Morgunblaðið - 31.05.2018, Blaðsíða 71
sumrin hjá foreldrum Völundar, í
Árnesi í Aðaldal. Árið 1967 fluttum
við norður í Árnes, settumst þar að
og byggðum nýbýlið Álftanes. Við
stunduðum aldrei búskap en störf-
uðum m.a. við leiðsögn, laxveiðar og
veiðihús sem tengdafaðir minn reisti í
landi Árness.
Við hjónin störfuðum með Héraðs-
sambandi Suður-Þingeyinga um ára-
bil og ég tók oft þátt í starfsíþrótta-
greinum á landsmótum og hafði mjög
gaman af. Borgarhólsskóli á Húsavík
er frábær vinnustaður en þar lauk ég
starfsferlinum árið 2013. Ég og
nokkrar samstarfskonur mínar sem
hættum um líkt leyti hittumst mán-
aðarlega yfir veturinn. Þá er enn við
lýði menningarhópur frá starfs-
árunum í skólanum sem skipuleggur
og sækir leikhús, tónleika og ferða-
lög. Ekki má gleyma mínum frábæra
bókaklúbbi en þar er mikið lesið, spáð
og spjallað. Það er því nóg að gera og
meðan heilsa og kraftar leyfa er um
að gera að njóta lífsins.
Langömmubörnin þrjú búa ekki
langt frá okkur og gaman að sjá þau
vaxa úr grasi, og barnabörnin í
Reykjavík koma og dvelja í sveitinni
hjá ömmu og afa, til yndis og ánægju.
Við skólasystur frá Núpi höfum
haldið hópinn og þær hafa mætt gal-
vaskar norður í fimmtugs-, sextugs-
og sjötugsafmæli mín en nú hittumst
við fyrir sunnan á afmælisdegi mín-
um og munum njóta samverunnar.“
Fjölskylda
Eiginmaður Höllu Lovísu er Völ-
undur Þorsteinn Hermóðsson, f. 8.11.
1940, búfræðikandídat.
Foreldrar hans: Hermóður Guð-
mundsson, f. 3.5. 1915, d. 8.3. 1977,
bóndi í Árnesi í Aðaldal, og k.h., Jó-
hanna Álfheiður Steingrímsdóttir, f.
20.8. 1920, d. 25.3. 2002, rithöfundur.
Börn Höllu Lovísu og Völundar
eru: 1) Steinunn Birna, f. 9.11. 1961,
starfar við umönnun aldraðra á
Húsavík en maður hennar er Sig-
mundur Hreiðarsson, framleiðslu-
stjóri hjá Norðlenska á Húsavík, og
eru börn þeirra Jóhann Ágúst, f.
1986, flugvallarstarfsmaður, en kona
hans er Ásta Margrét Rögnvalds-
dóttir iðjuþjálfi, og börn þeirra Vil-
borg Halla, f. 2011, Hallveig Birna, f.
2014, og Valtýr Smári, f. 2017, og Vil-
berg Lindi, f. 1990; 2) Viðar, f. 22.12.
1963, hárgreiðslumaður og dans-
kennari í London, en maki hans er
Robert Gowing lögfræðingur; 3) Völ-
undur Snær, f. 21.9. 1973, mat-
reiðslumaður, þáttagerðarmaður og
rithöfundur í Reykjavík, en kona
hans er Þóra Sigurðardóttir rithöf-
undur og eru börn þeirra Baldvin
Snær, f. 2008, og Móey Mjöll, f. 2010.
Bræður Höllu Lovísu: Páll Gunn-
ar, f. 1949, húsasmiður og húsvörður
við Menntaskólann á Ísafirði, og
Ámundi Hjálmar, f. 1953, fyrrv.
bóndi í Reykjadal og sjómaður.
Foreldrar Höllu Lovísu voru Loft-
ur Ámundason, f. 13.11. 1914, d. 10.1.
1995, eldsmiður frá Sandlæk í Gnúp-
verjahreppi, og k.h., Ágústa Björns-
dóttir, f. 17.2. 1917, d. 15.1. 1999,
blómakaupmaður og dagskrárgerð-
armaður með meiru. Þau voru búsett
í Kópavogi frá 1950.
Úr frændgarði Höllu Lovísu Loftsdóttur
Halla Lovísa
Loftsdóttir
Ágústa Björnsdóttir
húsfrú og skrifstofum. í Rvík
Gunnar Ágúst
Harðarson
heimspekingur
Hörður Ágústsson
myndlistarm.
híbýlasögusérfr. og
skólastj. Myndlista-
og handíðaskólans
Guðrún
Guðmundsdóttir
húsfr. í Rvík
Guðmundur Kr.
Guðmundsson
skrifststj. hjá
Olíufélaginu
Guðmundur
Ámundason
yngri veitingam.
í Rvík
Jóhann
Hjartarson
stór-
meistari í
skák
Sigurlaug
Guðrún
Jóhannsdóttir
húsfr. í Rvík
Jóhann
Kristinn
Guðmunds-
son b. á Iðu
í Biskups-
tungum
Steinunn
Harðardóttir
líffræðingur
Sigríður Bárðardóttir
húsfrú á Sandlæk
Loftur Loftsson
b. á Sandlæk
Halla Lovísa Loftsdóttir
húsfr. og skáldkona á Sandlæk
Ámundi Guðmundsson
b. á Sandlæk í Gnúpverjahr.
Guðrún Bjarnadóttir
húsfr. á Sandlæk, af
Bolholtsætt
Guðmundur Ámundason
b. á Sandlæk, af Sandlækjarætt
Loftur Ámundason
eldsmiður í Landssmiðjunni í Rvík
Ástríður Björnsdóttir
bústýra
Erlendur Erlendsson
b. áAkranesi
Björn Ástráður Erlendsson
trésmiður, f. áAkranesi
Jóhanna G.
Björnsdóttir
húsfr. og
skrifstofum.
í Kópavogi
Guðbjörg Guðrún Jónsdóttir
húsfr. í Rvík
Guðrún P. Pálsdóttir
húsfr. í Rvík
Páll Hafliðason
skipstj. í Pálshúsi
við Sölvhólsgötu í
Rvík, frá Gufunesi,
afi og uppeldisfaðir
Ágústu Björnsdóttur
Karl Georg
Magnússon
húsasmíðam.
og fyrrv.
öryggisfulltr.
ÍAV
Hannes Pálsson
forstj.Hampiðjunnar
Guðlaug
Bergþórsdóttir
matreiðsluk.
í Rvík
Bergþór Pálsson
bifreiðastj. í RvíkJón Hjaltalín
Magnússon
verkfr.,
framkvstj. og
fyrrv. form.HSÍ
ÍSLENDINGAR 71
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018
Pétur Zóphóníasson fæddist íGoðdölum í Skagafirði 31.5.1879, sonur Zóphóníasar
Halldórssonar, prófasts í Viðvík í
Skagafirði, og Jóhönnu Sophiu Jóns-
dóttur húsfreyju.
Zóphónías var sonur Halldórs
Rögnvaldssonar, bónda á Brekku í
Svarfaðardal, en Jóhanna Soffía var
dóttir Jóns Péturssonar, háyfirdóm-
ara í Reykjavík (bróður Brynjólfs
Péturssonar Fjölnismanns) og Jó-
hönnu Sophiu Bogadóttur, fræði-
manns á Staðarfelli, Benediktssonar.
Eiginkona Péturs var Guðrún,
dóttir Jóns Árnasonar, hreppstjóra á
Ásmundarstöðum á Sléttu, og k.h.,
Hildar Jónsdóttur húsfreyju. Pétur
og Guðrún eignuðust 12 börn en með-
al þeirra voru Viðar tannlæknir,
Skarphéðinn, prófastur í Bjarnar-
nesi, og Gunngeir, skrifstofustjóri
byggingafulltrúa í Reykjavík.
Pétur lærði við Möðruvallaskóla
og stundaði verslunarnám í Kaup-
mannahöfn. Hann flutti til Reykja-
víkur um aldamótin 1900 og hóf þar
verslunarstörf, var síðan bankaritari
við Landsbankann til 1909, var rit-
stjóri og útgefandi Þjóðólfs 1910-11,
fékkst síðan aftur við verslunarstörf
og var fulltrúi á Hagstofu Íslands
1915-43.
Pétur var aðalstofnandi Taflfélags
Reykjavíkur árið 1900, formaður
þess 1913-17, formaður Skáksam-
bands Íslands og fékk það tekið í
Skáksamband Norðurlanda og í Al-
þjóða skáksambandið, var heiðurs-
félagi Taflfélags Reykjavíkur og
Skáksambands Íslands.
Pétur var einn allra öflugasti skák-
maður landsins fyrstu tvo áratugi 20.
aldar, varð fyrsti Skákmeistari Ís-
lands 1913 og aftur 1914 og 1916.
Hann þýddi alþjóðaskáklög á ís-
lensku, samdi kennslubók í skák 1906
og skrifaði skákþætti í Þjóðólf.
Pétur tók saman þekkt ættfræði-
rit, s.s. Ættir Skagfirðinga og Vík-
ingslækjarætt. Hann starfaði einnig
mikið fyrir Góðtemplararegluna,
stofnaði ýmsar stúkur og sat í fram-
kvæmdanefnd Stórstúku Íslands.
Pétur lést 21.2. 1946.
Merkir Íslendingar
Pétur Zóp-
hóníasson
90 ára
Aðalsteinn Þórólfsson
Björg Ísaksdóttir
Brynhildur Sæmundsdóttir
Oddný Þorsteinsdóttir
Sveinn Sigurðsson
85 ára
Kristján Guðmundsson
Unnur Ásmundsdóttir
Þórhildur Bjarnadóttir
80 ára
Oddur Ragnarsson
75 ára
Halla Lovísa Loftsdóttir
Helga Skúladóttir
Kristján Magnússon
70 ára
Alfreð Guðmundsson
Engilbert Guðmundsson
Gestur Jónsson
Gunnar Magnússon
Gylfi Sveinsson
Hreiðar Gíslason
Kristinn Þórir Sigurðsson
Sigríður Sverrisdóttir
Sigurður Valur Ingólfsson
Sigurður Þorsteinsson
Smári Sæmundsson
Svanhildur B. Ólafsdóttir
Valur Karlsson
60 ára
Gissur Ísleifsson
Guðlaug Jónasdóttir
Halldór Heiðar Agnarsson
Herborg Sigtryggsdóttir
Jósef Hrafn Þrastarson
Laufey Valgerður
Oddsdóttir
Marianne Skovsgaard
Nielsen
Oddný Jónsdóttir Sen
Ragnheiður Júlíusdóttir
Sigurður Jónsson
Sveinn Guðmundsson
Vigfús Þór Gunnarsson
50 ára
Andrzej Nazaruk
Arnar Þór Óskarsson
Böðvar Markan
Elfa Sif Jónsdóttir
Eygló Dröfn Hraundal
Hermann Þór Jóhannesson
Kristín Edda Gunnarsdóttir
Sigrún Birgisdóttir
Sólveig Lilja Einarsdóttir
Sveinn Líndal Jóhannsson
40 ára
Baldur Þór Eyjólfsson
Benedikt Lárus Ólason
Berghildur Árnadóttir
Daníel Ómar Viggósson
Jóhanna Kristín
Bárðardóttir
Jóhanna S. Hallgrímsdóttir
Juris Gaislers
Stefán Valberg Ólafsson
Sveinn Fannar Jónsson
Vigdís Másdóttir
30 ára
Aðalsteinn Eggertsson
Baldur Hannesson
Danfríður I. Brynjólfsdóttir
Daníel Örn Magnússon
Elín Frímannsdóttir
Guðjón Einar Magnússon
Ísak Sigurjónsson
Jewelly Importante Lalis
Joana Pereira Da C. Ribeiro
Kolbrún Tara Friðriksdóttir
Marinó Páll Valdimarsson
Marta Makuchowska
Orri Freyr Magnússon
Sara Alexandra Jónsdóttir
Sæþór Örn Garðarsson
Þorgerður Ásmundsdóttir
Þorleifur Bóas Ragnarsson
Til hamingju með daginn
30 ára Þorleifur ólst upp
á Egilsstöðum, býr á Fá-
skrúðsfirði, lauk atvinnu-
flugmannsprófi og er
flugmaður hjá Atlanta.
Maki: Kristrún Selma Öl-
versdóttir, f. 1988, hjúkr-
unarfræðingur.
Sonur: Viktor Jóhann, f.
2015.
Foreldrar: Ragnar Þor-
steinsson, f. 1951, og Ás-
dís Jóhannsdóttir, f. 1952.
Þau eru búsett á Egils-
stöðum.
Þorleifur Bóas
Ragnarsson
30 ára Sæþór ólst upp í
Eyjum, býr þar, stundaði
sjómennsku og er upplýs-
ingatæknistj. Vinnslu-
stöðvarinnar í Eyjum.
Maki: Sara Dís Davíðs-
dóttir, f. 1995, snyrtifr.
Systir: Sigríður Lára, f.
1994, landsliðskona.
Foreldrar: Garðar Garð-
arsson, f. 1962, fram-
kvæmdastjóri hjá Véla-
verkstæðinu Þór, og
Rinda Rissakorn, f. 1955,
húsfreyja.
Sæþór Örn
Garðarsson
30 ára Þorgerður ólst
upp í Hafnarfirði, býr þar,
lauk stúdentsprófi frá FG
og stundar nám við Hár-
akademíuna.
Börn: Benedikt Nökkvi, f.
2010, og Þorgeir Nói, f.
2014.
Foreldrar: Kristín Þor-
geirsdóttir, f. 1970, við-
skiptafræðingur hjá DK
hugbúnaði, og Ásmundur
Sigurkarlsson, f. 1966,
starfsmaður hjá Sölu-
félaginu á Blönduósi.
Þorgerður Gyða
Ásmundsdóttir
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
20%
AFSLÁTTUR
AF BOLUM
OG TOPPUM
GILDIR ÚT FÖSTUDAG 01.JÚNÍ