Morgunblaðið - 31.05.2018, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Íkönnun semstéttarfélagiðEining Iðja á
Akureyri gerði
meðal félags-
manna sinna um
áherslur í kom-
andi kjaraviðræðum var mest-
ur stuðningur við að leggja
áherslu á að auka kaupmátt.
Þetta er skynsamleg afstaða
hjá félögum í þessu öðru
stærsta stéttarfélaginu innan
Starfsgreinasambands Ís-
lands og verður vonandi leið-
arljós verkalýðshreyfing-
arinnar í kjaraviðræðunum.
Margoft hefur verið sýnt
fram á að samningar þar sem
ekki er lögð áhersla á kaup-
mátt en þess í stað reynt að
spenna upp óábyrgar hækk-
anir sem ekki er innistæða
fyrir skila launamönnum
minni árangri en hæg og
örugg kaupmáttaraukning.
Staða efnahagsmála er al-
mennt talað góð um þessar
mundir, en hún er viðkvæm.
Erlendir ferðamenn eru farnir
að skipta umtalsverðu máli
fyrir efnahaginn, en nýjustu
tölur benda til að ekki sé á vís-
an að róa um vaxandi fjölda
þeirra og að fram undan sé
frekar samdráttur eftir
gríðarlegt vaxtarskeið.
Verkalýðshreyfingin hefur
samið um afar háar prósentu-
hækkanir launa í mörg ár. Við
eðlilegar kringumstæður
hefðu þær orðið til þess að
kynda undir verðbólgu, en
ytri aðstæður
hjálpuðu og þess-
ar miklu launa-
hækkanir skiluðu
sér í umslög
launamanna með
kaupmáttaraukn-
ingu sem á sér fá fordæmi.
Mikið óráð væri að ætla að
aðstæður verði áfram með
þeim hætti að efnahagslífið
þoli miklar prósentuhækkanir
án þess að það valdi koll-
steypu á borð við þær sem
landsmenn hafa áður kynnst
þegar gengið hefur verið of
langt í launahækkunum. Þar
fyrir utan er ljóst að stór hluti
atvinnulífsins, fyrirtækjanna í
landinu, ber varla eða alls ekki
þær launahækkanir sem þeg-
ar hefur verið samið um, hvað
þá umtalsverðar hækkanir til
viðbótar.
Aðila vinnumarkaðarins
bíður mikið verkefni að kom-
ast að skynsamlegu sam-
komulagi sem bætir kjör al-
mennra launamanna en
tryggir um leið að fyrirtækin í
landinu geti áfram verið þær
stoðir undir velferð lands-
manna sem nauðsynlegt er.
Forgangsatriði í komandi
kjaraviðræðum hlýtur að vera
að viðhalda kaupmættinum
sem náðst hefur og að byggja
hann áfram upp í hægum en
öruggum skrefum. Þess vegna
skiptir miklu að launamenn
sendi forystu sinni þau skila-
boð sem félagsmenn Einingar
Iðju hafa nú gert.
Kaupmáttur er það
sem fyrst og fremst
þarf að horfa til í
kjaraviðræðum}
Skynsamleg skilaboð
Verkefninverða næg
fyrir nýjan meiri-
hluta í Reykjavík,
hver sem hann
verður. Eitt af því
sem ástæða er til
að skoða er
Gagnaveita Reykjavíkur,
dótturfélag Orkuveitu
Reykjavíkur, sem leggur ljós-
leiðarakerfi í samkeppni við
Mílu, dótturfélag Símans.
Eins og Morgunblaðið
greindi frá á dögunum hefur
Gagnaveitan fjárfest fyrir ná-
lægt 30 milljörðum króna að
núvirði á síðustu 20 árum,
þrátt fyrir að fjárflæði starf-
seminnar hafi aldrei verið já-
kvætt.
Gagnaveitan hefur mikinn
metnað og ætlar að vera „leið-
andi og bjóða nettengingar
sem hafa yfirburði í hraða og
áreiðanleika,“ segir fyrir-
tækið. Þetta er í sjálfu sér
áhugavert markmið, en
kostnaðurinn er gríðarlegur
og hafa verður í
huga að þetta er
opinbert fyrirtæki
og þeir sem greiða
þessa uppbygg-
ingu eru væntan-
lega kaupendur
heita vatnsins og
annarrar þjónustu Orkuveit-
unnar.
Framkvæmdastjóri Mílu
segir að fjárfestingar Gagna-
veitunnar á höfuðborgar-
svæðinu séu tvöfalt eða þre-
falt dýrari en fjárfestingar
Mílu, en svo virðist sem
Gagnaveitan hafi ótæmandi
sjóði að ganga í til fjárfest-
inga sinna í samkeppni við
aðra og á kostnað viðskipta-
vina sem í flestum tilvikum
eru jafnframt eigendur fyrir-
tækisins.
Margt þarf að fara yfir í
rekstri Reykjavíkurborgar til
að ná niður kostnaði og gera
borginni kleift að lækka álög-
ur á borgarbúa. Við blasir að
þar á meðal er Orkuveitan.
Opinbert fyrirtæki
fjárfestir fyrir tugi
milljarða þrátt fyrir
neikvætt fjár-
streymi í áratugi}
Gagnaveita með djúpa vasa
Á
Íslandi ríkir dæmalaust góðæri.
Við erum ríkt samfélag og erum
við í óskastöðu til að gera vel við
almenning í landinu.
Á sama tíma og ástandið er
þannig nánast fordæmalaust velja stjórnvöld
að beita öryrkja slíkum reglum að enginn ann-
ar hópur í samfélaginu þarf að líða annað eins.
Þetta óréttlæti hefur verið kallað króna á móti
krónu skerðing og felst í því að hver einasta
króna sem örorkulífeyrisþegi aflar sér er
skert á móti af örorkulífeyri. Þannig höfum
við búið til slíkt kerfi að á sama tíma og við
verjum talsverðum fjármunum hins opinbera í
að auka virkni öryrkja með námskeiðum,
virknieflingu, starfsendurhæfingum, hluta-
störfum eða öðru, verður ekki nokkur einasti
fjárhagslegur ávinningur af því fyrir þann
sem annars þarf að draga fram lífið á örorkubótunum.
Nú skal minnt á það að einstaklingur getur orðið öryrki
af ýmsum ástæðum, til dæmis vegna fötlunar, slyss eða
sjúkdóms og því getur starfsgeta þeirra verið mjög fjöl-
breytileg þó að í öllum tilvikum sé hún skert á einhvern
hátt. Þá er þessi hópur einnig á öllum aldri, sumir ungir,
aðrir eldri, sumir einstæðingar, aðrir fjölskyldufólk.
Örorkubætur eru eins og allir vita skammarlega lágar
og því ætti það að vera sérstakur ávinningur fyrir hvern
þann sem á þess einhvern kost að starfa að hluta til,
þrátt fyrir örorku sína, að gera slíkt enda hafa stjórnvöld
beinlínis farið í átak til eflingar þeim sem hafa skerta
starfsgetu. Sérstak átak er í gangi til að
skapa störf fyrir atvinnuleitendur með skerta
starfsgetu. Vinnumálastofnun, ÖBÍ og
Þroskahjálp fóru í sérstakt samstarfsverk-
efni til að skapa störf fyrir þennan hóp sér-
staklega til að virkja hæfileika þeirra, virkja
alls konar hæfileika og auka þannig getu og
lífsgleði þeirra því allir vita hvað einangrun
getur verið íþyngjandi. Þannig virðast stjórn-
völd vita vel hversu mikilvæg virknin er á lífs-
gæði einstaklinga en þrátt fyrir það beinlínis
letja íslensk stjórnvöld þennan tiltekna hóp
til virkni með reglum sínum um krónu og
móti krónu skerðingu. Hvaða skilaboð fá ör-
yrkjar? Ekki vinna. Ekki afla aukapenings til
að eiga möguleika á betra lífi. Ekki vera virk-
ari samfélagsþegn, sem getur mögulega auk-
ið lífsánægju þína. Hver einasta króna sem
aflað er inn með þessu móti er tekin af öryrkjanum!
Þegar aðrir landsmenn eiga möguleika á auknu ráð-
stöfunarfé með meiri vinnu og hærri launum er í tilviki
öryrkjans lagður á 100% skattur. Hver einasta króna
skal tekin af þessum eina hópi og jafnvel þeir stjórn-
málamenn sem hæst hrópa um skattpíningu segja ekki
orð við þessari framkomu. Hvernig getur staðið á því.
Hvers vegna hefur þetta þótt réttlætanlegt á sama tíma
og verið er að fjárfesta í aukinni virkni þessa sama hóps.
Þetta er skammarleg framkoma. Helgavala@althingi.is
Helga Vala
Helgadóttir
Pistill
Aukin virkni, til hvers?
Höfundur er þingman Samfylkingarinnar.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Ný reglugerð Evrópusam-bandsins um persónu-vernd, sem kom til fram-kvæmda í Evrópu 25.
maí, verður ekki tekin upp í samn-
inginn um Evrópska efnahagssvæðið
fyrr en eftir að sameiginlega EES-
nefndin hefur formlega lokið af-
greiðslu málsins. Það er ekki á dag-
skrá nefndarinnar fyrr en 6. júlí eins
og fram hefur komið. Þar til gerðin
hefur verið tekin upp í samninginn
liggur ekki fyrir staðfesting á að ís-
lensk persónuverndarlög uppfylli
kröfur hinna nýju reglna. Lögfesting
reglugerðarinnar hér á landi í milli-
tíðinni mun ekki sjálfkrafa breyta
því.
Hörður Helgi Helgason, lög-
maður hjá Landslögum og fyrrver-
andi forstjóri Persónuverndar, segir
að tafirnar megi rekja til viðræðna
EFTA-ríkjanna og ESB sem hafi
gengið hægar en vonir stóðu til.
Hörður Helgi segir óheppilegt
að sá tími sem gafst á vettvangi
EFTA og ESB í fyrrasumar og
haust til undirbúnings fyrir innleið-
inguna hafi ekki nýst nægilega vel.
Sameiginlega EES-nefndin hafi
komið nokkrum sinnum saman á
þessu ári án þess að málið kæmist á
dagskrá hennar. Nú sé málið komið á
dagskrá nefndarinnar í júlí og menn
vonist til að það verði þá afgreitt.
Frumvarp dómsmálaráðherra
um innleiðingu reglugerðarinnar í ís-
lenskan rétt kom fram á Alþingi sl.
mánudag. Í því segir að lögin öðlist
ekki gildi fyrr en reglugerð ESB hef-
ur verið tekin upp í EES- samning-
inn. Til að flýta afgreiðslu málsins
ákvað utanríkisráðherra að leita fyr-
irfram samþykkis þingsins til inn-
leiðingar á reglunum í EES-
samninginn með þingsályktunar-
tillögu en bæði málin eru nú til
umfjöllunar á þinginu.
Frumvarp dómsmálaráðherra
gekk í fyrradag til allsherjar- og
menntamálanefndar eftir fyrstu um-
ræðu og í gær hóf nefndin að kalla
eftir umsögnum stofnana, sveitarfé-
laga, félaga og samtaka og fleiri aðila
við frumvarpið. Alls var búið að
senda út 298 umsagnarbeiðnir síð-
degis í gær.
Hörður Helgi segir að með því
að taka regluverkið upp í íslensk lög
áður en það er orðið hluti af Evr-
ópska efnahagssvæðinu sé Ísland að
vinna ákveðna undirbúningsvinnu en
á meðan það er óafgreitt í sameig-
inlegu EES-nefndinni sé það samt
sem áður á borði EFTA og ESB.
Þetta millibilsástand sem stafar af
því að innleiðing reglnanna hefur taf-
ist í EES-nefndinni hefur þá afleið-
ingu að ákveðin óvissa er komin upp.
Eldri tilskipun um persónuvernd frá
1995 sem gilti innan ESB féll niður
föstudaginn 25. maí þegar nýja
reglugerðin tók þar gildi og segir
Hörður Helgi að Ísland sé þá komið í
þá stöðu að hafa enga formlega stað-
festingu á því að Ísland sé öruggt
þriðja ríki varðandi miðlun persónu-
upplýsinga frá ESB-löndum. Þetta
skapi ákveðna óvissu þar til sameig-
inlega EES-nefndin klárar málið og
sú þjóðréttarlega skuldbinding sem
þá myndast hefur verið efnd með
innleiðingu reglugerðarinnar í ís-
lensk lög.
,,Við vonumst til þess að það eigi
ekki eftir að reyna mikið á þetta en
hér hjá Landslögum sjáum við dæmi
um að fyrirtæki eru nokkuð uggandi
um hvað kann að gerast á næstu
mánuðum og hvort viðskiptavinir og
samstarfsaðilar þeirra í Evrópu
muni líti svo á að þeir kunni að vera
brotlegir ef þeir flytja persónu-
upplýsingar til þeirra núna eftir að
þessi tilskipun frá 1995 féll úr gildi sl.
föstudag,“ segir hann.
Biðja um 298 um-
sagnir við þingmálið
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Alþingi Fáir þingfundardagar eru eftir verði starfsáætlun ekki breytt.
Þingnefnd hefur kallað eftir 298 umsögnum við persónuverndarfrumvarpið.
Ljóst er að mikil vinna bíður
þingmanna við afgreiðslu per-
sónuverndarmálanna og naum-
ur tími gefst til að senda alls-
herjar- og menntamálanefnd
umsagnir við frumvarpið því
frestur er veittur til 7. júní en
það er seinasti starfsdagur
þingsins fyrir sumarleyfi sam-
kvæmt starfsáætlun. Raunar
eru aðeins þrír venjulegir þing-
fundadagar eftir fram að sum-
arleyfi skv. starfsáætlun nema
ákveðið verði að framlengja
þingið fram eftir júnímánuði.
Hörður Helgi segir æskilegt
að þingmenn nýti þann tíma
sem þingið mun taka sér til ít-
arlegrar efnislegrar umræðu,
einkum um þau ákvæði reglu-
gerðarinnar sem veitt er svig-
rúm til að aðlaga. Mikilvægt sé
fyrir almenning við túlkun þess-
ara mikilvægu ákvæða að geta
stuðst við skýr lögskýring-
argögn og ítarlegar og efnis-
legar umræður um frumvarpið.
Umræða um
efni æskileg
UMFJÖLLUN ÞINGSINS