Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Blaðsíða 4
4 27. apríl 2018fréttir
Lundinn
BuBBi
faLinn
Árni Johnsen er í tilf-inningaþrungnu helg-arviðtali DV þessa
vikuna sem enginn má
missa af. Árni ákvað að gefa
heppnum lesanda eintak af
þremur glæsilegum diskum
sem Zonet gaf út á dögun-
um. Um er að ræða disk-
ana Við gluggann, sem er
upptaka frá margrómuð-
um afmælistónleikum Árna,
Sólarsvítan, sem inniheldur
valdar útsetningar á sam-
nefndu verki eftir Árna, og
að lokum platan Bara gam-
an, sem inniheldur 110
helstu barna- og æsku-
lýðslög síðustu 50 ára.
Á síðum helgarblaðs
DV er falin mynd af ásjónu
lunda sem að praktísk-
um ástæðum var nefndur
Bubbi. Fundvísir lesend-
ur geta sent DV staðsetn-
ingu lundans á netfangið
bubbi@dv.is. Einn heppinn
lesandi verður dreginn út
og fær viðkomandi þennan
glæsilega útgáfupakka Árna
að gjöf.
... ef þú tyggur
tyggigúmmí á
meðan þú skerð
lauk þá tárastu
ekki.
… kaffi og stundaglös
fluttust fyrst til Íslands í
kringum árið 1760.
… 980 Ástralir eiga
ættir sínar að rekja
til Íslands. Þekkt-
astur er rithöfund-
urinn Alan Gould.
… bjór varð til í Ba-
býlon. Barþjónar
voru teknir af lífi
ef þeir útvötnuðu
bjórinn.
Vissir þú að …
Hver er
hún
n Á níu systkini og
frægan föður
n Á 30 pottaplöntur
n Tók þátt í Söngva-
keppni Sjónvarpsins
2018
n Var í sambandi með Rottweiler-
hundinum Ágústi Bent
n Stýrir bingói á Sæta svíninu.
Svar: Þórunn antonía MagnúSdóttir
Finndu
Bubba í
blaðinu
E
f þetta mikilvæga úrræði
hefði verið komið fyrr í
gagnið, þá hefði Ingólfur
ekki dáið. Hann hafði oft
fengið sýkingar vegna neyslu sinn-
ar og farið þá niður á bráðamót-
töku til þess að fá bót meina sinna.
Þar kom fyrir að hann upplifði for-
dóma í sinn garð. Skömmin gerði
það að verkum að hann faldi sýk-
ingarnar og dró í lengstu lög að
leita sér hjálpar. Í eitt skipti beið
hann of lengi og það dró hann að
lokum til dauða,“ segir Anna María
Ingveldur Larsen í samtali við DV.
Tilefnið er þau tímamót að Frú
Ragnheiður, skaðaminnkunar-
verkefni Rauða krossins, tilkynnti
í vikunni að loks yrðu ókeypis
sýklalyf í boði fyrir skjólstæðinga
úrræðisins. Anna María segir að
tilfinningin hafi verið súrsæt, hún
fagni þessu mikilvæga skrefi en
harmi þá staðreynd að ef skref-
ið hefði verið stigið aðeins fyrr þá
væri ástvinur hennar enn á lífi.
ingólfur var frábær faðir
Þann 26. mars síðastliðinn lést
barnsfaðir Önnu Maríu, Ingólf-
ur Rúnar Sigurz, aðeins fertugur
að aldri. Ingólfur hafði um árabil
barist við fíkniefnadjöfulinn sem
meðal annars hafði orðið til þess
að upp úr sambandi hans og Önnu
Maríu slitnaði. Þau héldu þó alltaf
góðum vinskap enda eiga þau
saman tvö börn, Kristínu Rán, 17
ára, og Alexander Breka, 13 ára,
sem eru niðurbrotin eftir fráfall
föður síns. „Ingólfur var frábær
faðir. Hann var hlýr og ástríkur.
Hann var ákaflega stoltur af börn-
unum sínum,“ segir Anna María.
Barnsfaðir hennar hafi átt mörg
góð tímabil með börnunum en
alltaf hafi fíknin fellt hann aftur.
Að hennar sögn var Ingólf-
ur góður maður en margs kon-
ar áföll gerðu að verkum að hann
átti erfitt uppdráttar í lífinu. „Hann
varð fyrir misnotkun sem barn.
Gerandinn var eldri bróðir vin-
ar hans og hann vann aldrei úr
þeirri reynslu. Hann var greindur
með ADHD en fékk aldrei lyf eða
viðeigandi meðferð,“ segir Anna
María. Ingólfur hafi ungur byrjað
að neyta fíkniefna. Sá skuggi hafi
fylgt honum alla ævi og verið stór
þáttur í því að Ingólfur komst oft í
kast við lögin.
aldrei samur eftir fangelsi í Brasilíu
Hann var aðeins 16 ára þegar hann
hlaut sinn fyrsta dóm og hlaut að
minnsta kosti átta refsidóma fyrir
þjófnað, nytjastuld, ránsbrot, hót-
anir, umferðarbrot sem og alvar-
lega líkamsárás gegn sambýl-
iskonu sinni. Þá vakti það mikla
athygli þegar Ingólfur var hand-
tekinn á flugvellinum í Sao Paulo
í ágúst 2006 með tólf kíló af hassi.
Hann játaði að hafa keypt efnin
fyrir 5.000 dollara í Amsterdam
og ætlað að selja þau á eigin spýt-
ur ytra. Hann hlaut tæplega 7
ára fangelsisdóm fyrir verknað-
inn. „Það var farið hræðilega með
hann úti í Brasilíu. Að mínu mati
varð hann aldrei samur maður
eftir að hann losnaði þaðan,“ segir
Anna María.
Í febrúar í fyrra fékk hún sím-
tal vegna alvarlegs ástands Ing-
ólfs. Hann lá þá meðvitundar-
laus á gjörgæslu og var vart hugað
líf. „Hann hafði fengið sýkingu í
höndina og veigrað sér við að leita
sér hjálpar,“ segir Anna María og
það tekur auðheyrilega á hana að
rifja þessar minningar upp. Þegar
barnsfaðir hennar komst loks
undir læknishendur var sýkingin
búin að dreifa sér út um allan lík-
amann og farin að eyðileggja líf-
færi hans. „Hann eyddi síðasta ári
sínu inni á spítala og í endurhæf-
ingu en náði aldrei heilsu,“ segir
Anna María. Að hennar sögn gat
Ingólfur ekki hætt neyslunni og
lokum þoldi veikburða líkaminn
ekki meira.
Hvött til að loka fyrir fjársöfnun
„Að mínu mati var það skömmin
út af neyslunni sem varð til þess
að Ingólfur veiktist og dó. Hann
var hræddur við að leita sér hjálp-
ar og því er ég afar ánægð með
þessa viðbót í þjónustuna hjá Frú
Ragnheiði. Þar er unnið frábært
starf. Þessi þjónusta kom aðeins of
seint fyrir Ingólf en ég er sannfærð
um að þetta mun bjarga mörgum
mannslífum,“ segir Anna María.
Sjálf segist hún upplifa að
margir aðstandendur Ingólfs upp-
lifi mikla skömm vegna lífshlaups
hans og sorglegra örlaga. „Meðal
annars var efnt til söfnunar fyrir
börnin mín, til þess að styðja við
bakið á þeim. Mér þótti mjög vænt
um það og því kom það mér í opna
skjöldu þegar ég var hvött til þess
að loka strax á söfnunina. Það var
eins og við ættum að skammast
okkar fyrir að Ingólfur hefði dáið
í baráttu við fíkniefnaneyslu. Að
börnin mín ættu ekki rétt á hlýju
og stuðningi,“ segir Anna María.
Hún segist ekki tengja við þessa
skömm. „Að mínu mati barð-
ist Ingólfur við ofurefli allt sitt líf.
Það er hægt að læra margt af lífs-
hlaupi hans og þannig kannski
forða öðrum frá því að feta þessa
braut. Undanfarið hafa einstak-
lingar í neyslu hríðfallið hérlend-
is. Ástandið er hræðilegt og það
verður bara verra ef við jörðum
þessa einstaklinga í kyrrþey og lát-
um sem allt sé í himnalagi,“ segir
Anna María. n
ingóLfur þurfti
Ekki að dEyja
n Skömmin kom í veg fyrir að hann leitaði sér hjálpar
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Svarthöfði
Kjósum til að þurfa ekki að kjósa aftur
S
varthöfði klórar sér reglu-
lega í hjálminum þegar
hann hugsar hvað skuli
kjósa í sveitarstjórnarkosn-
ingunum í vor, ef hann ætlar að
kjósa því eins og flestum er hon-
um nánast alveg sama hvaða gerpi
fær sæti í stjórn Strætó eða Faxa-
flóahafna. Það verður hvort eð er
aldrei neinn sem hefur tekið strætó
eða migið í saltan sjó. Hvað þá að
Svarthöfði nenni að ákveða hvort
hann vilji borgarlínu eða mislæg
gatnamót. Svarthöfði er Íslending-
ur, hann veit að þetta reddast.
Þrátt fyrir að framboðin séu
álíka mörg og íbúafjöldinn í Vest-
ur-Barðastrandarsýslu, þá er
enginn flokkur sem nær að heilla.
Eini flokkurinn sem komst næst
því var fyrirhugað framboð Mar-
grétar Friðriksdóttur sem átti að
fylgja skoðanakönnunum í einu
og öllu. Flokkur sem myndi bara
gera það sem fólkið vill. Það er
flokkur sem á alvöru erindi, bæði
á þing og í sveitarstjórnir. Ágrein-
ingur? Ekkert mál, ein skoðana-
könnun og málið er dautt.
Ef flokkurinn, sem Svarthöfði
kýs að kalla Íslandsfylkingar-
flokkinn, næði hreinum
meirihluta þá væru öll vanda-
mál Íslendinga úr sögunni. Við
þyrftum aldrei að sitja uppi
með dómsmálaráðherra sem
meirihlutinn vill að fari. Þá yrðu
engar áfengisauglýsingar, engin
einkarekin heilbrigðisþjónusta,
en samt héldum við einkarek-
inni heilbrigðisþjónustu sem
almenningur vill að sé í boði,
enginn Steingrímur og þing-
menn þyrftu að ganga í vinnuna,
sporslulausir og dagpeninga-
snauðir.
Landhelgisgæslan myndi
taka yfir flest ef ekki öll hlutverk
í samfélaginu því það er stofnun-
in sem flestir treysta. Ísland yrði
áfram með stjórnarskrárvarða
þjóðkirkju, en það batterí myndi
boða trú á guð en ekki of mikla
trú því meirihlutinn trúir ekki að
guð hafi skapað heiminn. Börn
myndu komast mánaðargöm-
ul inn á leikskóla þar sem leið-
beinendurnir væru með millj-
ón á mánuði, án þess að það
yrðu hækkaðir skattar. Og allir og
amma þeirra myndu heyra undir
kjararáð, sem yrði samt lagt nið-
ur.
Þvílík paradís, þá værum við
líka laus við að þurfa að kjósa á
hverju einasta ári, þyrftum ekki
einu sinni að kjósa aftur. Höfnum
stefnumarkaða draslinu, kjósum
Íslandsfylkingarflokkinn! n
„Ástandið er hræði-
legt og það verður
bara verra ef við jörðum
þessa einstaklinga í kyrr-
þey og látum sem allt sé í
himnalagi.
Stoltur af börnunum
Ingólfur var frábær faðir að
sögn barnsmóður sinnar.