Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Qupperneq 64
64 28. mars 2018
Menning „Það hlýt ur að standa styr um þetta og af því verkið er sterk tákn mynd NATO, þá er þetta svona. Ég held að þetta verk verði aldrei til friðs.“ Hulda Hákon listakona var hvorki reið né sár eftir að minnisvarði hennar um hernaðarsamstarf NATO og Rússlands var útbíaður í tjöru og fiðri á laugardag. Samkvæmt tilkynningu til fjölmiðla var gjörningurinn framkvæmdur til að mótmæla stríðsrekstri Tyrklands gegn sjálfsstjórnarhéruðum
Kúrda í Sýrlandi, og „veimilitítulegum“ andmælum Vesturlanda gegn framferði tyrkneska ríkisins.
Þetta stóð upp úr á HönnunarMars
Hönnunarhátíðin HönnunarMars fór fram í tíunda
skipti 15. til 18. mars síðastliðinn. Á annað hundrað
viðburða fóru fram víðs vegar um Reykjavík, nýjar
hönnunarvörur voru kynntar, hulunni var svipt
af fjölda nýrra verkefna, hönnunarsýningar voru
opnaðar og fyrirlestrar haldnir. DV fékk fimm sér-
fræðinga til að segja frá því sem stóð upp úr á hátíð-
inni í ár að þeirra mati.
Hvunndagshetja bjargar heiminum
„Að mínu mati var Björn Steinar Blumenstein sigurvegari hátíðarinnar, hann bæði
flutti erindi á DesignTalks ásamt Johönnu Seelemann (sem er væntanlegt í heild
sinni á vimeo-síðu HönnunarMars) og var með þrjár sýningar á HönnunarMars
sem allar snerust um að endurnýta, minnka sóun og auka nýtingu á auðlindum.
Sem sagt að bjarga heiminum, er því nokkurs konar hvunndagshetja í mínum
bókum.
Þá fannst mér mjög vel staðið að samsýningunni í Geysir Heima, persónu-
legt uppáhald er Theodóra Alfreðsdóttir og verkefnið hennar Mót. Litrík og falleg
lína sem gleður augað. Í þeim flokki er óhjákvæmilegt að minnast á hana Hönnu
Dís Whitehead, girnilegar litasamsetningar, óhefðbundin form og frumleg fram-
setning er það sem maður getur gengið að sem vísu hjá henni. En verk hennar
hafa svipuð áhrif á mig og sæt hvolpamyndbönd svona til að setja hlutina í sam-
hengi. Maður verður svo glaður, sko! Að lokum myndi ég klárlega hvetja fólk til að
kíkja við í stúdíóið hjá Agustav og Kjartani Óskarssyni, þeir verða áfram með það
opið í einhvern tíma eftir HönnunarMars. Einstaklega fágaðar og flottar vörur á
heimsmælikvarða.“
Ólöf Rut Stefánsdóttir, verkefnastjóri hjá Hönnunarmiðstöð.
Hönnunarnemar skoða hestinn
„Mér fannst gaman að sjá hversu áberandi nemendur Listaháskólans voru og mér finnst það
mikilvægt. Hápunkturinn fannst mér vera sýning nemenda á þriðja ári í vöruhönnun við
LHÍ, Náin framtíð eða Intimate futures. Nemendur voru að vinna með íslenska hestinn og
óræðan veruleika þar sem hesturinn er kominn aftur inn í borgarumhverfið eftir að hafa ver-
ið úthýst þaðan. Sýningin er ljóðræn og frumleg og vakti mann til umhugsunar. Mér fannst
þetta alveg ótrúlega vönduð framsetning þar sem forvitnileg verkefni voru aðeins hluti af út-
hugsaðri og heildrænni sýningarupplifun.
Til að nefna fleiri dæmi þá var samstarfssýning Matís og LHÍ um matarhönnun einnig
mjög forvitnileg. Á svipuðum nótum var eitt af uppáhaldserindunum mínum á Design-
Talks. Það var erindi Björns Steinars Blumenstein og Johönnu Seelemann en þau fjöll-
uðu um rannsóknarverkefnið sitt Cargo sem er um flókin kerfi skipaflutninga, vöruflæð-
is og neyslu. Það var mjög áhrifamikið, skemmtilegt, skýrt og faglegt. Stjarna DesignTalks
var annars Bea Szenfeld, listakona og fatahönnuður, sem heillaði alla upp úr skónum með
dásamlegri framkomu og geggjuðum pappírsskúlptúrum. Annars var þetta yfir það heila
skemmtilegur og fjölbreyttur HönnunarMars, hátíðlegur og gott partí.“
Anna Dröfn Ágústsdóttir, fagstjóri fræðigreina við Hönnunar- og arkitektúrdeild LHÍ.
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Stelpur vinna hljómsveitakeppnina þriðja árið í röð - Þjóðlagagoth úr Vesturbænum
H
in karllæga rokktónlistar-
sena er óðum að breytast,
og sést það meðal annars á
því að þriðja árið í röð var
það sveit skipuð stelpum einung-
is (eða að mestu leyti) sem vinn-
ur hina mikilvægu hljómsveita-
keppni Músíktilraunir. Fyrir
tveimur árum voru það Hórmónar,
í fyrra Between Mountains og í ár
var það tríóið Ateria sem bar sig-
ur úr býtum, en úrslitin fóru fram í
Hörpu um síðustu helgi.
Hljómsveitin er skipuð tveimur
systrum úr Vesturbænum og litlu
frænku þeirra. Þetta eru 17 ára gít-
arleikarinn og söngkonan Ása og
16 ára selló- og bassaleikkonan
Eir, og frænka þeirra, trommuleik-
arinn Fönn, sem verður 13 ára í
apríl. Þær hafa allar æft á hljóðfæri
í þónokkur ár og allar tekið þátt í
rokksumarbúðum Stelpur rokka.
Sú tónlist sem sveitin lék
í Hörpu var myrkt og naum-
hyggjulegt þjóðlagapopp með
strengja- og rafhljóðfærum. Þar
var endurómur frá nýbylgjusveit-
um, dramatísk stemning og ung-
æðisleg ljóðræna. Arnar Eggert
Thoroddsen, poppsérfræðingur
og dómnefndarmeðlimur, lýsti
tónlistinni sem „þjóðlagagoth.“
Eins og lög gera ráð fyrir lék
hljómsveitin þrjú lög á úrslita-
kvöldinu í Hörpu: Órói, Saga fyrr-
verandi verðandi fiðrildis og eitt
ónefnt lag. Í öðru laginu þurfti
sveitin að stoppa og byrja upp á
nýtt vegna tæknilegra örðugleika,
en lét það ekki á sig fá og kláraði
tónleikana með miklum glæsi-
brag.
Í öðru sæti lenti blúsaða spuna-
hljómsveitin Mókrókar, í þriðja
sæti var gleðipoppsveitin Ljósfari,
en hljómsveitin Karma Brigade
var valin hljómsveit fólksins í
símakosningu.
Mókrókar var valin „Blúsað-
asta bandið“ en trommuleik-
ari og gítarleikari Músíktilrauna
2018 komu einnig báðir úr þeirri
sveit; Þórir Hólm Jónsson og Þor-
kell Ragnar. Bassaleikari Músíktil-
rauna var Snorri Örn Arnaldsson
sem spilaði með Ljósfara og Jó-
hönnu Elísu, og hljómborðsleik-
ari tilraunanna var Jóhanna Elísa
Skúladóttir. Söngvari keppninnar
var Eydís Ýr Jóhannsdóttir úr SIF,
og rafheilinn var Darri Tryggva-
son. Agnar Dofri Stefánsson var
svo verðlaunaður fyrir textagerð á
íslensku en hann kom fram undir
listamannsnafninu Agnarsmár.
Björn Steinar Blumenstein
Ateria sigraði í Músíktilraunum: