Morgunblaðið - 31.05.2018, Blaðsíða 52
52 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018
Birtingar sem dvelja í faðmi ís-
lenskra jökla eru fremstir meðal jafn-
ingja. Um það vitna stórvaxnir birt-
ingar og stofnar þeirra á jöklaslóðum.
Þá gildir litlu hvort jökulbráðin sem
fóstrar sjóbirtinginn hefur síast um
jarðlögin áður en hún skilar sér til
hans í tærum lindum – eða beljar
fram ósíuð. Jökulárnar eru lífæð sem
flytur næringarefni á ætisslóð sjó-
birtinganna, með sjávarströndum út
frá ósum þeirra áa.
Síritandi sjóbirtingar
Sjóbirtingar úr faðmi Vatnajökuls
eru umfjöllunarefni þessara skrifa.
Sjóbirtingurinn er vorboðinn í fersk-
vatni Íslands, en frá vori og fram á
sumar hefur hann árlegar göngur
sínar til sjávar. Þá sjávardvöl hef ég
rannsakað nánast árlega í ríflega 20
ár. Nú þegar sporðaköst sjóbirting-
anna eru í algleymi í aðdraganda
sjávardvalar þeirra, þá er við hæfi að
kynna til sögunnar ítarlegar upplýs-
ingar um sjávardvöl þessara silfur-
slegnu urriða. Í árslok 2017 birtist
grein mín „The marine migration and
swimming depth of sea trout in Ice-
landic waters“ í bókinni Sea Trout:
Science and Management. Megin-
umfjöllunarefni greinarinnar er
sjávardvöl sjóbirtinga, með hliðsjón
af því hvernig sjógangan afmarkast í
tíma og einnig í rúmi, hvað varðar
dýpi sjávarins sem fiskarnir halda sig
á. Greinin byggist á úrvinnslu gagna
sem ég safnaði í nánu samstarfi við
sjóbirtinga úr Grenlæk og Tungulæk
á 11 árum (1996-2011). Þeir birtingar
voru merktir með síritandi rafeinda-
fiskmerkjum, í ánum áður en þeir
gengu í sjó. Því má segja að sjóbirt-
ingarnir hafi sjálfir séð um að skrá
hegðun sína og umhverfi meðan á
sjávardvölinni stóð. Mæliniðurstöð-
urnar setti ég síðan fram með hlið-
sjón af kyni þeirra, stærð, aldri og
lífssögu, en gögnin í heild opnuðu áð-
ur óþekkta sýn á lífshætti þessara
fiska í sjó.
Langtímavöktun
á atferlisvistfræði
Rannsóknaniðurstöðurnar eru
byggðar á hundruðum þúsunda mæl-
inga á fiskdýpi og sjávarhita þau 11
ár sem hér eru til umræðu, þar sem
tíðustu mælingarnar voru á fimm
sekúndna fresti. Aukin-
heldur voru til viðbótar
þessu framkvæmdar
mælingar á seltu sjávar
yfir þrjú þessara ára.
Mæligögnin komu frá
þeim merktu fiskum
sem endurveiddust,
bæði í stangveiði og í
sértækum veiðum mín-
um á mælimerktum
fiskum að hausti og í
byrjun vetrar. Alls voru
skráðar sjóferðir hjá 41
birtingi, en heildarfjöldi skráðra sjó-
ferða var 47 því í fáeinum tilvikum
reyndist unnt að skrá tvær eða þrjár
sjóferðir hjá sama fiskinum. Með
þessum hætti reyndist unnt að fá
fram hvert væri samspilið á milli
hegðunar fiskanna og umhverfis
þeirra. Gögn þessi yfir sjógöngu sjó-
birtinganna eru einstök í sinni röð á
veraldarvísu og vitna samhliða um
eitt fárra tilvika þar sem atferlisvist-
fræði fiskistofna í sjó hefur verið
kortlögð með langtímavöktun (> 10
ár).
Aldur og forsaga fiskanna
Sjóbirtingarnir sem skiluðu gögn-
um um sjávardvöl sína voru við
merkingu fjögurra til tíu ára gamlir.
Þessir stálpuðu geldfiskar og stærri
hrygningarfiskar voru 32 til 76 cm
langir við merkingu, en voru 47 til 81
cm langir við endurheimtu. Lífssaga
þeirra sem lesin var úr hreistri þeirra
endurspeglaði dæmigerðan lífsferil
íslenskra sjóbirtinga sem dvelja sam-
fellt í ferskvatni í tvö til fjögur ár áð-
ur en þeir ganga fyrst í sjó. Í kjölfar-
ið ganga þeir síðan árlega í sjó það
sem eftir er ævinnar. Þegar birting-
arnir hafa lokið tveimur til fjórum
sjóferðum hrygna þeir í fyrsta sinn
og síðan árlega eftir það.
Tímaspönn sjávar-
göngunnar
Yfir hvaða tímabil
teygði sjávardvöl sjó-
birtinganna sig öll þessi
ár? Dæmigerð sjóganga
birtinganna hófst í maí
eða júní og lauk síðan á
tímabilinu frá síðari
hluta júlí og fram í
september. Sjávar-
dvölin endurspeglaði
öðru fremur þann tíma
sumars þegar bjart
næturhúmið leysir myrkrið af hólmi,
sem hentar vel fiski sem byggir ætis-
öflun sína á sjón öðru fremur. Sjó-
gangan hjá þessum 4-11 ára sjóbirt-
ingum spannaði tímabil sem nam frá
23 dögum og upp í 183 daga. Að
meðaltali var sjógangan 59 daga löng.
Ellibelgur á öðrum nótum
Ein skráð sjóganga var hins vegar
fjarri því að vera dæmigerð. Þar var
um að ræða sjávardvöl elsta og
stærsta sjóbirtingsins sem sýndi
gönguhegðun sem var ekki í neinu
samræmi við venjubundna hegðun ís-
lenskra sjóbirtinga. Sá birtingur
skráði sig í sögubækurnar þegar
hann eftir 188 daga sjávardvöl í sinni
8. sjógöngu veiddist sumarið 2011 í
troll við makrílveiðar um 35 km suð-
austur af Surtsey. Þá var þessi 81 cm
langi hængur úr Tungulæk staddur
um 160 km vestur af heimaósi sínum
Veiðiósi, þar sem Skaftá og Grenlæk-
ur renna til sjávar. Mælimerki þess
gamla hafði þá skráð þrjár síðustu
sjóferðir hans (2009, 2010 og 2011) en
áður hafði ég veitt hann til að merkja
hann og mæla á riðstöðvum Tungu-
lækjar, fyrst 2007 og aftur 2008.
Fyrsta skráða sjávardvöl þessa birt-
ings árið 2009 var dæmigerð (maí-
ágúst). Ári síðar hefst ætisganga birt-
ingsins í sjó á hefðbundnum tíma í
maí, en sjávardvölin varð lengri en
dæmi voru um hjá sjóbirtingi hér-
lendis (183 dagar). Þriðja skráða sjó-
ferð þessa birtings (þá 12 ára gamall)
hófst í lok desember, sem um leið
varð fyrsta skráða tilvik þess að ís-
lenskur sjóbirtingur byrjaði sjógöngu
sína að vetrinum, þ.m.t. þegar litið
var til fyrri ætisgangna sama birt-
ings. Sú staðreynd, ásamt löngum
dvalartíma fisksins í sjó og því hve
langt hann var kominn frá heimaósi
sínum þegar hann veiddist, bendir til
þess að sjóganga aldurhniginna stór-
vaxinna sjóbirtinga geti almennt ver-
ið með öðrum hætti en þeirra sem
yngri og minni eru.
Í faðmi sjávar
Rannsóknir mínar sýndu að sjó-
birtingur á sjógöngu fer með öldu-
skautum sjávar og er strandsækinn.
Á 2. mynd má sjá ferla er sýna fisk-
dýpið sem tiltekinn sjóbirtingur fór
um meðan á sjávardvöl hans stóð og
hitann á þeirri slóð. Þetta ríka upp-
sjávareðli sjóbirtinga sést vel á 3.
mynd þar sem viðvera þeirra innan
ákveðinna dýptarbila er sýnd. Hins
vegar þarf að hafa í huga að oft þegar
sjóbirtingurinn er uppi undir yfir-
borði sjávar er hann gjarnan einnig
staddur upp undir fjöru, sem þýðir að
sjávarbotninn er þá líka skammt und-
an. Meðaldýpið sem birtingarnir
héldu sig á yfir sjógönguna spannaði
frá 2,0 m og upp í 3,8 m, sem sýnir vel
hve efsta lag sjávarins er sjóbirting-
unum kært. Skráð hámarksdýpi hjá
birtingum á sjógöngu var 70 metrar.
Mesti skráði sundhraði sjóbirtinga á
milli dýptarlaga var 2,2 líkamslengdir
á sekúndu.
Í lokin langar mig að geta þess að
atferlisrannsóknir á stálpuðum geld-
fiskum og hrygningarfiskum sjóbirt-
inga í sjó hér við land eru ekki bundn-
ar af þessum rannsóknum undan
Suðurlandi né öðrum rannsóknum
mínum á því grunnsævi, því að árið
2011 hóf ég rannsóknir á sjóbirtingi
úr Botnsá sem skilað hafa gögnum af
sama toga yfir sex ára tímabil. Sú
rannsókn skilaði aukinheldur fyrstu
gögnum hérlendis yfir landfræðilega
dreifingu birtinga á þeim lífsskeiðum
yfir sjávargönguna frá ferðum þeirra
yfir tæplega 40 km langan sjávar-
kafla, eftir Hvalfirði endilöngum og
rétt út fyrir mynni hans. En sögur
þeirra sægarpa Botnsár segi ég síðar.
Suðurströndin er umferðarmiðstöð
er byggir á feikn af svörtum sandi.
Sjóbirtingur, sandsíli, síld, selur og
skúmur dvelja þar hver í sínu standi.
Á vefsíðu rannsóknafyrirtækis
míns Laxfiska (www.laxfiskar.is) má
finna greinina „The marine migration
and swimming depth of sea trout in
Icelandic waters“, sem hér er vitnað
til og skýrsluna „Swimming depth of
sea trout“ sem að hluta var skrifuð
um sama efni.
Eftir Jóhannes Sturlaugsson
»Nú, þegar sporða-
köst sjóbirtinganna
eru í algleymi í aðdrag-
anda sjávardvalar
þeirra, er við hæfi að
kynna til sögunnar
upplýsingar um
sjávardvöl þeirra.
Jóhannes Sturlaugsson
Höfundur er líffræðingur.
johannes@laxfiskar.is
Sjóbirtingur í lífsins sjó
100%
75%
50%
25%
0%
Viðvera sjóbirtings innan dýptarsviða
Hlutfallslegur dvalartími (%)
1996 1997 1998 1999 2004 2006 2007 2008 2009 2010 2011
Dýptarbil
0-5 m
5-10 m
10-15 m
15-20 m
20-25 m
25-30 m
30-70 m
85% 78% 80% 72% 82% 89% 89% 88% 90% 90% 93%
13% 19% 18% 25% 18% 9% 11% 9% 9% 8% 6%
0
5
10
15
20
25
30
35
Fiskdýpi (m) Hiti (°C)
20
18
16
14
12
10
8
6
Fiskidýpi og hitastig yfir sjávargöngu sjóbirtings
22/5 27/5 1/6 7/6 12/6 17/6 23/6 28/6 3/7 9/7 14/7 19/7 25/7 30/7 5/8
Sjóbirtingur nr. 1701, hængur
Fiskstærð við merkingu:
Lengd = 66,0 cm, þyngd = 2,91 kg
Fiskstærð við endurheimtu:
Lengd = 70,0 cm, þyngd = 5,0 kg
Sjávargöngu lýkur og ganga í ána hefst
Sjávar-
ganga
hefst
Mælingar með 5 mínútna millibili
22/5-5/8 2004
Fiskdýpi Hitastig
Sjávarganga sjóbirtings og gangan í ána
100%
75%
50%
25%
0%
0%
25%
50%
75%
100%
Hlutfallslegur fjöldi fiska
Sjávargangan Gangan í ána
13
-19
/5
20
-26
/5
27/
5-2
/6
3-9
/6
10
-16
/6
17-
23
/6
24
-30
/6
1-7
/7
8-1
4/
7
15
-21
/7
22
-28
/7
29
/7
-4
/8
5-1
1/
8
12
-18
/8
19
-25
/8
26
/8
-1/
9
2-8
/9
9-1
5/
9
16
-22
/9
23
-29
/9
30
/9
-6/
10
7-1
3/
10
14
-20
/10
21
-27
/10
28
/10
-3/
11
4-1
0/
11
11-
17/
11
Sjávarganga hefst
Sjávargangan (%) Gangan í ána (%)
Sjávargöngu lýkur
Göngu í ána lýkur
Ganga í
ána hefst
Rannsóknarvikur 1996-2010
Hlutfallslegur fjöldi sjóbirtinga sem voru að hefja sjógöngu sína eða ljúka
henni á grunni rannsóknarvikna, með hliðsjón af þeim 46 sjóferðum sem
skráðar voru 1996-2010.
Gönguhegðun sjóbirtings úr Grenlæk í sjó, út frá tíma, dýpi á fiskinum og
hita á því dýpi, auk sams konar upplýsinga úr ánni rétt fyrir og eftir sjó-
gönguna. Stærð fisksins við merkingu og endurheimtu er tilgreind.
Dýpið sem sjóbirtingarnir héldu sig á yfir sjávardvölina með hliðsjón af
vöktunarárum og tilgreindum dýptarbilum.
• Gamli lykillinn
virkar áfram
• Vatns- og
vindvarinn
Verð: 39.990 kr.
LYKILLINN ER Í SÍMANUM
Lockitron Bolt gerir snjallsímann þinn að öruggum lykli
til að opna fyrir fjölskyldu, vinum eða öðrum gestum
þegar þér hentar og hvaðan sem er.
Þægilegt og öruggt. Þú stjórnar lásnum og fylgist með
umgengni í símanum. Hægt er til dæmis að opna fyrir
börnunum eða iðnaðarmönnum tímabundið án þess að
fara heim eða lána lykil.
Lockitron Bolt snjalllásinn fæst í Vélum og verkfærum.
Sölumenn okkar taka vel á móti þér.