Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Síða 19
fólk - viðtal 1927. apríl 2018
„Það eina sem barn þarf til að vera hamingjusamt
er forráðamaður sem elskar það skilyrðislaust“
S
unna Rós Baxter er þrjátíu
og eins árs gömul og fór í
aðgerð í janúar árið 2017.
Hún er mjög ánægð með
þá þjónustu sem henni var veitt.
Sunna á tvö börn en aðeins yngra
barnið er getið með sæðisgjafa.
Ástæða Sunnu fyrir því að velja
þessa aðferð var einföld.
„Ég var einstæð og ég vildi
eignast barn. Ég vildi verða ólétt í
janúar svo ég fór og lét taka lykkj-
una mína í október og fór svo í
viðtal hjá IVF klíníkinni í nóv-
ember. Eftir viðtalið fór ég heim
með bækling þar sem slóðin inn
á sæðisbankann var. Ég skráði
mig inn og þar var hægt að sjá alla
sæðisgjafana,“ segir Sunna sem er
nú í fæðingarorlofi með syni sín-
um.
„Ég valdi svo einn sæðisgjafa
og sendi póst á IVF sem sér um
að panta sæði frá þeim gjafa. Í
janúar fór ég í uppsetningu og
tíu dögum síðar fékk ég jákvætt
þungunarpróf.“
Sjö vikum síðar fór Sunna í
snemmsónar þar sem staðfest var
að hún væri þunguð og að hjart-
sláttur fóstursins væri eðlilegur.
Hefur lesið ljótar
athugasemdir um sjálfa sig
Sunna segir fátt hafa komið henni
á óvart í ferlinu sjálfu en að for-
dómar hafi þó gert vart við sig í
kjölfarið.
„Fólk hefur ekki sagt neitt við
mig en það hafa verið skrifaðar
greinar um mig og þetta ferli mitt
og ég hef séð fordóma á netinu frá
fólki sem hefur lesið þær greinar.
Ég hef séð athugasemdir eins og
að ég eigi ekki rétt á leikskóla né
læknisaðstoð fyrir barnið mitt
vegna þess að fyrst að ég telji mig
geta gert þetta ein þá eigi ég að
gera þetta alveg ein. Ég hef líka
lesið að ég sé að brjóta barnasátt-
málann með því að neita barninu
um að vera í sambandi við föð-
ur sinn en sæðisgjafi er ekki for-
eldri.“
Sjálf hefur Sunna gefið egg og
telur hún sig ekki foreldra þeirra
barna sem fæddust í kjölfarið á
því.
„Það er enginn að halda mér
frá þeim börnum enda eru þau
ekki mín börn. Svo hef ég líka
lesið að ég sé að bjóða upp á að
barnið mitt verði lagt í einelti. Það
neyðist enginn til þess að leggja
einhvern í einelti, manneskja
sem leggur í einelti gerir það vís-
vitandi og getur engum kennt um
nema sjálfri sér. En svona fáfræði
hefur engin áhrif á mig,“ segir
Sunna og bætir við að hún hafi
eignast þetta barn fyrir sjálfa sig,
dóttur sína og barnið sjálft.
„Ef fólk ætlar að taka það
persónulega inn á sig hvernig ég
lifi mínu lífi þá þarf það að eiga
það við sjálft sig.“
Gott að þurfa ekki að hafa
áhyggjur af maka
Sunna
seg-
ist einnig
hafa orðið
vör við mikla
forvitni fólks en hún
hefur rætt ferli sitt mikið opinber-
lega.
„Hvaða leið fólk kýs að fara
skiptir ekki máli. Ég mæli með því
að fólk eignist barn ef það hefur á
annað borð áhuga á því. Það sem
skiptir máli er viljinn til að eignast
barn og eru margar leiðir til þess.
Fólk verður að finna hvað hent-
ar sér. Ég hef verið einstæð í níu
ár og finnst ég ekki vera að missa
af neinu. Ég á vinkonur og ég er í
mömmuhópum. Margir af þess-
um pöbbum gera ekki mikið gagn
hvort eð er. Ég myndi
sturlast ef ég væri ein að sjá um
allt og pabbinn bara í sófanum
að slaka á. Mér finnst mjög þægi-
legt að þurfa ekkert að spá í hvað
hann er að gera eða hvaða hlut-
verk hann á að taka að sér. Ég get
haft allt eftir mínu höfði og ef mig
vantar pössun þá finn ég út úr því,“
segir Sunna aðspurð hvort henni
finnist ekki erfitt að vera eina for-
eldrið.
„Ég þarf ekkert frí frá því að
vera foreldri, en stundum langar
mig eða þarf að gera eitthvað sem
börn eru ekki velkomin í og þá
fæ ég pössun. Að hugsa um þessi
börn mín ein er jafn eðlilegt fyrir
mér eins og að hugsa um sjálfa
mig ein. Fólki finnst væntanlega
ekkert mál að fara sjálft á klósettið,
baða sig sjálft og að tyggja matinn
sinn og allt þetta. Kannski væri líf-
ið auðveldara ef þú þyrftir bara að
gera helminginn, en til hvers að fá
einhvern til þess að tannbursta þig
og klæða annan hvern dag þegar
þetta er ekkert mál?“
Sunna segir að bæði börnin
hennar séu mjög róleg og sé hún
heppin að því leyti.
„Til þess að barn alist upp ham-
ingjusamt þá þarf það ekki að eiga
mömmu og pabba. Það eina sem
það þarf er forráðamaður sem
elskar það skilyrðislaust, gefur
barninu frelsi til þess
að vera það sjálft og
nýtur þess að verja
tíma með því.“
Sunna Rós Baxter„ Ég þarf ekkert frí frá því að
vera foreldri
sunnabaxter