Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Side 6
6 27. apríl 2018fréttir
É
g held örugglega að þetta
hafi verið stærsta swingpar-
tíið sem haldið hefur verið
á Íslandi til þessa,“ segir sól-
brúni, myndarlegi maðurinn sem
situr á móti mér við eldhúsborðið.
Út um gluggann er fallegt útsýni
yfir fjallahringinn og sólin skín.
Ég er mætt í heimsókn til fólks
sem við skulum bara kalla Daníel
og Dóru – þau heita það að sjálf-
sögðu ekki, enda vilja þau halda
sínu aðaláhugamáli leyndu nema í
afskaplega þröngum hópi. Þau eru
búin að vera par síðan á unglings-
aldri, eiga þrjú uppkomin börn og
tvö barnabörn. Fólk í góðu formi
og á góðum stað í lífinu. Heim-
ilið er bjart og fallegt og þau taka
hlýlega á móti mér með kossum
og knúsi. Ég fæ kaffi í bolla og sest
á móti þeim – þau geisla eigin-
lega, það er í það minnsta eitthvað
meira í gangi en sólin sem skín inn
um gluggann.
Kynfrelsi í einbýlishúsi
Fyrir skömmu stóðu þau hjónin
fyrir partíi í Reykjavík. Þar komu
saman um 40 manns í þeim til-
gangi að fagna nekt, kynfrelsi og í
mörgum tilfellum að stunda kyn-
líf saman. Þetta var svokallað
swingpartí og ykkar einlæg var
svo heppin að hlotnast innganga
í boðið. Færri komust að en vildu.
Gestgjafarnir veittu leyfi fyrir
greinarskrifum, vitaskuld að því
gefnu að ekki væri hægt að greina
persónueinkenni gesta, því flestir
sem stunda þetta áhugamál kæra
sig lítið um að dragast inn í opin-
bera umræðu. Þau samþykktu að
auki að veita mér viðtal um ára-
langa reynslu sína af swingheim-
inum – lífi sem marga dreymir um,
en fáir láta rætast.
Púsluðu sambandinu saman á ný
„Það eru örugglega 15 ár síðan
við fórum að fikta við ýmislegt
óhefðbundið í kynlífinu. Bjóða
aukaleikurum upp í rúm með
okkur og þess háttar. Skömmu
áður vorum við komin ansi langt
frá hvort öðru og búin að tapa
nándinni milli okkar að miklu
leyti, unnum eins og skepn-
ur, vorum aldrei heima og kom-
in út í framhjáhald og alls konar
rugl,“ segir Daníel. Dóra samsinn-
ir þessu. „Við vorum auðvitað búin
að ganga í gegnum ýmislegt eins
og öll pör eftir langan tíma, en við
náðum að sortera þetta sjálf og
púsla sambandinu saman.“
Vendipunkturinn átti sér stað
í helgarferð þeirra hjóna eitt
haustið. Dóra heldur áfram: „Við
fórum og gistum bara tvö í litlum
bústað. Tókum með okkur rauð-
vín og nesti. Við ákváðum að setj-
ast niður, tala saman og ekki draga
neitt undan. Þarna sátum við fram
á nótt á algjöru trúnó og hreinsuð-
um út gamlar syndir, leyndar-
mál og óuppgerðar tilfinningar.
Við hreinlega mokuðum öllu út
og sambandið lagaðist mikið eft-
ir þessa ferð.“ Daníel bætir því við
að kannski mætti segja að þau hafi
þarna byrjað saman upp á nýtt.
Skömmu eftir örlagaríku
nóttina í bústaðnum ljóstruðu
vinahjón Dóru og Daníels því upp
að þau stunduðu swing, eða væru
í lífsstílnum eins og það er oft orð-
„Ég er ekki gaurinn
sem horfir á aðra
taka konuna sína,
heldur er ég með
í leiknum“
Daníel og Dóra stóðu fyrir swingpartíi í Reykjavík:
Ragnheiður Eiríksdóttir
ritstjorn@dv.is
n 40 manns greiddu aðgangseyri n Stærsta swingpartí
sem haldið hefur verið á Íslandi n Kynlíf með öðrum
lagaði sambandið n Dóra kann að meta svarta menn
„Ég hef oftast
samband við
mennina sem við bjóðum
í rúmið með okkur