Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Síða 66

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Síða 66
66 menning 28. mars 2018 Úr list- heiminum Í síðustu viku var kynnt hvaða þrír listamenn hafa verið valdir til að vinna að nánari útfærslu á tillögum sínum um framlag til Fen- eyjatvíæringsins 2019 í samstarfi við sýningarstjóra. Þetta eru listakon- urnar Elín Hansdóttir, Hekla Dögg Jónsdóttir og Hrafnhildur Arnar- dóttir (aka Shoplifter). Á næstu sex vikum fá þessar listakonur tíma og rúm til að vinna áfram að þróun sinnar tillögu og mun hver fyrir sig fá 250.000 krónur til að vinna áfram að verkefninu. Í júní verður tilkynnt um hver af tillögunum þremur verður valin sem framlag Íslands á Fen- eyjatvíæringnum 2019, þekktustu myndlistarhátíð heims. Listaverkið Glitur hafsins eftir Söru Riel hefur verið valið til að prýða austurgafl Sjávarútvegs- hússins við Skúlagötu. Gaflinn komst í fréttirnar í fyrra eftir að málað var yfir mynd af sjómanni eftir listahópinn Evoca1 sem hafði áður prýtt vegginn, meðal annars eftir kvartanir frá Hjörleifi Guttormssyni, fyrrverandi nágranna. Í umsögn dómnefndar segir: „Verkið hefur þannig eiginleika að vaxa við nánari kynni, það leynir á sér og gæti vakið veruleg hughrif við rétt skilyrði við leik ljóssins og nánasta umhverfis. Það dansar á milli raunveruleika og ímyndunarafls og gefur þannig áhorfendum tækifæri til að túlka á mismunandi hátt hvað þeir sjá og skilja.“ Tónlistar- og fjöllistamaðurinn Sverrir Guðjónsson vann á dögunum til verðlauna á alþjóðlegu útvarps- leikritahátíðinni UK International Radio Drama Festival fyrir útvarps- leikritið Ophelia's harp, eða Harpa Ófelíu. Það er leikkonan Arnbjörg Hlíf Valsdóttir sem er í titilhlutverki verksins. Þriðja og síðasta tilkynning atriða á tónlistarhátíðinni Secret Solstice í sumar var birt í vikunni. Stærsta atriðið sem bætist við er fönkrisinn George Clinton, en hann verður eitt af stóru nöfnunum á hátíðinni í ár ásamt Slayer, Gucci Mane, Stormzy, Bonnie Tyler og Steve Aoki. Þá var tilkynnt að þýska dansdúóið Kollektiv Turmstrasse, Stuðmenn, GusGus DJ-set, Valdimar og Young Karin komi einnig fram á hátíðinni. Á svipuðum tíma var tilkynnt um fyrstu listamennina sem staðfest er að komi fram á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves, sem fer fram í nóvember – og verður nú í fyrsta skipti haldin af Senu. 28 listamenn voru tilkynntir, þar af 13 erlendir. Þeir erlendu eru Fontaines D.C., Girlhood, Girl Ray, Jade Bird, Jockstrap, Mavi Phoenix, Naaz, The Orielles, Sassy 009, Scarlet Pleasure, Soccer Mommy, Superorganism og Tommy Cash. Tónleikar fyrir tvo milljarða: T ónleikahald á Íslandi veltir um tveimur milljörðum á ári, en afleiddar tekjur vegna komu erlendra ferðamanna á tónlistarhátíðir hér á landi er um helmingi meiri. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu Rannsóknar- miðstöðvar skapandi greina við viðskiptafræðistofnun Háskóla Íslands um hagræn áhrif tónlistar. Það voru Erla Guðmundsdóttir og dr. Margrét Sigrún Sigurðardóttir sem unnu skýrsluna fyrir Útón, Samtón og Atvinnu- og nýsköp- unarráðuneytið. Tónleikahald stærsti hlutinn Í skýrslunni kemur fram að ár- legar heildartekjur íslenska tón- listariðnaðarins séu um 3,5 millj- arðar króna. Stærstur hluti af tekjunum, eða um 57%, kemur til vegna tónleikahalds heima og er- lendis, en tekjur vegna höfundar- réttar og sölu á hljóðritaðri tón- list eru svo 22 og 21% prósent af heildartekjum iðnaðarins. Heildarmiðasölutekjur vegna tónleika á Íslandi voru 1,7 millj- arðar árið 2015, en tekjurnar koma til allt í senn vegna tónleika íslenskra tónlistarmanna (59%), tónleika erlendra tónlistarmanna á Íslandi (18%) og tónlistarhá- tíða (23%). Heildartekjur vegna tónleikahalds íslenskra tónlistar- manna erlendis eru svo áætlað- ar á bilinu 90,4 til 226,5 milljónir króna á ári. Saman gerir þetta því um 2 milljarða króna á ári. Fyrir utan þessar beinu tekj- ur vegna tónleikahalds áætla skýrslu höfundar að heildargjald- eyristekjur vegna komu erlendra ferðamanna hingað til lands til að vera viðstaddir tónlistar- hátíðir, séu um 2,8 milljarðar króna á ári. Erlendir gestir voru á bilinu 4% til 56% af heildarfjölda gesta á stærstu tónlistarhátíðum landsins, en hlutfallið var hæst á Iceland Airwaves. Sigtryggur Baldursson, fram- kvæmdastjóri Útflutningsskrif- stofu íslenskrar tónlistar, Útón, segir þó ljóst að þessar tölur um tekjur tónlistariðnaðarins séu mjög varlega áætlaðar enda inni- haldi þær ekki stærstu tónlist- armenn þjóðarinnar, á borð við Björk og Sigur Rós. „Það sem náðist ekki nógu vel yfir í þessari könnun var út- flutningurinn. Ástæðan er að þeir listamenn sem eru stærstu útflutningsaðilarnir í tónlist – stærstu útflutningsfyrirtækin ef við köllum það svo – eru ekki með sína samninga hér á Íslandi. Ég held að ef við værum einnig með tölur yfir þessa aðila þá væru út- flutnings- og sölutölurnar miklu stærri,“ segir hann. Fá ekki alltaf greitt Í ljósi þessa kemur ekki á óvart að samkvæmt könnun sem gerð var meðal íslenskra tónlistarmanna og kynnt er í skýrslunni kemur fram að 65% áhugamanna í tónlist og 75% atvinnutónlistarmanna á Íslandi segja lifandi flutning vera sína mikilvægustu tekjulind. Þrátt fyrir þetta sögðust um 72% þeirra tónlistarmanna sem höfðu kom- ið fram á tónleikum á síðasta árið, hafa gert það einu sinni eða oft- ar án þess að fá greitt fyrir. Al- gengasta ástæðan fyrir þessu er persónulegir greiðar, en styrktar- tónleikar komu þar á eftir. Næstmikilvægasta tekjulindin meðal atvinnutónlistarmanna var sala á tónlist í kvikmyndir, sjón- varpsþætti, tölvuleiki, auglýsingar og þess háttar (svokallað „Sync“) – en þó sagðist aðeins helmingur atvinnutónlistarmanna hafa tekj- ur af þessu. Þar á eftir kom svo streymi, stafræn sala og plötusala. Þá vekur athygli að sölutekjur af stafrænni sölu hljóð- ritaðrar tónlistar uðru árið 2016 í fyrsta skipti meiri en tekjur af plötusölu á Íslandi. Þurfum betri hagvísa fyrir greinina Sigtryggur Baldursson segir skýrsluna vera fyrsta skref í átt að því að unnar séu reglulegar skýrslur og hagvísar þróaðir fyrir tónlistariðnaðinn. „Í málefnasamningi nýrrar ríkis stjórnar segir að unnið verði að betri hagvísum fyrir skapandi greinar. Við vonum að þetta frum- kvæði okkar hvetji ríkisstjórnina til að koma að borðinu með frek- ari hugmyndir. Ef hið opinbera tekur almennilega utan um þetta getum við loksins farið að fá al- mennilegar hagtölur um grein- ina,“ segir hann Sigtryggur segir nauðsyn- legt að geta skoðað efnahagslega umhverfið í kringum tónlistina, meðal annars til þess að stjórn- völd geti metið hvar sé gagnleg- ast að fjárfesta í greininni hverju sinni. Í ljósi þeirra miklu gjaldeyr- istekna sem tónleikahald skapi samfélaginu sé til dæmis bagalegt að ekki sé almennilegur stuðn- ingur við tónlistarhátíðir og tón- leikahald. „Það er mjög takmarkaður stuðningur við tónleikahald og -hátíðir á Íslandi. Maður sér þetta til dæmis á því að á síðastu árum lentu Iceland Airwaves og fleiri hátíðir í rekstrarerfiðleik- um. Þetta er mjög viðkvæmt um- hverfi og harður og síbreytileg- ur markaður. Ég myndi leggja til að stjórnvöld myndu styðja betur við þessar hátíðir, og hugsa það sem atvinnuuppbyggingu. Slíkur stuðningur þarf að vera regluleg- ur hluti af umhverfinu til að þessi listgrein nái að þróast almenni- lega sem starfsgrein.“ Flytjum vöruna út óunna Sigtryggur segir enn fremur að skýrslan gefi hugmynd um þau tækifæri sem felist í tónlistar- iðnaðinum um þessar mundir: „Alþjóðafyrirtæki eru sólgin í þá tónlist sem hefur orðið til í tón- listarumhverfinu hérna heima, og við erum eiginlega orðin of góð í því að flytja vöruna út óunna – ef maður má nota líkingamál sjávar- útvegsins,“ segir hann. „Sóknarfærið sem mér finnst birtast í skýrslunni er fyrst og fremst í þróun lítilla tónlist- arfyrirtækja á Íslandi. Nú sem aldrei fyrr eru tækifæri í þróun sprotaumhverfis fyrir tónlist- arfyrirtæki á Íslandi, lítil fyrir- tæki sem geta til dæmis unnið að markaðssetningu og dreifingu á netinu. Við erum byrjuð að sjá þetta gerast, í umboðs- mennsku erum við til dæmis komin með nokkur íslensk fyrir- tæki sem starfa á alþjóðamark- aði. En í náinni framtíð mynd- um við vilja sjá íslensk fyrirtæki sem myndu sinna fleiri þátt- um. Við erum til dæmis ekki með nein „ publishing“ fyrirtæki hér á landi. Þar til mjög nýlega var þetta bara ekki raunhæfur möguleiki, en nú er allt hægt – tónlistarbransinn er að breytast svo hratt.“ n Ný skýrsla um hagræn áhrif tón- listar varpar ljósi á ónýtt sóknarfæri Erla Guðmundsdóttir og Margrét Sigrún Sigurðardóttir unnu skýrsluna um hagræn áhrif tónlistar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.