Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Blaðsíða 59
sakamál 5928. mars 2018
Ljóst má vera að „mannráns/
lausnargjalds“-áform Eugene
Weidmann og félaga hans, Rogers
Million og Jean Blanc, voru löngu
fokin út í veður og vind. Aðeins
tveimur dögum eftir morðið á Jo-
seph Couffy nörruðu Eugene og
Roger einhjúkrunarkonu, Janine
Keller, inn í helli í Fontainbleau-
skógi. Þar var Janine myrt á sama
hátt og Joseph og hirtir af henni
1.400 frankar og demantshringur.
Önnum kafinn Eugene
Upp úr miðjum október mæltu
Eugene og Roger sér mót við
leiklistarframleiðandann Roger
LeBlond undir því yfirskini að þeir
hygðust fjárfesta í einni sýninga
hans. Skemmst er frá því að segja
að Roger LeBlond þurfti ekki að
kemba hærurnar. Fengurinn var
5.000 frankar.
Fritz Frommer, Gyðingur
sem hafði verið í fangelsi vegna
andnasískra viðhorfa sinna, var
næstur í röðinni. Eugene, sem
hafði kynnst Fritz í grjótinu, skaut
hann í hnakkann en ekki fylgir
sögunni hvað hann hafði upp úr
krafsinu. Líkið af Fritz var grafið í
kjallara villunnar í Saint-Cloud.
Nafnspjald verður Eugene að
falli
Fimm dögum síðar, 27. nóvem-
ber, var fasteignasalinn Raymond
Lesobre í mestu makindum að
sýna Eugene fasteign í Saint-
Cloud. Raymond sýndi ekki fleiri
fasteignir þaðan í frá en varð 5.000
frönkum og lífinu fátækari.
Morðið á Raymond varð þegar
upp er staðið síðasta morðið sem
Eugene Weidmann framdi, því
lögreglan komst á slóð hans fyrir
tilstilli nafnspjalds sem hann hafði
skilið eftir á skrifstofu Raymonds.
Tveir lögreglumenn fóru í vill-
una í Saint-Cloud en þar var ekki
köttur á kreiki. Brugðu þeir á það
ráð að bíða þar um sinn utandyra.
Smiðshöggið
Þegar Eugene kom heim
gekk hann nánast í flasið á
lögreglumönnunum. Hann lét þó
ekki slá sig út af laginu og fór inn
og bauð þeim að ganga í bæinn.
Eldsnöggt sneri hann sér síðan við
og skaut þremur skotum að laganna
vörðum. Þeim tókst þó særðum að
yfirbuga Eugene, en það gekk ekki
átakalaust fyrir sig. Fyrir einskæra
tilviljun var hamar innan seilingar
og tókst öðrum lögreglumannanna
að seilast í hann og beita gegn
Eugene. Eftir einhverjar barsmíðar
tókst lögreglunni að reka
smiðshöggið og Eugene rotaðist.
Tveir sektardómar
Lögreglan hafði í kjölfarið hendur
í hári Rogers Million og Jean
Blanc og kærustu Rogers. Þegar
Eugene var í varðhaldi var hann
spurður hvort hann iðraðist ekki
gjörða sinna og hann svaraði að
bragði: „Iðrist hvers? Ég þekkti
þetta fólk ekki einu sinni.“
Eugene var samvinnuþýður
og játaði alla sína glæpi en þegar
upp var staðið voru aðeins hann
og Roger Million sakfelldir og
dæmdir til dauða. Kærasta Rogers
og Jean Blanc voru frjáls ferða
sinna.
Síðar var dómurinn yfir Roger
mildaður og aðeins Eugene þurfti
að horfast í augu við eigin aftöku.
Tafir og klúður
Árla morguns var mikið um að
vera í Rue Georges Clemenceau
í Versölum. Uppsetningu
fallaxarinnar hafði lokið klukkan
þrjú um nóttina og búið var að
leigja út háu verði þá staði sem
besta útsýnið veittu.
Sagan segir að Henri
Desfourneaux böðull, sem var
þekktur fyrir að fara sér hægt, hafi
verið kvíðinn uppmálaður.
Vegna tafa var farið að elda
af degi þegar allt var tilbúið sem
gerði ljósmyndurum kleift að ná
skýrum myndum.
Eugene Weidmann fékk að
reykja vindil í klefa sínum auk
smá slurks af rommi og var síðan
leiddur út í morgunbirtuna.
Handvömm olli því að plankinn
sem hann var njörvaður við
lagðist ekki sem skyldi. Því virtist
ómögulegt að háls Eugene legðist
í þar til gerða gróp.
Hárreyttur á hinstu stundu
Segir sagan að aðstoðarmaður
Henri Desfourneaux hafi að
lokum þurft að toga í hár og eyru
Eugene svo blaðið stóra lenti á
réttum stað. Sem það gerði um
síðir með hvin.
Þessi aftaka og ljósmyndir sem
birtust af henni gengu fram af
almenningi í Frakklandi og því var
sett í lög að aftökur þar í landi yrðu
í framtíðinni ekki framkvæmdar
opinberlega. n
hann hefði upplýst lögreglumann-
inn um að hann ætti bílinn sem þeir
voru á.
Gutteridge hafi ekki lagt trúnað
á það vegna þess að Kennedy hefði
ekki munað skráningar númerið.
Þá, að sögn Kennedys, greip
Browne til byssunnar og skaut Ge-
orge Gutteridge.
Fékk dómarann upp á móti sér
Þann 6. febrúar 1928 voru tví-
menningarnir formlega ákærðir
fyrir morðið á Gutteridge. Kenn-
edy sagði ekki orð, en Browne
svaraði ákærunni: „Þetta er fárán-
legt. Ég veit ekkert um þetta.“
Réttarhöldin hófust 3. apríl
sama ár í Old Bailey í London.
Báðir lýstu sig saklausa, en
Browne nánast skaut sig í fótinn
þegar hann sagðist ekki geta svar-
ið að segja sannleikann því hann
einfaldlega vissi ekki allan sann-
leikann. Þau orð munu hafa fallið
í afar grýttan jarðveg hjá dómar-
anum, Sir Horace Avory.
Fjarvistarsönnun Brownes
Reyndar sagðist Browne hafa ver-
ið heima hjá sér kvöldið sem Gutt-
eridge var myrtur. Konan sem
leigði Browne sagði lögreglunni
að hún hefði heyrt í Browne og
sambýliskonu hans í íbúð þeirra
þetta kvöld. Einnig hefði hún lag-
að handa þeim te það kvöld.
Allur vitnisburður og vís-
bendingar um sakleysi Brownes
voru hundsaðar og voru hann
og Kennedy dæmdir til dauða og
mættu þeir örlögum sínum sama
daginn í maí 1928, en í tveimur
aðskildum fangelsum.
Árið 1992 voru skjöl um málið
eyðilögð og sýndist hverjum sitt
um það og eftir lifir spurningin;
var Frederick Browne einnig sek-
ur. n
William Henry Kennedy Hafði
ýmislegt að segja lögreglunni.
12 nóvember, 1920, var Daninn Johanna Amalie Overbye handtekin. Johanna, sem var fóstra á Norðurbrú í Kaupmannahöfn, hafði allt að 25 mannslíf á samviskunni. Um var að ræða börn sem henni hafði
verið treyst fyrir en þau myrti hún á árunum 1913–1920 með því að kyrkja þau,
drekkja eða brenna til bana. Johanna fékk dauðadóm, sem síðar var breytt í
lífstíðardóm. Hún lést í fangelsi árið 1929.
George Gutteridge Var skotinn í bæði augun.
síðasta opinbera aftakan í frakklandi „Ég er nýbúin að
hitta einkar heill-
andi Þjóðverja, og gáfað-
an, sem heitir Siegfried.
Síðustu skrefin Aftakan gekk ekki snurðu-
laust fyrir sig.
Eugene Weidmann Var að lokum
yfirbugaður með hamri.