Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Síða 51
Hlaup 28. mars 2018KYNNINGARBLAÐ
Framúrskarandi hljómtæki frá
Rega loksins fáanleg aftur
Stereo.is gerðist nýlega um-boðsaðili fyrir Rega á Íslandi. Rega er hljómtækjafram-
leiðandi frá Englandi sem hefur
í um fjóra áratugi verið leiðandi í
þróun og framleiðslu plötuspilara
og annarra hljómtækja. Rega hefur
verið ófáánlegt á Íslandi í mörg
ár, en núna er loksins kom-
inn umboðsaðili aftur.
Rega hefur löng-
um verið
eitt
þekktasta
vörumerkið í
hljómtækjaheim-
inum, en fyrirtækið
hannar og setur saman
allar framleiðsluvörur sín-
ar í verksmiðju sinni í Essex í
Englandi. Stofnandinn, Roy Gandy,
er ennþá eigandi og aðaldriffjöð-
ur fyrirtækisins. Markmið Rega
Research er að koma tónlistinni til
skila í eyru hlustandans án þess að
hljómtækin séu fyrir. Allar vörur
fyrirtækisins eru hannaðar með það
að markmiði að skila góðum hljómi,
líta vel út, endast og vera á viðráð-
anlegu verði.
Flestir
þekkja
Rega Plan-
ar plötu-
spilarana
sem hafa í
gegnum áratugina
sópað að sér verð-
launum og notið gríðar-
legra vinsælda. Nálgun Rega
á hönnun plötuspilara er
með öðru sniði en gengur og gerist
hjá flestum öðrum framleiðendum.
Að sögn Roys Gandy eru plötu-
spilarar ekkert annað en tæki, tæki
sem mæla titring. Hönnun, efnis-
val og samsetning miðar allt
að einu og sama
markmiðinu: Að
framleiða
tæki
sem kem-
ur tónlistinni
á hljómplötunni
til skila með því að
hafa sem minnst áhrif
á útkomuna, þ.e. mæla það
sem hljómplatan geymir.
Eftir heimsókn forsvarsmanna
Stereo.is í höfuðstöðvar og verk-
smiðju Rega á Englandi þótti þeim
ekkert annað koma til greina en að
gera allt sem mögulegt væri til að
koma Rega til Íslands. Aðra eins
nákvæmni í framleiðslu, áráttu í
gæðastjórnun og
gagnsæi í rekstri
höfðu fulltrúar
Stereo.is ekki
áður séð. Tryggð
starfsfólks við
hugsjónir
fyr-
ir-
tækisins
veittu Stereo.
is innblástur sem
þeir vona að smitist
til hljómtækjaáhuga-
manna á Íslandi.
Verðið sem Stereo.is get-
ur boðið viðskiptavinum á Íslandi
upp á er vel samanburðarhæft
við nágrannalöndin og gerir Rega
að vörumerki sem erfitt verður að
keppa við hérlendis. En þegar öllu er
á botninn hvolft er það hljómurinn
sem segir mest.
Sjá nánar á stereo.is
Heimasíða
Rega er rega.co.uk