Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Page 32
Ferðalok 27. apríl 2018KYNNINGARBLAÐ Gæði og persónuleg þjónusta í fyrirrúmi SteinSmiðja akureyrar: Hjónin Birnir reyr Vignisson og Sunneva Árnadóttir keyptu Steinsmiðju akureyrar áramótin 2016/17 af stofnanda fyrirtækisins, Þóri Barðdal, sem rekið hafði fyrirtækið frá 2011. „Okkur barst til eyrna að Þórir hefði hugsanlega áhuga á að selja fyrirtæk- ið og okkur fannst þetta vera alveg tilvalið fyrir okkur. mig var farið að langa til að breyta til og svona vinna hentar mér mjög vel,“ segir Birnir. „Það varð ekki úr strax en um ári síðar hafði Þórir samband við okkur og spurði hvort við hefðum enn áhuga og við slógum að sjálfsögðu til. Fljótlega eftir að við keyptum fyrir- tækið, fluttum við það í huggulegt hús- næði að njarðarnesi 4. Það hefur geng- ið mjög vel hjá okkur hingað til og við horfum bjartsýn fram á við og ætlum að gera enn betur. Gæði og persónuleg þjónusta verður þó alltaf í fyrirrúmi. Við gerum minnisvarða úr því sem til fellur af íslensku grjóti og svo úr innfluttu graníti. Granít er það harðasta sem til er og það endist í mannsaldra. Við hugsum einnig um gæði, þegar kemur að aukahlutum, eins og luktum, vösum og fuglum. Við viljum að þetta endist vel með steininum. Við bjóðum upp á frían flutning um allt land á legsteinum.“ Saltlampar og ný framleiðsluvara, „A ROCK FROM ICELAND“ Steinsmiðja akureyrar flytur einnig inn saltlampa frá Himalaja. „Það eru nokkrar verslanir sem eru með lampa frá okkur, auk þess sem þeir eru seldir í verslun Steinsmiðjunnar, þeir eru að seljast vel, sérstaklega í skammdeginu og fyrir jólin. Það var svo í fjöruferð með börn- unum að við fengum hugmyndina að því að gera eitthvað með fjörusteina. Við byrjuðum á því að búa til stein-snaga og gera tilraunir með þá, það er sandblása myndir í steininn og útfæra aðeins vinnsl- una. Síðan vaknaði hug- myndin að „a rOCk FrOm iCeLanD“. Okkur fannst þetta tilvalinn minjagripur fyrir ferðamenn og jafnvel skemmtileg tækifærisgjöf. Við erum að grafa myndir í steininn, eins og til dæmis lunda, Ísland, hvali, hrafn, Ægishjálm og kennileiti eins og Herðu- breið og Hvítserk. möguleik- arnir eru ansi margir. Það fylgir einnig umhverfis- vænn gjafa- poki hverjum steini. Steinarnir hafa fengið mjög góðar viðtökur og fást sem stend- ur á nokkrum stöðum á norðaustur- landi og í reykjavík. „Við erum að mjög spennt fyrir þessu verkefni, það verður gaman að sjá hvernig það mun þróast,“ segir Birnir. „Heimasíðan minnismerki.is var upp- færð á árinu. um 70% af viðskiptunum fara fram í gegnum hana. Á henni má sjá allt sem Steinsmiðja akureyrar býð- ur upp á. Við erum líka á Facebook.“ Steinsmiðja Akureyrar er staðsett að Njarðarnesi 4, Akureyri. Afgreiðslutími er virka daga frá kl. 13 til 17. Sími 466- 2800 og heimasíða minnismerki.is. ný vara, fjörusteinarnir „a rOCk FrOm iCeLanD“, fær góðar viðtökur Ábyrgðarmaður: Steinn kári ragnarsson / steinn@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.