Morgunblaðið - 31.05.2018, Blaðsíða 76
76 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018
Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
Frábært
verð á glerjum
Einfókus gler
Verð frá kr. 16.900,-
Margskipt gler
Verð frá kr. 41.900,-
Basebox BB6622 umgjörð
kr. 12.900,-
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Skoski tónlistarmaðurinn Midge
Ure verður sérstakur gestur
hljómsveitarinnar Todmobile og
Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands,
SinfoNord, og tónleikum Tod-
mobile í Eldborg í Hörpu 2.
nóvember næstkomandi. Todmo-
bile fagnar í haust 30 ára afmæli
sínu en hún gaf út sitt fyrsta lag,
„Sameiginlegt“, haustið 1988 og ári
síðar leit fyrsta breiðskífa sveit-
arinnar dagsins ljós en þær eru nú
orðnar átta talsins. Hljómsveitin
hefur í þrígang haldið tónleika í
Eldborg með erlendum stjörnum;
árið 2013 með Jon Anderson,
söngvara YES; árið 2015 með
Steve Hackett, gítarleikara Genes-
is og haustið 2016 með söngv-
aranum Nik Kershaw. Ure verður
því fjórða erlenda poppstjarnan
sem kemur fram með Todmobile
en tónlistarferill hans spannar nær
hálfa öld.
Poppsmellir og góðgerðarmál
Ure er þekktastur af því að hafa
verið forsprakki, söngvari og laga-
höfundur hljómsveitarinnar Ultra-
vox sem var á hápunkti frægðar
sinnar og vinsælda á árunum 1980-
86 og átti fjölda platna og laga á
breskum vinsældalistum, m.a.
smellina „Dancing with Tears in
My Eyes“ og „Vienna“. Ure er
einnig þekktur af störfum sínum í
þágu góðgerðarmála og var einn
skipuleggjenda styrktartón-
leikanna Live Aid árið 1985 og
Live 8 árið 2005. Hann samdi lagið
„Do They Know It’s Christmas?“
með Bob Geldof árið 1984 sem
flutt var af Band Aid, hópi vinsæl-
ustu söngvara og tónlistarmanna
þess tíma á Bretlandi og telst lagið
í dag í hópi sígildra jólalaga. Fyrir
störf sín í þágu góðgerðarmála og
tónlistar hlaut Ure hina virtu OBE
heiðursorðu Elísabetar II. Eng-
landsdrottningar árið 2005.
Ure hefur verið liðsmaður nokk-
urra hljómsveita, m.a. Slik, Thin
Lizzy, Visage og Ultravox, auk
þess að starfa og gefa út plötur í
eigin nafni. Í fyrra gaf hann út
plötuna Orchestrated, sem hefur
að geyma hans þekktustu lög í sin-
fónískum útgáfum og á tón-
leikunum í Eldborg munu Todmo-
bile, Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands og Ure flytja vinsælustu lög
hans og Ultravox og helstu smelli
Todmobile. Meðlimir Todmobile
eru þau Andrea Gylfadóttir, Þor-
valdur Bjarni Þorvaldsson, Eyþór
Ingi Gunnlaugsson, Eiður Arnars-
son, Kjartan Valdemarsson, Ólafur
Hólm, Alma Rut og Greta Salóme.
Jim aftur á bak
Ure heitir réttu nafni James en
gælunafnið „Midge“ hlaut hann
þegar hann var í hljómsveitinni
Salvation í byrjun áttunda áratug-
arins. Þar sem hann var kallaður
Jim og annar liðsmaður hljóm-
sveitarinnar sömuleiðis, Jim
McGinley, lagði McGinley til að
Ure yrði kallaður Mij, þ.e. Jim aft-
ur á bak, til aðgreiningar á þeim.
Síðar breytti Ure rithættinum í
Midge og hefur haldið sig við það
listamannsnafn allar götur síðan.
„Þetta er því miður sönn saga,“
segir Ure kíminn.
Ure segist ekki hafa komið til
Íslands áður og hlakkar „kjánalega
mikið“ til heimsóknarinnar, eins og
hann orðar það. „Eiginkona mín
kemur með mér og hún hefur ekki
heldur komið til Íslands. Þannig að
við hlökkum bæði mikið til,“ bætir
hann við. Hvað tónleikana varðar
segist Ure hafa horft á upptökur
af fyrri tónleikum Todmobile í
Eldborg og hefur dálitlar áhyggjur
af því að hann verði á látlausum
æfingum fyrir tónleikana. „Gæðin
á því sem ég hef séð á YouTube, á
hljómsveitinni og sinfóníuhljóm-
sveitinni, eru svo mikil að ég er að
velta fyrir mér hvort ég sé nógu
góður til að taka þátt í þessu.
Kannski fer allur tími minn á Ís-
landi í æfingar!“ segir Ure og
hlær.
Frá sér numinn
En hver voru hans fyrstu við-
brögð þegar hann var beðinn um
að koma fram á tónleikum með
þrítugri íslenskri hljómsveit að
nafni Todmobile? „Ég hafði ekki
hugmynd um hverju ég ætti að bú-
ast við, í hreinskilni sagt. Tón-
leikabókarinn minn fékk beiðni frá
hljómsveitinni, kynnti sér hana á
netinu, hafði svo samband við mig
og hvatti mig til að skoða hana og
taka þessu boði. Ég kíkti á hana
og varð frá mér numinn,“ svarar
Ure. Honum hafi þótt hljómurinn
einstakur, tónlistin áhugaverð,
flutningurinn vandaður og útsetn-
ingarnar margslungnar.
– Gerir þú mikið af því að koma
fram með hljómsveitum sem þú
kannast ekkert við?
Ure hlær. „Ég verð að viður-
kenna það já, ég þekkti þessa
hljómsveit ekkert en ég hef gert
svona lagað áður. Ef maður hefur
verið að nógu lengi fær maður slík
tilboð. En ég samþykki aldrei slíkt
boð án þess að hafa kynnt mér
hljómsveitina vel,“ svarar Ure.
Hann segir tónleikana í Eldborg
hitta á heppilegan tíma þar sem
hann hafi í árslok í fyrra gefið út
plötu með sinfónískum útgáfum af
lögum sínum, bæði lögum sem
hann flutti með Ultravox og frá
sólóferlinum. „Hugur minn er því
enn á þessu svæði þar sem ég hef
undanfarin tvö ár einbeitt mér að
þessari plötu. Þessir tónleikar
henta mér því fullkomlega, eins og
staðan er.“
Sum sinfónískari en önnur
Ure segir sum laga sinna falla
betur að sinfóníuforminu en önnur
og nefnir sem dæmi að „Vienna“
komi frábærlega út í sinfónískri
útgáfu. „Það er ekki hægt að
breyta miklu í því lagi og því er
sinfóníska útgáfan býsna nærri
þeirri upphaflegu,“ segir hann.
Annað sé uppi á teningnum í
laginu „Dancing with Tears in My
Eyes“. „Ég gjörbreytti tilfinning-
unni og andrúmsloftinu í því,
hægði á taktinum og gerði það
virkilega átakanlegt,“ útskýrir
Ure. Fyrir vikið skili texti lagsins
og merking hans sér betur en yrk-
isefnið er sársauki, eftirsjá og glöt-
uð ást.
Ultravox var mjög vinsæl hljóm-
sveit á sínum tíma, einkum á fyrri
hluta níunda áratugarins og lék
tölvuskotið nýbylgjupopp. Ure er
spurður að því hvaða áhrif hann
telji hljómsveitina hafa haft á ný-
rómantíkina sem kom fram í byrj-
un níunda áratugarins með hljóm-
sveitum á borð við Duran Duran
og Human League. Hann svarar
því til að Ultravox sé enn talin
hafa haft mikil áhrif á hljómsveitir
sem fylgdu í kjölfarið en hann telji
áhrifin einkum fólgin í því hvernig
hljómsveitin blandaði saman raf-
tónlist og hefðbundnum rokk-
hljóðfærum. „Ég held að Visage
hafi frekar verið nýrómantísk, hún
var öllu mýkri en Ultravox sem
var rokksveit en þó alltaf tengd við
nýrómantíkina,“ segir Ure.
Jólalag sem gefur og gefur
Talið berst að góðgerðarstörfum
Ure sem hófust með samstarfi
hans við Bob Geldof, laginu „Do
They Know It’s Christmas?“ og
hinum sögufrægu styrktartón-
leikum Live Aid vegna hungurs-
neyðarinnar í Eþíópíu árið 1985.
Ure segist lítið hafa velt fyrir sér
góðgerðarmálum á þessum tíma,
þegar hann var rétt rúmlega þrí-
tugur en Ure er fæddur árið 1953.
„Hausinn á mér var fullur af tón-
list og vegna velgengni minnar á
því sviði fór ég að starfa að góð-
gerðarmálum. Það hefði ekki gerst
annars, ef satt skal segja og ég
gerði áður það sama og allir aðrir,
setti peninga í söfnunarbauka og
bar fána. Mér datt aldrei í hug að
ég myndi láta til mín taka á þessu
sviði og það gerðist fyrir tilviljun.
En þegar maður er byrjaður á
annað borð getur maður ekki
hætt,“ segir Ure.
– Góðgerðarmálin hljóta að hafa
breytt lífi þínu?
„Já, þau breyttu miklu. Þau
breyttu ferli mínum, mér leið
ágætlega með Ultravox en Band
Aid og Live Aid gerðu það að
verkum að ég var ekki í hljóm-
sveitinni í tvö ár. Þegar ég sneri
aftur hafði allt breyst og þetta
drap eiginlega hljómsveitina.
Þannig að margt breyttist, að
sumu leyti til hins betra og að
öðru leyti til hins verra,“ svarar
Ure.
Band Aid-góðgerðarsjóðurinn er
enn til og renna í hann allar
greiðslur fyrir spilun og notkun á
jólalaginu góða sem getur verið
dágóð summa, t.d. þegar lagið er
notað í kvikmynd. „Við Bob sömd-
um lagið og gáfum sjóðnum það og
það aflar enn tekna,“ segir Ure en
sjóðurinn styrkir margvísleg góð-
gerðarmál, m.a. menntun fátækra
barna í Afríku.
Nokkur sígild á efnisskránni
En aftur að tónleikunum í Eld-
borg. Er Ure búinn að ákveða
hvaða lög hann mun syngja á
þeim? „Ekki enn. Það hafa nokkur
verið nefnd,“ svarar Ure en segir
allar líkur á því að smellirnir
„Dancing with Tears in My Eyes“,
„Vienna“ og „If I Was“ verði
fluttir. „Ég hef skilning á því að
fólk vilji heyra lög sem það þekkir,
það er alveg skiljanlegt og því
verða nokkur sígild lög flutt sem
Íslendingar ættu að kannast við,“
segir Ure.
Þeir sem vilja rifja upp smelli
Ure geta t.d. gert það á mynd-
bandavefnum YouTube og
streymisveitunni Spotify.
Tilhlökkun Midge Ure ber mikið lof á Todmobile og Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands og hlakkar mikið til tónleikanna í Eldborg í nóvember.
Dansar enn með tárvot augu
Midge Ure, fyrrverandi forsprakki Ultravox, kemur fram með Todmobile og SinfoNord „Ég er að
velta fyrir mér hvort ég sé nógu góður til að taka þátt í þessu,“ segir Skotinn hógværi um tónleikana