Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Side 22
22 umræða 27. apríl 2018
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
Aðalnúmer: 512 7000
Auglýsingar: 512 7050
Ritstjórn: 512 7010
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Aðalritstjóri og ábyrgðarmaður: Kristjón Kormákur Guðjónsson
Aðstoðarritstjóri: Einar Þór Sigurðsson Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
Suðurlandsbraut 14
2. hæð
108 Reykjavík
fréttaskot
512 7070
abending@dv.is
Fyrirgefðu Alda. Fyrirgefðu Sæborg
Í
dag birti DV.is nafnlausa grein
um feminískt hlaðhvarp sem
tveir meðlimir í stjórn Trans
Íslands reka saman. Í þessari
grein voru tilvitnanir í hlaðvarp-
ið sem teknar voru úr öllu sam-
hengi. Þessar tilvísanir voru sett-
ar fram af Öldu og Sæborgu, eins
og hlaðvarpið allt, sem satíra.“
Á þennan hátt hófst yfirlýsing
sem stjórn Trans Íslands sendi
DV síðastliðinn miðvikudag. Til-
efnið var áðurnefnd frétt sem
blaðamaður DV byggði á hlað-
varpsþættu Öldu og Sæborgar.
Þar voru þung orð um karlmenn
látin falla. Meðals annars var
þeim líkt við kakkalakka og sagð-
ir samfélagslegt vandamál. Sæ-
borg og Alda fullyrða að öll um-
mælin um karlmenn hafi verið
látin falla í kaldhæðni. Í samtali
við Stundina er því haldið fram
að markmið hinna grimmu um-
mæla um karlmenn hafi verið til
að vekja fólk til umhugsunar.
Í frétt DV voru þau mistök
gerð að ekki var greint frá því
að snemma í þættinum lét Alda
þau ummæli falla að það væri fá-
ránleg hugmynd að „femínismi
snúist um það að við viljum út-
rýma öllum karlmönnum“. Þau
mistök harmar blaðið.
Í yfirlýsingu frá stjórn Trans
Íslands sagði einnig: „Þetta
hlaðvarp er gott dæmi af hug-
takinu „punching up“, þar sem
fólk í jaðarsettum hópum (kon-
ur, trans fólk) gerir grín að vald-
hafandi hóp (karlmenn). Það er
allt og sumt. Það er ekki sam-
særi og þetta er ekki útkall fyrir
því að Trans Ísland vilji drepa
alla karlmenn. Þessi grein og við-
brögð hennar gera lítið meira en
að sanna það sem Alda og Sæ-
borg hafa einmitt sem aðalþema
í þessu hlaðvarpi: hvað samfélag-
ið okkar er meðvirkt með eitraðri
karlmennsku.“
Í yfirlýsingunni segir enn
fremur að Trans Ísland fordæmi
misskynjun á Öldu í greininni og
telja samtökin að blaðamaður
DV hafi af ásettu ráði sagt hún í
stað hán til að meiða Öldu. Það
er af og frá. Enginn blaðamaður á
DV reynir af ásettu ráði að meiða
fólk og það er ljótt að halda slíku
fram. Blaðamenn DV eru í þessu
starfi því þeir vilja láta gott af sér
leiða. Og rétt eins og í öllu sem
við tökum okkur fyrir hendur í
leik og starfi verður okkur á. Ég
hef gert alvarleg mistök sem enn
banka í öxlina á mér. Og ég á eftir
að gera mistök aftur.
Blaðamaðurinn, sem ný-
lega tók til starfa á DV og skrif-
aði fréttina, á eftir að gera mistök
líka. Hann harmar að hafa ekki
vandað vinnubrögð sín og mun
læra af mistökum sínum. Í yfirlýs-
ingu Trans Íslands er einnig tekið
fram að efni hlaðvarpsins endur-
spegli ekki stefnu Trans Íslands
þar sem barátta transfólks sé ekk-
ert grín. Persónulega fannst mér
grínið eða ádeilan smekklaus og
tel að bæði Alda og Sæborg hefðu
verið gagnrýnd fyrir brandarana
ef blaðamaður hefði vandað til
verksins. Ofbeldisádeilur hitta
nefnilega sjaldan í mark og að
gera grín að því að lemja menn,
nauðga konum er vandmeðfarið.
En það er allt önnur saga.
Það sem skiptir öllu máli er að
Sæborg og Alda urðu fyrir árás-
um vegna mistaka við vinnslu
fréttar blaðsins. Sæborg og Alda
hafa lýst því yfir að ekki hafi ver-
ið um raunverulegar skoðanir
þeirra að ræða. Ég er ábyrgðar-
maður þess efnis sem birtist á
vef DV. Ég harma að þessi frétt
hafi farið í loftið. Ég er sjálfur fað-
ir transbarns og það er virkilega
sárt að hugsa til þess að valda
því samfélagi skaða sem hefur
á margan hátt staðið með syni
mínum og hjálpað mér sjálfum.
Sonur minn sendi mér skilaboð
og sagði: „Mér fannst ekki snið-
ugt að setja þessa frétt inn.“ Ég er
sammála Gabríel, syni mínum.
Hún átti aldrei að fara í loftið eins
og hún var unnin.
Ég bið Öldu og Sæborgu inni-
legrar afsökunar. n
Leiðari
Kristjón Kormákur Guðjónsson
kristjon@dv.is
Spurning vikunnar Ertu fylgjandi heimanámi?
„Nei, en ég er ekki í skóla.“
Alexandra Sigurðardóttir
„Já, ég held að það sé ágætis ögun.“
Sveinn Ólafsson
„Já, ég tel að fólk eigi að hafa þann möguleika.“
Guðmundur Skúli Johnsen
„Já. Það kennir manni að vinna sjálfur.“
Haukur Jörundur Hálfdánarson
Sæborg og Alda