Morgunblaðið - 31.05.2018, Blaðsíða 36
36 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018
ERT ÞÚ Í SÖLUHUGLEIÐINGUM?
-örugg fasteignaviðskipti
Við erum til þjónustu reiðubúin
Elín Viðarsdóttir
Löggildur fasteignasali
Björn Þorri Viktorsson hrl.
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Jóhann Örn B. Benediktsson
Skrifstofustjóri
MIÐBORG FASTEIGNASALA - SUNDAGARÐAR 2 - 104 REYKJAVÍK - SÍMI: 533 4800
www.midborg.is
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Reykjavíkurborg mun á næstunni
hefja hefja viðræður við Faxaflóa-
hafnir sf. um kaup á eignarhlut
þeirra í Hafnarhúsinu, Tryggvagötu
17. Viljayfirlýsing þess efnis var
samþykkt á fundi borgarráðs. Vilja-
yfirlýsingin verður væntanlega tek-
in til afgreiðslu stjórnar Faxaflóa-
hafna 22. júní nk. Stefnt er að því að
niðurstaða viðræðna Reykjavíkur-
borgar og Faxaflóahafna sf. liggi
fyrir eigi síðar en í september 2018.
Kjartan Magnússon, borgarráðs-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sat hjá
við afgreiðslu málsins í borgarráði.
Reykjavíkurborg hyggst kaupa
61% eignarhluta Faxaflóahafna sf. í
Hafnarhúsinu en Reykjavíkurborg á
þegar 39% hússins. Með kaupunum,
ef þau ná fram að ganga, verður
Hafnarhúsið að fullu í eigu Reykja-
víkurborgar.
Brunabótamat tveir milljarðar
61% eignarhlutur Faxaflóahafna í
Hafnarhúsinu telst vera 5.799 fer-
metrar. Fasteignamat þessa hluta
er krónur 1.821.950.000 og bruna-
bótamatið er krónur 2.053.050.000.
Ekkert verðmat hefur farið fram
ennþá.
Markmið Reykjavíkurborgar er
að Hafnarhúsið verði framtíðar-
miðstöð lista í Reykjavík. Í Hafnar-
húsinu er nú þegar Listasafn
Reykjavíkur og unnið er að stofnun
listaverkasafns Nínu Tryggvadóttur
sem Hafnarhúsinu er ætlað að hýsa.
Þá á Reykjavíkurborg stórt safn
listaverka eftir Erró og fengi það
listaverkasafn með kaupunum sýn-
ingarrými við hæfi í Hafnarhúsinu.
Tilkynnt var 17. maí sl. að borgar-
ráð hefði samþykkt viljayfirlýsingu
á milli Reykjavíkurborgar og
hjónanna Unu Dóru Copley og
Scotts Jeffries um að sett yrði á fót
listasafn sem bæri nafn Nínu
Tryggvadóttur.
Vel á annað þúsund listaverk
Reykjavíkurborg þiggur að gjöf
listaverkasafn Unu Dóru Copley,
erfingja Nínu og Als Copleys, og
Scotts Jeffries, eiginmans Unu
Dóru. Um er að ræða vel á annað
þúsund listaverk eftir Nínu
Tryggvadóttur, Al Copley og nokk-
ur listaverk eftir samtímamenn
þeirra.
Auk þess felur viljayfirlýsingin í
sér að Una Dóra og Scott arfleiða
Reykjavíkurborg að fasteignum sín-
um á Manhattan og í Reykjavík.
Samkvæmt viljayfirlýsingunni
mun Reykjavíkurborg setja á fót
safn sem ber nafn Nínu Tryggva-
dóttur og skal það verða sjálfstæð
eining, með sjálfstæðri stjórn og
framkvæmdastjóra. Í safninu munu
verða fastasýningar á verkum Nínu
auk annarrar fjölbreyttrar starf-
semi á sviði myndlistar.
Sala Faxaflóahafna sf. á eignar-
hluta félagsins í Hafnarhúsinu til
Reykjavíkurborgar er byggð á
þeirri forsendu að félagið selji einn-
ig fasteign í sinni eigu á Fiskislóð 12
og byggi nýja aðstöðu á fyrirhugaðri
landfyllingu við Klettagarða, sem
hýst geti starfsemina í Reykjavík á
einum stað. Þar verði gert ráð fyrir
aðstöðu fyrir skipaþjónustu, bæki-
stöð og skrifstofu félagsins auk að-
stöðu fyrir lóðs- og dráttarbáta fé-
lagsins.
Áhaldahús Faxaflóahafna á Fiski-
slóð 12 er 1.318,4 fermetrar.
Fasteignamat eignarinnar er
krónur 279.200.000 og brunabóta-
mat 251.500.000 krónur.
Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu stendur til að útbúa
landfyllingu við Klettagarða.
Borgarráð hefur tekið fyrsta skrefið
að því með því að samþykkja að nýtt
aðalskipulag fyrir svæðið verði aug-
lýst. Í framhaldinu verður deili-
skipulag undirbúið og auglýst.
„Við munum síðan fara í vinnu við
þarfagreiningu fyrir nýtt hús og
annað sem að því lýtur. Allt mun
þetta taka sinn tíma, en ef skipu-
lagsmálin ganga eftir má ætla að ný
landfylling við Klettagarða fari af
stað um eða eftir áramót. Það má
því reikna með að þrjú til fjögur ár
muni taka að koma málinu í höfn,“
segir Gísli Gíslason, hafnarstjóri
Faxaflóahafna.
Hentug staðsetning fyrir nýja
landfyllingu er við eldri landfyllingu
og manngerða strandlínu norðan við
Klettagarða, við Laugarnes, og
vestan við vitann á Skarfagarði.
Mögulegt er að losa þar um 300.000
rúmmetra af efni, sem gæti orðið
25.000-30.000 fermetra fylling (2,5-3
hektarar).
Spítalamoldin verður nýtt
Ætlunin er að í landfyllinguna
verði notað jarðefni sem fellur til
vegna framkvæmda við nýjan Land-
spítala við Hringbraut á árunum
2018 til 2020. Fyllingin geti einnig
tekið við hluta jarðefnis af lóð á
Kirkjusandi þegar framkvæmdir
fari þar af stað og hugsanlega öðr-
um framkvæmdum í borgarlandinu.
Þess má að lokum geta að árið
2007 ákváðu Faxaflóahafnir að láta
kanna möguleika á að selja húsnæði
sem hafnirnar eiga í Hafnarhúsinu í
Reykjavík, við Grandagarð og skrif-
stofuhúsnæði í Laugarnesi. Eign-
irnar voru metnar á tvo milljarða á
verðlagi þess tíma. Vegna banka-
hrunsins varð ekkert af sölu eign-
anna þá.
Verði miðstöð lista í borginni
Reykjavíkurborg hyggst kaupa eignarhlut Faxaflóahafna í Hafnarhúsinu Hýsi verk Errós
og Nínu Tryggvadóttur Faxaflóahafnir byggja nýjar höfuðstöðvar á landfyllingu í Laugarnesi
Morgunblaðið/RAX
Hafnarhúsið Þar eru höfuðstöðvar Faxaflóahafna og salir Listasafns Reykjavíkur. Hluti hússins hefur verið leigður fyrirtækjum undir skrifstofur.
Hafnarhúsið var reist af stórhug og
myndarskap á árunum 1932-1939 af
Reykjavíkurhöfn sem vöruhús og
starfsstöð Reykjavíkurhafnar, síðar
Faxaflóahafna sf. Húsið var byggt
samkvæmt teikningum Sigurðar
Guðmundssonar arkitekts og Þór-
arins Kristjánssonar hafnarstjóra.
Það var á sínum tíma stærsta húsið
á Íslandi, alls 5.827 fermetrar. Þar
af voru vörugeymslur 4.560 fer-
metrar. Síðar var byggt við húsið og
það meðal annars hækkað um eina
hæð.
Fram kemur í riti Guðjóns Frið-
rikssonar, „Hér heilsast skipin“, að
ákveðið var að reisa húsið á vestasta
hluta elstu uppfyllingarinnar upp af
Miðbakka, á lóð sem var 66 metrar
á lengd og 44 metrar á breidd.
Bárujárnsskemmur, skúrar og
port á lóðinni urðu að víkja. Húsið
skyldi byggt í ferhyrning utan um
húsport. Þarna skyldu verða vöru-
skemmur og skrifstofur. Af ýmsum
ástæðum gekk bygging hússins
hægt en verkinu lauk loks vorið
1939. Byggingarkostnaður var rúm
milljón.
„Hafnarhúsið er að mörgu leyti
merkileg bygging. Ekki aðeins
vegna þess, að þetta er stærsta hús
á Íslandi. Heldur líka vegna þess
hve vel er hagað bygging þess,“
sagði í frétt Morgunblaðsins frá
þessum tíma.
Ljósmynd/Ólafur Magnússon
Húsið í byggingu Myndin er líklega tekin árið 1937. Vinstra megin, upp af Miðbakka, eru pakkhús Eimskip og Zim-
sen og vestan við Hafnarhúsið er birgðageymsla SÍS. Þá má á myndinni sjá dýpkunarvél hafnarinnar að störfum.
Húsið var reist af stórhug