Morgunblaðið - 31.05.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018
Smart sumarföt, fyrir smart konur.
Holtasmári 1
201 Kópavogur
sími 571 5464
Str. 38-52
Rannsókn lögreglu á einu stærsta
þjófnaðarmáli Íslandssögunnar
stendur enn yfir og er sögð vera á
lokastigum. Þýfið, 600 tölvur sem
metnar eru á um 200 milljónir króna,
er hins vegar ófundið. Brotist var inn
á þremur stöðum í Reykjanesbæ og
Borgarbyggð og reynt að brjótast
inn á þeim fjórða. Innbrotin þrjú
voru framin á tímabilinu frá 5. des-
ember síðastliðnum til 16. janúar.
Ólafur Helgi Kjartansson, lög-
reglustjóri á Suðurnesjum, segir lög-
reglunni hafa borist fjölmargar
ábendingar um málið en engin þeirra
hafi leitt að tölvunum.
„Íslenskur almenningur á hrós
skilið og var fólk í langan tíma að
koma með ábendingar til okkar. En
þótt þær hafi ekki leitt til neins þá
sýnir þetta mikinn áhuga almenn-
ings og vilja til að aðstoða lögreglu,“
segir hann í samtali við Morgun-
blaðið. Þá hefur lögreglan á Suður-
nesjum sent kollegum sínum í Kína
fyrirspurn vegna 600 tölva sem lagt
var hald á þar í landi nýverið. Þegar
Morgunblaðið náði tali af Ólafi
Helga höfðu engin svör borist enn.
„Það hefur ekkert svar borist. Þessi
rannsókn er að nálgast lokastig áður
en tekin verður ákvörðun um fram-
haldið.“ Þá hefur innbrotunum verið
lýst sem „þaulskipulögðum“. Ljóst
þykir að rán þessi tengjast greftri
eftir rafmyntum.
Lögreglu bárust
lengi ábendingar
Rannsókn sögð vera á lokastigum
Þjófnaður Brotist var inn í þrjú
gagnaver í desember og janúar.
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Dómsmálaráðherra, Sigríður Á.
Andersen, hefur sett af stað endur-
skoðun á undanþáguákvæði hjú-
skaparlaga, sem heimilar hjúskap
einstaklinga yngri en 18 ára.
Þetta kemur fram í svari ráðherra,
sem birt hefur verið á vef Alþingis,
við fyrirspurn þingmanns Vinstri-
grænna, Andrésar Inga Jónssonar,
um undanþáguákvæði hjúskapar-
laga og hvernig það samræmdist
skuldbindingum Íslands í alþjóðlegri
baráttu gegn barnahjónaböndum.
Í svarinu segir að jafnframt verði
kannað hvort bæta eigi við ákvæði í
hjúskaparlögum, sem fjallar um
hjónavígslur einstaklinga yngri en
18 ára, sem framkvæmdar eru er-
lendis.
Ráðherra sé þeirrar skoðunar að í
samræmi við tilmæli og markmið al-
þjóðasamninga og -sáttmála, m.a.
um afnám barnahjónabanda, og til
að fylgja þeirri þróun sem orðið hafi
annars staðar á Norðurlöndum, skuli
gildandi hjúskaparlöggjöf endur-
skoðuð.
Allar umsóknir samþykktar
Í svari við fyrirspurninni kemur
einnig fram að 18 umsóknir um
undanþágur hafi borist frá því að
hjúskaparlögin tóku gildi 1. janúar
1998, 17 frá konum og ein frá karl-
manni. Allar umsóknirnar hafi verið
samþykktar. Í nær öllum tilvikum
hafi einstaklingar orðið 17 ára á
þeim degi þegar leyfi var veitt, en í
tveimur tilvikum voru þeir 16 ára.
Tilefni fyrirspurnarinnar var
fundur sem Andrés Ingi sótti hjá
kvennanefnd Sameinuðu þjóðanna í
mars sl., þar sem m.a. var fjallað um
hvernig glufur í löggjöf geta heim-
ilað barnahjónabönd.
Afnám barnahjúskapar
Dómsmálaráðherra lætur endurskoða hjúskaparlög eftir
fyrirspurn á Alþingi Ísland samræmi löggjöf sína
Sigríður Á.
Andersen
Andrés Ingi
Jónsson
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Hreinsistöð fráveitu í Sandgerðisbót
á Akureyri verður tilbúin til notk-
unar árið 2020. Samið hefur verið við
verktakann SS Byggi um að reisa
stöðina og var skrifað undir samning
þar að lútandi í gær.
Um er að ræða hreinsibúnað
vegna skólps sem fram að þessu hef-
ur runnið óhreinsað til sjávar.
Hreinsistöðinni er ætlað að sía öll
föst og gróf efni frá fráveituvatninu
og verður því ekið til förgunar að
Stekkjavík við Blönduós. Fráveitu-
vatninu verður veitt frá stöðinni út á
40 metra dýpi í gegnum pípu og skv.
upplýsingum frá Norðurorku sýna
líkanaútreikningar að þar með nái
útstraumar að bera fráveituvatnið út
fjörðinn. Þá hafi rannsóknir sýnt að
lífríkið beri mjög vel þau lífrænu efni
sem fráveitan ber til sjávar.
Helgi Jóhannesson, forstjóri
Norðurorku, sagði við undirritun
samningsins í gær að allt hefði í raun
verið tilbúið til framkvæmda árið
2007; stöðin verið fullhönnuð og búið
að kaupa allan búnað, en verkinu
verið frestað vegna efnahagshruns-
ins um haustið.
Norðurorka, veitufyrirtæki í eigu
Akureyrarbæjar og fimm annarra
sveitarfélagi í Eyjafirði og Þing-
eyjarsýslu, tók við fráveitu Akureyr-
ar í ársbyrjun 2014 og þá var áætlað
að hreinsistöðin yrði tilbúin á þessu
ári. Hluti verksins, húsbyggingin,
var boðin út í maí 2017 en ekkert til-
boð barst. Þá var ákveðið að bíða
með tilboð í alla hluta verksins með-
an mesta þenslan stæði yfir, því var
aftur boðið út fyrir skömmu, þrjú til-
boð bárust og því lægsta, frá SS
Byggi, var tekið. „Við erum mjög
glöð að nú sjái fyrir endann á þessu
og fjörðurinn okkur verði hreinn og
fínn,“ sagði Helgi Jóhannesson, for-
stjóri Norðurorku, í gær.
Fjörðurinn verður hreinn og fínn
Skrifað undir samning um byggingu hreinsistöðvar fráveitu á Akureyri Allt var tilbúið 2007 en
verkinu frestað vegna hrunsins Framkvæmd þessa langþráða verkefnis kostar 950 milljónir króna
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fráveita Séð yfir smábátahöfnina í Sandgerðisbót. Hreinsistöðin verður byggð á svæðinu neðst til vinstri.
Morgunblaðið/Skapti
Samið Sigurður Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri SS Byggis, og Helgi
Jóhannesson, forstjóri Norðurorku.
Mannanafnanefnd hefur hafnað
beiðni Sigurðar Hlyns Snæbjörns-
sonar um að taka upp eiginnafnið
Sigríður. Það gerir nefndin á
grundvelli 2. milligreinar 5. greinar
laga um mannanöfn sem hljóðar
svo: „Stúlku skal gefa kvenmanns-
nafn og dreng skal gefa karlmanns-
nafn.“
Frá þessu var greint á mbl.is í
gær en fyrr í mánuðinum kom þar
fram að Sigurður Hlynur hefði sótt
um hjá Þjóðskrá að fá að heita Sig-
ríður eftir ömmu sinni. Þjóðskrá
vísaði málinu til mannanafna-
nefndar vegna þess að Sigríður er
ekki samþykkt karlmannsnafn.
Sigurður Hlynur segist hafa
fengið úrskurðinn í hendurnar í
gær. „Nú þarf ég að ráðfæra mig
við íslenskufræðing og svo hugsa ég
að ég tali við lögfræðing,“ sagði
hann í samtali við mbl.is.
Segir Sigurður Hlynur að brotið
sé á sér og vísar í 65. grein
stjórnarskrárinnar sem kveður á
um jafnræði. „Það er til fordæmi
fyrir nöfnum sem eru bæði karl- og
kvenmannsnöfn. Mannanafnanefnd
hefur auðvitað til hliðsjónar manna-
nafnalög sem eru forn og úrelt. Það
þarf auðvitað bara að breyta þeim.“
Sigurður Hlynur er rólegur í bili
en ætlar að setja sig í samband við
íslenskufræðing í júní. Þá vonast
hann jafnvel til þess að mannrétt-
indalögfræðingur hafi samband við
sig vegna málsins. „Ég held áfram.“
thorgerdur@mbl.is
Má ekki heita Sigríður
Sigurður Hlynur má ekki taka upp nafn ömmu sinnar
Mannanafnanefnd hafnar beiðni Talar við lögfræðing
Vill nafn ömmu Sigurður Hlynur er bóndi á Öndólfsstöðum í Reykjadal.