Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Qupperneq 40
KYNNING
Ástjörn – einstakar sumarbúðir Á fallegum stað:
Ástjörn er umlukin
stórkostlegri náttúrufegurð
Sumarbúðirnar Ás-tjörn í kelduhverfi eru fyrir drengi og stúlkur
á aldrinum 6–12 ára og
13–15 ára unglinga. Þær voru
stofnaðar 1946. börnin koma
alls staðar að af landinu.
„mörg börnin sem koma til
okkar eiga foreldra sem voru
í sumarbúðunum hjá okkur
þegar þeir voru börn og það
er mjög ánægjulegt því það
sýnir að foreldrarnir vilja veita
börnunum sínum það sem
þau sjálf upplifðu hér,“ segir
Árni Hilmarsson forstöðu-
maður.
Hugmyndaflugið virkjað í
leikjum og útiveru
flest börnin koma í einn
flokk, en sum dvelja leng-
ur. flokkarnir eru 7, 8 eða
10 sólarhringar. tjörnin og
birkiskógurinn umhverfis
sumarbúðirnar er endalaus
uppspretta leikja og útiveru.
má nefna t.d. knattspyrnu-
og körfuboltavöll, kvöldvökur,
söng, náttúruskoðun í Ásbyrgi
og víðar, biblíutíma, föndur,
alls kyns leiki og keppnir í
skóginum og víðar, íþrótta-
hús í næsta nágrenni, sund
í tjörninni eða fjöruferð á
góðviðrisdögum, hestaleigu
og margt fleira. bátar eru af
ýmsum gerðum: Árabátar,
kajakar, kanóar, hjólabátar og
skútur. „Hjá okkur er stærsti
bátafloti í sumarbúðum á
Íslandi, en við erum með
tugi báta af öllum gerðum,
meira að segja svokallaða
sökkvibáta!“ segir Árni, en
það eru bátar sem börnin
mega sökkva á góðviðrisdög-
um þegar synt er í tjörninni.
Hornsílaveiðar eru sívinsælar.
„Það er alltaf jafn gam-
an að heyra að börnin fari
ánægð heim,“ segja starfs-
menn Ástjarnar.
reynt er að hafa verðið
fyrir sumardvölina eins
hagstætt og mögulegt er, en
það er um 6.000 kr. á sólar-
hring. systkini koma nokkuð
oft saman enda býður
skipulagið upp á það og auk
þess er systkinaafsláttur.
fyrir þau börn sem koma
með flugi þá á Ástjörn
frátekin flugsæti, sjá nánar
astjorn.is/flug.
fylgdarmaður frá Ás-
tjörn eða flugfélaginu fylgir
börnunum í flugvélinni. Á ak-
ureyrarflugvelli taka starfs-
menn Ástjarnar á móti þeim
börnum sem koma með flugi.
síðan er lagt af stað ak-
andi til Ástjarnar. Það tekur
um 2 klukkustundir að aka
milli akureyrar og Ástjarnar,
sem er innifalið í dvalar-
gjaldinu.
Ástjörn hefur m.a. þá
sérstöðu að þvottahús er
á staðnum. Þar er allt
þvegið af börn-
unum, mörgum
foreldrum til
mikillar ánægju.
Ávallt er
lögð áhersla
á að kenna
börnunum að
ganga vel um
náttúruna.
Í nágrenni
Ástjarnar eru líka
sannkallaðar nátt-
úruperlur og athyglis-
verðir staðir sem upplagt
er fyrir Íslendinga almennt
að skoða betur, t.d. Ásbyrgi,
Hljóðaklettar, Hólmatungur,
grettisbæli, jökulsárgljúfur,
Dettifoss og Hafragilsfoss.
nánari upplýsingar og
skráning í síma 462-3980,
á heimasíðunni astjorn.is og
einnig á
facebook.com/astjorn þar
sem hægt er að sjá fleiri
myndir, og sömuleiðis mynd-
bönd á
youtube.com/astjorn
Einnig eru
föndurhugmyndir á
pinterest.com/astjorn
Netfang er
astjorn@astjorn.is