Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Qupperneq 50
Hlaup 28. mars 2018KYNNINGARBLAÐ
Fyrirtækið var stofnað árið 2014 af Stefáni Má Thorarensyni og hóf göngu sína í Kópavogi, en
var flutt í Kringluna í ágúst árið 2016,“
segir Halldór Steinn Steinssen, sem
kom inn sem meðeigandi Stefáns um
síðastliðin áramót.
„Hjá Icephone er þetta spurning
um að veita góða og hraða þjónustu.
Okkar markmið er að veita viðskipta-
vinum jákvæða þjónustuupplifun,“
segir Halldór.
Slagorð okkar er 90 mínútna viðgerðir
Það er algengt að símar verði fyrir
vatnsskaða eða höggskemmdum,
hvort tveggja er yfirleitt utan ábyrgð-
ar framleiðanda. Við fáum talsvert af
slíkum tilfellum til okkar auk þess sem
við sjáum mikið af símum sem eru
með slöpp batterí.
Það getur tekið langan tíma fyrir
fólk að fá símana sína til baka úr
viðgerð,“ segir Halldór. „Við fórum
af stað með slagorðið 90 mínútna
viðgerðir, þannig að fólk getur sinnt
sínum erindum í Kringlunni meðan
við gerum við símann. Vinna og vinir
eru allt í símanum hjá fólki í dag, auk
samfélagsmiðla, þannig að viðskipta-
vinurinn má alls ekki við því að missa
tækið í marga marga daga. Okkar
markmið er að vera sneggri og reyna
að klára viðgerð samdægurs eða
daginn eftir.
Ef viðskiptavinur velur 90 mínútna
viðgerð, þá þarf að panta slíka við-
gerð,“ segir Halldór. „En ef við fáum til
dæmis iPhone sem þarf skjáviðgerð
inn fyrri part dags, þá erum við oftast
að klára viðgerð á honum sama dag.
Við erum mest að gera við iPhone og
Samsung, enda eru það algengustu
símarnir á markaðinum.“
Ekkert skoðunargjald hjá Icephone
„Við tökum ekkert skoðunargjald,
þannig að við tökum við símanum og
greinum hann fyrir þig,“ segir Hall-
dór. „Viðskiptavinir eru eðlilega oft
stressaðir yfir hvað hlutirnir kosta, við
tökum símann inn, greinum hvað er
að, höfum síðan samband við við-
skiptavininn og segjum honum hvað
sé að tækinu og hvað viðgerð muni
kosta og viðskiptavinurinn getur þá
valið hvort hann vill láta gera við sím-
ann eða ekki.
Íhlutir eru dýrir og skjáir eru dýr-
ir,við notum original Samsung-íhluti,
það er meira framboð af íhlutum frá
þriðja aðila í iPhone, við erum komnir
með ágætis reynslu af okkar birgjum
þannig að við treystum okkur til að
bjóða sex mánaða ábyrgð á þeim
íhlutum sem við notum,“ segir Halldór.
Popsocket og fleiri símafylgihlutir til sölu
Icephone selur einnig fylgihluti
fyrir síma. „Við erum einnig að selja
símafylgihluti, hulstur, skjáfilmur og
hleðslutæki. Auk þess erum við með
Popsocket, sem er mjög vinsælt í
dag, en það er sett aftan á símann
til að halda betur á honum eða tylla
honum á borð.
Við erum einnig að selja upp-
gerða síma, við kaupum síma af
viðskiptavinum, til dæmis ef
einstaklingur er búinn að
uppfæra símann sinn með
nýrri týpu eða er með
síma með brotnum skjá
eða lélegu batteríi,
þá getur hann komið
með símann til okk-
ar og fengið tilboð í
hann. Við förum síðan
yfir símann, skiptum
um skjá eða batterí
og fleira ef þess þarf
og seljum hann,“ segir
Halldór. „Með þessu erum
við að halda símanum leng-
ur í notkun, það er ákveðin
umhverfisvernd í því. Við erum
svolítið gíruð í að vera alltaf
með nýjustu týpuna þó
að ekkert sé að eldri
símanum okkar.“
Icephone
er staðsett í
Kringlunni
á Bíó-
gangin-
um við
hlið
Te og
Kaffi,
síminn
er 546-
5444.
Opn-
unartími
er í takt
við verslanir
Kringlunnar.
Heimasíða:
icephone.is og
Facebooksíða:
IcePhoneVidgerdir.
Fyrirtækið Icephone er
staðsett á bíóganginum
í Kringlunni við hlið Te
og Kaffi. Þar er hægt
að fá hraða þjónustu á
símaviðgerðum, kaupa
símafylgihluti og eldri
síma, sem hafa verið
uppgerðir.
IcEPHOnE KrInglunnI:
Markmiðið er hröð þjónusta
og jákvæð þjónustuupplifun
Icephone - Kringlan