið miklum
framförum eftir þetta og þar hefur
líka hjálpað mikið að ég hef æft undir
handleiðslu Mörthu Ernstdóttur og
Jóns eiginmanns hennar. Tókst mér
að setja nokkur Íslandsmet í mínum
aldursflokki á síðasta ári.“
Eftir hálfmaraþonhlaupið í Val-
encia um síðustu helgi er næsta stóra
verkefni Þórólfs Evrópumeistaramót
öldunga í 10 kílómetra hlaupi sem
haldið verður á Spáni um miðjan
maí en þar stefnir Þórólfur að því að
verða á meðal fremstu manna í sínum
aldursflokki.
Þórólfur hleypur mismikið eftir því
hvernig mótshlaup eru framundan
hjá honum, en þegar mest lætur æfir
hann allt að 12 sinnum í
viku. Blaðamaður bend-
ir honum á að það séu
bara sjö dagar í vikunni
og Þórólfur hlær við
en útskýrir að hann
hlaupi stundum bæði
að morgni og kvöldi
til.
„Ég hleyp yfirleitt
minna aðra vik-
una, þegar dætur
mínar eru hjá mér,
og meira þá næstu. Í fyrri vikunni legg
ég meiri áherslu á styrktaræfingar,
bara heima hjá mér. Ég nota þá bæði
líkamann og tól eins og bolta og lóð. En
að meðaltali hleyp ég á bilinu 80–100
kílómetra á viku.“
Rétt næring lykilatriði
Þórólfur segist leggja mikið upp úr
hollri næringu og segir að hún sé eitt
af lykilatriðunum til að ná árangri.
Fær hann sér þá aldrei hamborgara
og franskar eða kökusneið? „Ég fæ
mér alveg hamborgara en það hefur
minnkað. Ég er ekki mikið í djúpsteikt-
um mat og halla mér sífellt meira að
grænmetisréttum, þeir eru léttari og
þægilegri. Ég legg mikið upp úr því að
fá nóg af próteini og vönduðum kol-
vetnum. Ég borða líka mikið af hnetum
og fræjum. Ég borða kökur en geri það
meðvitað, almennt er ég ekki að moka
í mig bakarísgúmmelaði. Ef það er
kaka í vinnunni þá fæ ég mér kannski
bara eina sneið, þannig að það ekki
óalgengt að ég borði eina kökusneið
í viku. Ég fæ mér líka stundum dökkt
súkkulaði.
Ég hef verið í samstarfi við Heilsu frá
því vorið 2017 og þau hafa stutt mig
dyggilega. Ég tek inn TerraNova LifeDr-
ink blandaðan út í Biotta Mango-safa,
þetta geri ég á hverjum degi. Einnig
nota ég TerraNova Omega-olíu. Ég
fann mikinn mun á mér eftir að ég
byrjaði að taka inn þetta inn. Ég tek inn
fleiri vörur úr TerraNova-línunni,
þar á meðal magnesíum og
kalsíum. Ég tek inn D-vítamín og
Liðaktín frá Gula Miðanum. Það
er mikilvægt að hugsa um liðina
þegar
maður eldist.
Ég er nýfarinn að taka inn Astax-
anthin frá Solaray og hafði það mjög
góð áhrif á mig, hjálpaði til við að laga
eymsli sem ég var kominn með í hnés-
bótina.“
Mikilvægt að miða við sjálfan sig
Þórólfur segir mikilvægt fyrir þá sem
eru að byrja að hlaupa að ætla sér
ekki um of í byrjun og setja sér raun-
hæf markmið. „Stundum fæ ég til mín
menn sem segja: Ég vil geta hlaupið
eins og þú. Hvað á ég að gera? Það
fyrsta sem ég spyr á móti er hvort
viðkomandi finnist gaman að hlaupa.
Það er lykilatriði í þeirri hreyfingu sem
maður stundar að finnast gaman. Það
krefst mikillar vinnu að ná langt og þá
er eins gott að það sé gaman. Það er
mikilvægt að miða við sjálfan sig til að
byrja með og stefna bara að því að
bæta sig stig af stigi.“
ÞóRóLFUR INGI ÞóRSSON:
Ákvað um fertugt að verða
afreksmaður