Morgunblaðið - 24.04.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2018
Björn Bjarnason vekur athygli áþví á heimasíðu sinni að leiðum
almennra borgarbúa að borgar-
stjóra hafi verið lokað í tíð Jóns
Gnarrs og Dags B. Eggertssonar.
Hann bendir á sam-
tal Morgunblaðsins í
gær við Aldísi Stein-
dórsdóttur, unga
konu „sem berst fyr-
ir rétti geðfatlaðs
föður síns“.
Björn skrifareinnig: „Um
miðjan febrúar síð-
astliðinn óskaði Aldís
eftir að fá að hitta
Dag B. Eggertsson
borgarstjóra. Henni
var í staðinn boðið að
ræða við fram-
kvæmdastjóra þjónustumiðstöðvar
Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða.
Liðu nokkrar vikur þar til samtalið
fékkst án þess að það skilaði
nokkru.
Þetta dæmi sýnir að almennurborgarbúi fær ekki fund með
borgarstjóra. Hann er á annarri
plánetu, boðar Miklubraut í stokk
fyrir 21 milljarð og borgarlínu fyrir
70 milljarða. Borgarstjóri ver tíma
sínum með lánardrottnum frekar en
að gæta hags skattgreiðenda –
skuldir á íbúa eru hvergi hærri en í
Reykjavík og enn skal þeim safnað.“
Þetta er ekki einstakt dæmi umað borgarbúar nái ekki tali af
borgarstjóra. Morgunblaðið sagði
frá því fyrr á árinu að eigendur
mannvirkja á Klapparstíg 19 og
Veghúsastíg 1 hefðu reynt að ná tali
af borgarstjóra eftir áralanga bar-
áttu við borgina sem hafði beitt þá
rangindum.
Þótt sjálfsögð væri sinnti borg-arstjóri ekki þeirri fundar-
beiðni frekar en öðrum slíkum frá
almennum borgurum.
Björn Bjarnason
Borgarstjóri
einangrar sig
STAKSTEINAR
Dagur B.
Eggertsson
Innanríkisráðuneyti hefur brugðist við ábend-
ingum Ríkisendurskoðunar með því að tryggja
ríkissaksóknara aukin fjárframlög síðustu ár,
auk þess sem álag á embættið minnkaði með
stofnun embættis héraðssaksóknara árið 2016.
Á vef Ríkisendurskoðunar segir jafnframt að
frá þeim tíma hafi Ríkissaksóknari haft aukið
svigrúm til að skerpa á stjórnunar- og eftirlits-
hlutverki sínu. Þá hyggst ráðuneytið fela rétt-
arfarsnefnd að meta hvort og þá hvernig skil-
greina megi betur sjálfstæði ríkissaksóknara í
lögum.
Ennfremur segir að embætti ríkissaksókn-
ara hafi unnið að innleiðingu verkbókhalds frá
því að ábendingin var lögð fram árið 2015.
Innleiðingin hefur tafist en þar sem stefnt er
að því að hefja skráningu verkbókhalds í til-
raunaskyni í byrjun maí 2018 telur Ríkisend-
urskoðun ekki ástæðu til að ítreka ábend-
inguna.
Aukinn stuðningur og minna álag
Ríkissaksóknari hefur fengið aukin fjárframlög
síðustu ár og álag á starfsmenn hefur minnkað
Fjárframlög Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari.
Best færi á því að
forræði sjúkra-
flutninga yrði að
nýju hjá sveitar-
félögum líkt og
forðum. Þannig
yrði tryggt öflugt
og samræmt við-
bragð á vegum
slökkviliðanna.
Þetta segir í ályktun Félags
slökkviliðsstjóra sem hélt aðalfund
sinn nýlega. Slökkviliðsstjórar vitna
í ályktun sinni til Svandísar Svav-
arsdóttur heilbrigðisráðherra sem
sagði í Morgunblaðinu nýlega að
endurskipuleggja þyrfti utanspítala-
þjónustu. Ríkisendurskoðun hafi
einnig bent á að heildarstefnu í
sjúkraflutningum vanti. Í dag sinni
slökkviliðin um 80% sjúkraflutninga
á Íslandi. Samkvæmt lögum beri
sveitarfélögum að reka slökkvilið en
ríkinu að reka sjúkraflutninga. Sam-
legðaráhrif séu augljós þegar litið er
til mannafla, starfsstöðva, búnaðar
og styrks, segja slökkviliðsstjórar.
sbs@mbl.is
Sveitar-
félögin
taki við
Álykta um
sjúkraflutninga
Dvergshöfða 2, 110 Reykjavík bilanaust@bilanaust.is
Sími: 535 9000 | bilanaust.is
Gæði, reynsla og gott verð
Vottaðir hágæða
VARAHLUTIR
í flestar gerðir bifreiða
Siðan 1962
Bílanaust er einnig í Hafnarfirði – Keflavík – Selfossi – Akureyri – Egilsstöðum
Veður víða um heim 23.4., kl. 18.00
Reykjavík 10 skýjað
Bolungarvík 2 skýjað
Akureyri 2 snjókoma
Nuuk -1 alskýjað
Þórshöfn 6 léttskýjað
Ósló 8 léttskýjað
Kaupmannahöfn 15 heiðskírt
Stokkhólmur 5 rigning
Helsinki 6 heiðskírt
Lúxemborg 18 léttskýjað
Brussel 16 léttskýjað
Dublin 13 rigning
Glasgow 10 skúrir
London 14 skýjað
París 18 skýjað
Amsterdam 13 léttskýjað
Hamborg 14 léttskýjað
Berlín 20 heiðskírt
Vín 26 léttskýjað
Moskva 7 heiðskírt
Algarve 21 léttskýjað
Madríd 23 heiðskírt
Barcelona 22 heiðskírt
Mallorca 25 heiðskírt
Róm 23 heiðskírt
Aþena 21 heiðskírt
Winnipeg 10 skýjað
Montreal 15 skýjað
New York 11 heiðskírt
Chicago 13 skýjað
Orlando 27 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
24. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:24 21:29
ÍSAFJÖRÐUR 5:16 21:47
SIGLUFJÖRÐUR 4:59 21:30
DJÚPIVOGUR 4:50 21:02