Morgunblaðið - 31.05.2018, Blaðsíða 44
44 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018
Guðmundur Sv. Hermannsson
gummi@mbl.is
Jüri Ratas var 13 ára gamall árið
1991 þegar Eistland lýsti yfir sjálf-
stæði að nýju eftir að hafa verið inn-
limað í Sovétríkin nærri hálfri öld
fyrr. Nú, nærri 27 árum síðar, er
Ratas forsætisráðherra Eistlands og
hann var í vikunni í opinberri heim-
sókn hér á landi.
„Þótt ég hafi verið barn að aldri
man ég þessa tíma mjög vel,“ sagði
Ratas í stuttu samtali við Morgun-
blaðið. „Og við munum einnig mjög
vel og kunnum að meta þann stuðn-
ing sem þjóð ykkar og ríkisstjórn
sýndu þegar hún viðurkenndi endur-
heimt sjálfstæði okkar árið 1991.“
Við komum hingað til að eiga
fundi með íslenskum ráðamönnum,
sagði Ratas. „Við minnumst þess nú,
að 100 ár eru liðin frá því Eistland
lýsti fyrst yfir sjálfstæði. Það er í
raun hornsteinninn í tilveru lands-
ins. Við viljum einnig óska ykkur og
landi ykkar til hamingju með 100
ára fullveldisafmælið.“
Gengið á ýmsu
Eystrasaltsríkin þrjú, Eistland,
Lettland og Litháen, lýstu öll yfir
sjálfstæði árið 1918. Þau voru síðan
hernumin og innlimuð í Sovétríkin
árið 1940 og voru hluti af þeim til
ársins 1991 þegar þau lýstu á ný yfir
sjálfstæði. Á ýmsu hefur gengið í
samskiptum Eistlands og Rússlands
frá því Eistland fékk sjálfstæði á ný.
Síðast í vor hvöttu Eystrasaltsríkin
þrjú Bandaríkin og Atlantshafs-
bandalagið til að auka hernaðar-
viðbúnað í austurhluta Evrópu
vegna þeirrar ógnar sem stafi frá
Rússum.
„Ég held að Eistar þekki Rússa
vel og við munum vel eftir þessum
fimmtíu árum þegar landið var her-
numið. Og við erum mjög ánægð
með að vera hluti af Evrópusam-
bandinu og Atlantshafsbandalag-
inu,“ sagði Ratas. En Eistland og
Rússland séu einnig nágrannar sem
eigi eðlileg og góð samskipti á mörg-
um sviðum.
Það er ekki mikill samgangur
milli Íslands og Eystrasaltsríkjanna.
Tölur Ferðamálastofu sýna t.d. að
innan við 2% af erlendum ferða-
mönnum á Íslandi koma frá þessum
löndum. Ratas segist trúa því að
þessar tölur muni hækka og einnig
að önnur viðskipti milli þjóðanna
aukist.
„En samskipti þjóða okkar eru
mjög vinsamleg og tengslin sterk.
Forseti okkar hefur nýlega heimsótt
Ísland, utanríkisráðherrann einnig
og nú er ég hér. Þá er ég mjög
ánægður með að forsetinn ykkar
mun heimsækja Eistland í júní og
bauð í dag forsætisráðherranum
ykkar í heimsókn. Samskipti
Norðurlandaríkjnna og Eystrasalts-
ríkjanna eru einnig mjög góð og við
viljum gjarnan dýpka þau. Ég sagði
hér að Eistland hefði áhuga á að fá
aðild að Norræna kvikmynda- og
sjónvarpssjóðnum og norrænu
rannsóknarstofnuninni, NordForsk.
Ég sagði einnig að það væri jákvætt
og mikilvægt ef innan þessa sam-
starfs væri hægt að vinna að fram-
gangi stafrænnar þróunar, bæði fyr-
ir einstaklinga og fyrirtæki.“
Árangur smáþjóða
Ratas er leiðtogi Miðflokksins í
Eistlandi og myndaði ríkisstjórn
með tveimur öðrum flokkum í
nóvember 2016 eftir að fyrri ríkis-
stjórn landsins sprakk. Eistland er
eitt af fámennustu ríkjunum í Evr-
ópusambandinu en landsmenn eru
rúmlega 1,3 milljónir. Ratas segir að
efnahagsleg staða Eistlands sé góð.
Á síðasta ári hafi hagvöxtur verið
tæplega 5%, atvinnuleysi mældist
innan við 6% og vel hafi gengið að
grynnka á opinberum skuldum.
Ratas var áður forseti körfuknatt-
leikssambands Eistlands og sagðist
hafa átt talsverð samskipti við
Körfuknattleikssamband Íslands á
þeim tíma. „Sumir segja að fámenn-
ar þjóðir geti ekki náð árangri í liðs-
íþróttum. En Íslendingar hafa af-
sannað það með því að komast
tvívegis í úrslit Evrópumótsins í
körfubolta og með frammistöðu
knattspyrnulandsliðsins. Þetta hef-
ur verið litlum þjóðum mikil hvatn-
ing,“ segir Jüri Ratas.
Kunnum að meta stuðning Íslands
Forsætisráðherra Eistlands segir að tengsl Íslands og Eystrasaltsríkjanna séu sterk
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Forsætisráðherra Jüri Ratas segist muna vel eftir sjálfstæðisbaráttu Eistlands þótt hann hafi verið barn að aldri.
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | Opið alla virka daga kl. 10-17 | www.rut.is | Ljósmyndir Rutar og Silju
Góð passamynd
skiptir máli Fyrir passann
ökuskírteinið
ferilskrána o.fl.
Skjót og hröð þjónusta
ENGAR TÍMAPANTANIR