Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Blaðsíða 40
Hlaup 28. mars 2018KYNNINGARBLAÐ
ReykjavíkuRmaRaþon íslandsbanka:
Fjölmennasti hlaupaviðburður
ársins
Reykjavíkurmaraþon íslands-banka fer fram í 35. sinn þann 18. ágúst og er fjölmennasti
hlaupaviðburður ársins þar sem um
15.000 hlauparar koma saman á öll-
um aldri, íslenskir og erlendir. erlendir
þátttakendur voru árið 2017 um
4.000 frá 87 löndum, svo margir hafa
þeir ekki verið áður.
þátttakendur geta valið á milli
fimm vegalengda sem henta fyrir alla
aldurshópa og mismunandi getustig.
Hlaupaleiðin er fjölbreytt og farið er
framhjá helstu kennileitum borgar-
innar og á nokkrum stöðum má finna
hvatningar- og skemmtistöðvar á
vegum borgara, góðgerðafélaga,
samstarfsaðila og skipuleggjanda
hlaupsins. engum ætti að leiðast í
þessu hlaupi.
Hlaupurum er boðið upp á að
hlaupa til góðs og safna áheitum
sem renna til ákveðinna góðgerða-
félaga eða hópa. Áheitasöfnunin
fer fram á hlaupastyrk.is þar sem
fjölmörg góðgerðafélög hafa skráð
sig til leiks og allir ættu að geta látið
gott af sér leiða og um leið að rækta
líkama og sál. Árið 2017 var sett nýtt
met í áheitasöfnun Reykjavíkurmara-
þons íslandsbanka þegar hlauparar
söfnuðu 118.583.717 krónum til 152
góðgerðafélaga.
skráningarhátíð hlaupsins fer fram
í laugardalshöll dagana 16. og 17.
ágúst. skráningarhátíðin er hluti af
stórsýningunni FIT&Run þar sem að-
ilar úr heilsugeiranum kynna heilsu-
fæði, fatnað, skóbúnað o.fl., einnig
verður boðið upp á skemmtilegar
uppákomur. Hlauparar eru hvattir til
að skrá sig fyrir 15. maí og ná lægsta
verðinu.
Reykjavíkurmaraþon íslandsbanka
er hlaupaviðburður fyrir alla til þess
að hreyfa sig og ná markmiðum
sínum hvort sem þau eru að slá met
eða hreyfa sig með fjölskyldunni eða
vinum. allir eru sig-
urvegarar þegar
komið er í mark.
nánari
upplýsingar er
að finna inni á
marathon.is og
hlaupastyrkur.is.
Ólafur Þórisson: Reykjavíkurmaraþon
Íslandsbanka Eva Björk Ægisdóttir: Reykjavíkur-
maraþon Íslandsbanka
Eva Björk Ægisdóttir: Reykjavíkur-
maraþon Íslandsbanka
Eva Björk Ægisdóttir: Reykjavíkur-
maraþon Íslandsbanka