Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.02.2018, Side 15

Læknablaðið - 01.02.2018, Side 15
LÆKNAblaðið 2018/104 75 R A N N S Ó K N gætu skýrt brjóstverkinn. Af þeim sem tilgreindu hvaða skýr- ingar þeir höfðu fengið á öðrum mögulegum orsökum nefndu flestir áhrif líkamlegra einkenna og neikvæðra lífsstílsþátta (sjá töflu V). Einungis 11% sjúklinga með ótilgreinda brjóstverki og 3% hjartasjúklinga sögðust hafa fengið upplýsingar um að andlegir eða bæði andlegir og líkamlegir þættir gætu valdið brjóstverkjum. Hlutfallslega fleiri sjúklingar með ótilgreinda brjóstverki sögðust ekki hafa fengið skýrar leiðbeiningar við útskrift um hvað þeir ættu að gera ef brjóstverkurinn kæmi aftur (30% í samanburði við 19% hjartasjúklinga, p=0,029; OR 1,87; 95% CI: 1,04-3,36). Umræða Niðurstöður þessarar rannsóknar gefa til kynna að ótilgreind- ir brjóstverkir séu algengir á bráðadeildum Landspítala. Mikill meirihluti þátttakenda sem leitað höfðu á Hjartagátt eða bráða- móttökuna í Fossvogi á 8 mánaða tímabili vegna brjóstverkja voru greindir með ótilgreindan brjóstverk, eða 72%. Það hlutfall er sambærilegt við erlendar rannsóknir.5,7 Nærri helmingur þeirra hafði leitað áður á bráðadeild vegna brjóstverkja og þeir áttu að meðaltali jafn margar fyrri komur og hjartasjúklingar. Miðað við þessar tölur og þann umtalsverða kostnað sem þekkt er að fylgi greiningu og meðhöndlun sjúklinga með ótilgreinda brjóstverki í heilbrigðiskerfinu annars vegar og samfélagslegan kostnað þeim tengdum hins vegar,24,25 má gera ráð fyrir að heildarkostnaður vegna þeirra sé talsverður hérlendis. Samanborið við hjartasjúklinga fundu sjúklingar með ótil- greinda brjóstverki fyrir jafn mikilli byrði líkamlegra einkenna, sambærilegum lífsgæðum og svipuðum einkennum þunglyndis en sýndu ívið meiri kvíða- og streitueinkenni. Þekkt er að hjarta- sjúklingar séu viðkvæmir fyrir andlegri vanlíðan. Vísbendingar eru um að ekki sé greinanlegur munur á algengi kvíða- og þung- lyndiseinkenna milli hjartasjúklinga og sjúklinga með ótilgreinda brjóstverki.10,26 Styðja niðurstöður þessarar rannsóknar raunar við slíkar rannsóknarniðurstöður. Í heildina sýndi rúmlega helming- ur sjúklinga með ótilgreinda brjóstverki einkenni um einhverja andlega vanlíðan. Það hlutfall er sambærilegt við norska rannsókn þar sem 39% slíkra sjúklinga höfðu sálræn vandamál.27 Af þess- um niðurstöðum má ljóst vera að algengi kvíða og þunglyndisein- kenna meðal þátttakenda var hærra en þekkist meðal almennings þar sem 20% einstaklinga reynast hafa einhverja geðröskun yfir fjögurra vikna tímabil.28 Munur á andlegri líðan milli sjúklinga- hópanna í þessari rannsókn hélst ekki marktækur þegar leiðrétt var fyrir aldri, en lægri aldur hafði sterk tengsl við verri andlega Tafla IV. Tengsl áframhaldandi brjóstverkja eftir útskrift við byrði líkamlegra einkenna, andlega líðan og lífsgæði. Hjartasjúklingar (n=91) Sjúklingar með ótilgreinda brjóstverki (n=283) Brjóstverkir eftir útskrift Engir brjóstverkir eftir útskrift Β a ΔR2,b Brjóstverkir eftir útskrift Engir brjóstverkir eftir útskrift Β a ΔR2,b Líkamleg einkenni 11,3 (7,1)** 7,9 (5,7)** 0,23* 0,05* 11,4 (7,1)** 6,8 (5,1)** 0,30** 0,09** Kvíði 4,1 (3,8) 3,0 (3,3) 0,12 0,01 5,5 (5,1)** 3,5 (3,7)** 0,19*** 0,03** Þunglyndi 5,7 (4,8) 3,8 (4,0) 0,19 0,03 6,0 (5,0)** 4,0 (4,2)** 0,17*** 0,03** Streita 17,1 (8,0) 15,8 (7,7) 0,05 0,00 20,0 (10,4)* 17,2 (8,6)* 0,11 0,01 Lífsgæði 88,5 (15,3) 91,1 (11,6) -0,10 0,01 87,3 (12,9) 89,8 (12,4) -0,08 0,01 *p<0,05 **p<0,01 ***p<0,001. aStaðlaður hallastuðull úr línulegri aðfallsgreiningu, þar sem stjórnað er fyrir áhrif aldurs, kyns, og tímalengdar frá útskrift. bBreyting í skýrðri dreifni í fylgibreytu þegar frumbreytunni „brjóstverkir eftir útskrift“ er bætt við líkanið. Tafla V. Upplifun sjúklinga með ótilgreinda brjóstverki og hjartasjúklinga á upplýsingagjöf á bráðadeildum Landspítala. Hlutfall (fjöldi). Hjartasjúklingar (n=91) Sjúklingar með ótilgreinda brjóstverki (n=283) Já Nei Er ekki viss Já Nei Er ekki viss 1. Fékk nægar upplýsingar um brjóstverkinn á bráðadeild. 81 (74) 17 (15) 2 (2) 75 (208) 25 (69) 1 (2) 2. Fékk skýrar leiðbeiningar um hvað ég eigi að gera ef verkur kemur aftur. 81 (74) 19 (17)* -- 70 (192) 30 (83)* -- 3. Var eitthvað ábótavant við þá meðferð sem þér var veitt? 18 (16) 78 (70) 4 (4) 20 (55) 60 (169) 20 (55) 4. Fékk skýringar á öðrum mögulegum orsökum brjóstverkja á bráðadeild. 37 (33) 45 (40) 18 (16) 40 (109) 36 (97) 24 (67) 4.a. Ef já, hvaða skýringar veittar? n=33 n=109 Andlegir þættir 0 (0) 5 (5) Andlegir og líkamlegir þættir 3 (1) 6 (7) Líkamleg einkenni og lífstílsþættir 21 (7) 46 (50) Afleiðingar slyss / aðgerða / lyfja 6 (2) 2 (2) Ótilgreint 70 (23) 41 (45) *p<0,05.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.