Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 14

Læknablaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 14
ótilgreinda brjóstverki sýndu einkenni um bæði þunglyndi, kvíða og streitu, samanborið við 13% hjartasjúklinga (p<0,05, OR 2,36, 95% CI: 1,19-4,59). Mat á líkindahlutfalli sjúklinga með ótilgreinda brjóstverki á að finna fyrir einkennum kvíða og streitu hélst ekki marktækt eftir að leiðrétt hafði verið fyrir kyni, aldri og tímalengd frá útskrift. Í leiðréttu líkönunum hafði hærri aldur sterkustu tengslin við minni líkur á einkennum kvíða og streitu (OR 0,96; 95% CI: 0,94-0,98 í báðum tilvikum). Sjúklingar með ótilgreinda brjóstverki sem sýndu einkenni um kvíða og aukna streitu voru að jafnaði 5-6 árum yngri en þeir sem ekki fundu fyrir slíkum ein- kennum (meðaltal= 46 ± 13 ár og 51 ± 11 ár fyrir kvíða, p<0,001; og meðaltal= 45 ± 12 ár á móti 51 ± 11 ár fyrir streitu, p<0,001). Verkjaupplifun eftir útskrift og upplifun á þjónustu Aðspurðir um áframhaldandi verkjaupplifun tilgreindu 60% sjúk- linga með ótilgreinda brjóstverki (n=169) og 60% hjartasjúklinga (n=55) að þeir hefðu fundið fyrir brjóstverk eða óþægindum fyrir brjósti eftir útskrift. Meðal sjúklinga með áframhaldandi brjóst- verki fundu 9% sjúklinga með ótilgreinda brjóstverki og 15% hjartasjúklinga fyrir verk daglega eða oft á dag. Rúmlega fjórð- ungur sjúklinga hafði fundið tvisvar til þrisvar sinnum fyrir brjóstverk eftir útskrift. Í töflu IV má sjá að áframhaldandi verkja- upplifun hafði tengsl við meiri byrði líkamlegra einkenna meðal beggja hópa og við aukin kvíða-, þunglyndis- og streitueinkenni meðal sjúklinga með ótilgreinda brjóstverki. Þau tengsl voru óháð aldri, kyni og tímalengd frá útskrift fyrir kvíða og þunglyndi en ekki fyrir streitu (p=0,10). Áhyggjur og viðbrögð sjúklinga við áframhaldandi brjóst- verkjum voru svipuð, en 30% sjúklinga með ótilgreinda brjóst- verki (n=50) og 39% hjartasjúklinga (n=22) höfðu frekar miklar eða mjög miklar áhyggjur af þeim brjóstverkjum sem þeir fundu fyrir (p=0,50). Meirihluti bæði sjúklinga með ótilgreinda brjóstverki (65% (n=108)) og hjartasjúklinga (64% (n=35)) fannst þeim þó ganga frekar vel eða mjög vel að takast á við þá (p=0,59). Algengustu við- brögð sjúklinga við áframhaldandi brjóstverkjum voru að reyna að slaka á eða liðka sig og hreyfa (44% sjúklinga með ótilgreinda brjóstverki (n=75) og 37% hjartasjúklinga (n=20)). Þriðjungur sjúklinga með ótilgreinda brjóstverki og fjórðungur hjartasjúk- linga greip ekki til neinna sérstakra úrræða og 16% sjúklinga með ótilgreinda brjóstverki (n=27) og 22% hjartasjúklinga (n=12) tóku inn lyf vegna þeirra. Aðspurðir um eigin hugmyndir um hvað ylli þessum áframhaldandi brjóstverkjum nefndu 29% sjúklinga með ótilgreinda brjóstverki (n=50) andlega eða bæði andlega og lík- amlega þætti. Alls 27% (n=45) nefndu vefrænar orsakir og lífstíls- þætti og 30% (n=50) voru óvissir um hvað ylli brjóstverkjunum eða tilgreindu ekki ástæðu. Meðal hjartasjúklinga töldu flestir að vefrænar orsakir lægju að baki brjóstverkjunum (33% (n=18)). Alls 22% (n=12) nefndu andlega eða bæði andlega og líkamlega þætti og 24% (n=13) tilgreindu ekki hvað þeir teldu að ylli brjóstverkj- unum. Alls töldu 14% sjúklinga með ótilgreinda brjóstverki (n=24) og 18% hjartasjúklinga (n=10) að hjartatengd ástæða (með eða án líkamlegra eða andlegra þátta) orsakaði þá brjóstverki sem þeir höfðu fundið fyrir eftir útskrift. Tafla V sýnir niðurstöður úr mati sjúklinga á upplýsingagjöf. Þar sést að fjórðungur sjúklinga með ótilgreinda brjóstverki og 17% hjartasjúklinga taldi sig ekki hafa fengið nægar upplýsingar um brjóstverkinn sem var ástæða fyrir komu þeirra á deildina. Meðal upplýsinga sem sjúklingum með ótilgreinda brjóstverki fannst vanta voru upplýsingar um ástæður brjóstverkjarins (n=22) eða um ástæður brjóstverkjarins og framhaldið (n=8) en 9 sjúk- lingar sögðust hafa verið í algjörri óvissu. Meðal hjartasjúklinga skorti flesta upplýsingar um ástæður brjóstverkjarins (n=8). Alls 60% sjúklinga með ótilgreinda brjóstverki og 63% hjarta- sjúklinga höfðu ekki fengið eða voru óvissir um hvort þeir hefðu fengið upplýsingar frá heilbrigðisstarfsfólki um aðra þætti sem 74 LÆKNAblaðið 2018/104 R A N N S Ó K N Mynd 1. Samanburður á byrði líkamlegra einkenna, andlegri líðan og lífsgæðum sjúk- linga með ótilgreinda brjóstverki og hjartasjúklinga. Tafla III. Hlutfallslegur fjöldi sjúklinga sem sýndi einkenni um andlega vanlíðan eftir sjúklingahópum. Hlutfall (fjöldi). Sjúklingar með ótilgreinda brjóstverki (n=283) Hjartasjúklingar (n=91) p-gildi Óleiðrétt líkindahlutfall; OR (95% vikmörk) Leiðrétt líkindahlutfall; OR (95% vikmörk) Þunglyndiseinkenni 43 (120) 41 (36) 0,73 1,12 (0,69-1,80) 0,76 (0,44-1,27) Kvíðaeinkenni 40 (111) 28 (25) 0,036 1,78 (1,06-2,98)* 1,19 (0,68-2,09) Streitueinkenni 32 (88) 20 (17) 0,017 2,02 (1,12-3,62)* 1,24 (0,66-2,35) Heildarfjöldi einkenna um andlega vanlíðan Engin einkenni til staðar 46 (126) 49 (43) 0,07a -- -- Eitt einkenni til staðar 18 (50) 26 (23) 1,17 (0,73-1,88)b 0,77 (0,46-1,30)b Tvö einkenni til staðar 12 (32) 12 (10) 1,87 (1,09-3,24)*c 1,19 (0,66-2,17)c Öll þrjú einkenni til staðar 24 (67) 13 (11) 2,36 (1,19-4,59)*d 1,32 (0,66-2,91)d aReiknuð raðfylgni (tau-c). bLíkindahlutfall samanborið við þá sem höfðu engin einkenni. CLíkindahlutfall samanborið við þá sem höfðu engin eða bara eitt einkenni. dLíkindahlutfall samanborið við þá sem höfðu engin einkenni, eitt eða tvö einkenni. *p<0,05.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.