Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Side 68
68 fólk 28. mars 2018
Þau komust lífs af úr
vonlausum aðstæðum
N
áttúran á það til að vera
óútreiknanleg og ef þú týn-
ist úti í óbyggðum gæti voð-
inn verið vís. Sumir virðast
þó vera heppnari en aðrir þegar
kemur að því að komast lífs af úr
vonlausum aðstæðum. Hér eru
fjögur dæmi um einstaklinga sem
komust heil heilsu, eða því sem
næst, úr hrikalegum aðstæðum.
Týndur í óbyggðum í tvo
mánuði
Í janúar 2006 var Ricky Megee á
ferð í bíl sínum um Norður héruð
Ástralíu. Skyndilega kom hann
auga á þrjá menn við vegkant-
inn sem augljóslega voru í vanda,
eða hvað? Mennirnir sögðu að bíll
þeirra hefði orðið bensínlaus en í
sannleika sagt voru þeir bíræfn-
ir ræningjar sem réðust á Ricky,
börðu hann, rændu og tóku bílinn
traustataki. Þeir skildu hann svo
eftir rænulausan úti í óbyggðum.
Tveimur dögum síðar hafði enginn
orðið á vegi hans og neyddist hann
til að drekka eigið þvag. Á fimmta
degi fann hann fyrst eitthvað æti-
legt þegar hann rakst á litla tjörn.
Þar fann hann froska, pöddur og
vatn. Ricky varð máttfarnari með
hverjum deginum sem leið og liðu
tveir mánuðir þar til hann komst
aftur til byggða. Megee, sem var
105 kíló þegar hrottarnir urðu á
vegi hans léttist mikið. Hann var
45 kíló þegar hann fannst.
Hrapaði niður fjallið
Joe Simpson og Simon Yates voru
miklir göngugarpar og árið 1985
reyndu þeir að klífa Siula Grande
í Andes-fjöllunum – ógnarstórt
fjall og erfitt yfirferðar. Simpson
og Yates tókst ætlunarverkið en
á leiðinni niður dundu ósköpin
yfir. Simpson fótbrotnaði og til
að gera langa sögu stutta reyndi
Yates að koma vini sínum til
bjargar og láta hann síga niður
fjallið. Simpson rann síðan nið-
ur fjallið og hékk í línu fram af
klettabrún. Þá voru góð ráð dýr
fyrir Yates sem sá sig knúinn til
að skera á línuna til að bjarga
sjálfum sér frá vísum dauða.
Simpson hrapaði niður fjall-
ið og ofan í stóra sprungu sem
gleypti hann. Simpson var ekki
af baki dottinn, fótbrotinn, kaldur
og slasaður, því honum tókst að
skríða niður fjallið, matar- og
drykkjarlaus. Ferðalagið tók hann
þrjá daga. Um þetta ótrúlega at-
vik var gerð myndin Touching the
Void sem kom út árið 2003.
Flúði frá nasistum
Jan Baalsrud var Norðmaður
sem þótti býsna harður í horn að
taka. Á tímum síðari heimsstyrj-
aldarinnar barðist Jan gegn þýsk-
um nasistum og skaut nokkra til
bana í skotbardaga í Noregi. Hann
var eftirlýstur í kjölfarið og lagði
á flótta. En hann fór ekki á bíl, í
flugvél eða með lest. Hann fór
fótgangandi og lagði í upp í ferð
til Svíþjóðar þar sem hann kæm-
ist í skjól frá nasistunum.
Á ferðalagi sínu lenti hann
í ýmsum ævintýrum, snjó-
flóði til dæmis. Hann gafst
ekki upp, óð snjó upp fyrir
hné í fimbul kulda og gekk
uns hann komst til Svíþjóðar
tveimur mánuðum eftir að
ferðalagið hófst. Hann vó rétt
tæp 40 kíló þegar hann komst
á leiðarenda, í þorpið Furu-
flaten. Jan lést árið 1988, sjö-
tugur að aldri.
Týndur í frumskóginum
Árið 1981 lenti Yossi Ghinsberg í
erfiðum aðstæðum í þeim hluta
Amazon-regnskógarins sem er í
Bólivíu. Hörmungar dundu yfir
þegar hann féll útbyrðis úr báti og
fór niður foss. Yossi var skyndilega
einn og yfirgefinn í frumskógin-
um. Hann var með þremur vin-
um sínum en varð viðskila við þá
eftir slysið. Næstu vikurnar gekk
Yossi um skóginn og með hverjum
deginum sem leið varð vonin um
björgun veikari. Hann reyndi þó
allt sem hann gat; borðaði ber og
egg, varðist árásum dýra og var bit-
inn af skordýrum. „Ég hefði borð-
að mannakjöt, ég var svo svangur,“
sagði Yossi eftir atvikið. Þrjár vik-
ur liðu þar til honum var bjarg-
að og má í raun segja að tilviljun
ein hafi ráðið því að hann komst
lífs af. Hann rakst á félaga sinn,
Kevin, sem hafði leitað hans síðan
hann hvarf. Kevin hafði gefið upp
alla von um að finna vin sinn á lífi
og var á leiðinni til mannabyggða
þegar hann sá Yossi. Um slysið var
gerð myndin Jungle. Í myndinni
fer Daniel Radcliffe með hlutverk
Yossis. n
n Náttúran er óútreiknanleg n Ricky var einn í óbyggðum Ástralíu í tvo mánuði