Læknablaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 16
76 LÆKNAblaðið 2018/104
R A N N S Ó K N
líðan. Raunar voru sjúklingar með ótilgreinda brjóstverki sem
sýndu kvíða-, þunglyndis- og streitueinkenni að jafnaði yngri
en þeir sem ekki fundu fyrir slíkum einkennum. Rannsóknir
hafa áður tengt hærri aldur við betri andlega heilsu og það þrátt
fyrir verri líkamlega heilsu.29 Hugsanlega er eldra fólk hæfara til
að takast á við streituvaldandi aðstæður vegna aukins innsæis,
æðruleysis og betri tilfinningastjórnunar. Því má velta fyrir sér
hvort yngri sjúklingar með ótilgreinda brjóstverki þurfi meira á
sálfræðilegum stuðningi og bættri þjónustu að halda.
Meira en helmingur bæði hjartasjúklinga og sjúklinga með
ótilgreinda brjóstverki fann fyrir áframhaldandi brjóstverkjum
eftir útskrift. Algengi slíkra verkjaupplifana var sambærilegt við
rannsóknir með skemmri og lengri eftirfylgnitíma,12,30 sem bendir
til þess að um algengt vandamál sé að ræða sem líklega veldur
sjúklingum ama og áhyggjum. Slíkur verkjavandi er sérstaklega
alvarlegur þar sem áframhaldandi brjóstverkir hafa verið tengdir
við verri andlega líðan meðal sjúklinga með ótilgreinda brjóst-
verki.12 Í þessari rannsókn voru slíkir viðvarandi verkir einmitt
tengdir við meiri kvíða og þunglyndi, óháð áhrifum aldurs, kyns
og tímalengdar frá útskrift. Slík tengsl fundust hins vegar ekki
meðal hjartasjúklinga sem er athyglisvert í ljósi þess að ekki
mældist munur á áhyggjum af áframhaldandi verkjum milli sjúk-
lingahópa. Hafa ber þó í huga að hópur hjartasjúklinga var tals-
vert fámennari og afköst til að greina mun innan hans því lík-
lega minni. Hugsanlega skiptir upplifun sjúklinga á meðferð og
upplýsingagjöf þar máli, þar sem hlutfallslega fleiri sjúklingum
með ótilgreinda brjóstverki fannst þá vanta skýrar leiðbeiningar
um hvað þeir ættu að gera ef verkurinn kæmi aftur. Í ljósi þess
að þriðjungur sjúklinga með ótilgreinda brjóstverki hafði mikl-
ar áhyggjur af áframhaldandi brjóstverkjum og fjórðungi þeirra
fannst þeir ekki fá nægar upplýsingar á meðan á innlögn stóð
varðandi brjóstverk sinn, má álykta að ákveðinni upplýsingagjöf
til þessa sjúklingahóps sé ekki fullnægt.
Hugmyndir sjúklingahópanna um hvaða þættir viðhéldu
brjóstverkjum þeirra voru áþekkar en að mörgu leyti á skjön við
þær upplýsingar sem þeim voru veittar af heilbrigðisstarfsfólki.
Athyglisvert var að flestir, eða þriðjungur sjúklinga með ótil-
greindan brjóstverk, töldu að brjóstverkur þeirra væri tilkominn
af andlegum eða bæði andlegum og líkamlegum orsökum, en afar
fágætt var að heilbrigðisstarfsfólk nefndi andlega þætti sem mögu-
lega orsök fyrir brjóstverk. Einnig var mun algengara að hjarta-
sjúklingar tryðu því að andlegir þættir gætu skýrt brjóstverkinn
heldur en að þeir hafi fengið slíkar skýringar frá heilbrigðisstarfs-
fólki. Heilbrigðisstarfsfólk nefndi aftur á móti helst vefræna og
lífsstílstengda þætti sem aðra mögulega orsakaþætti. Sjúklingar
virðast því vera opnir fyrir þeim möguleika að brjóstverkir geti
verið tilkomnir af sálrænum orsökum. Þessar niðurstöður benda
til þess að þörf sé á því að læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk
leggi meiri áherslu á að miðla upplýsingum áfram til sjúklinga
sinna um möguleg tengsl andlegrar líðanar og líkamlegrar heilsu.
Í ljósi þess að fyrri rannsóknir hafa sýnt að ótilgreindir brjóst-
verkir geti meðal annars orsakast af sálrænum kvillum á borð við
kvíða og þunglyndi4,5 er full ástæða til að benda sjúklingum á þau
hugsanlegu orsakatengsl.
Óvissa um orsök brjóstverkja virðist ala á langvarandi áhyggj-
um meðal sjúklinga með ótilgreinda brjóstverki31 og leiða til auk-
innar notkunar heilbrigðisþjónustu. Slík tilhneiging kom fram í
þessari rannsókn, þar sem nærri helmingur sjúklinga með ótil-
greinda brjóstverki hafði leitað sér læknisaðstoðar áður vegna
brjóstverkja. Þá voru skýringar frá heilbrigðisstarfsfólki um aðr-
ar mögulegar orsakir brjóstverkja einmitt sá þáttur í þjónustunni
sem flestum þátttakendum fannst ábótavant. Í erlendum rann-
sóknum hafa athugasemdir sjúklinga með ótilgreinda brjóstverki
varðandi upplýsingagjöf einnig beinst að ónógum upplýsingum
eða skýringum um orsakir brjóstverkja.14,15,31
Ályktanir
Þessi rannsókn veitir mikilvægar upplýsingar um líðan og lífs-
gæði sjúklinga með ótilgreinda brjóstverki og upplifun þeirra af
þjónustu bráðadeilda. Ljóst er að verulegur fjöldi sjúklinga með
ótilgreinda brjóstverki leitar á bráðadeildir Landspítala og að þeir
finna fyrir svipaðri líkamlegri og andlegri vanlíðan og hjartasjúk-
lingar þrátt fyrir lægri aldur. Viðvarandi verkjaupplifun meðal
bæði sjúklinga með ótilgreinda brjóstverki og hjartasjúklinga var
algeng en hafði eingöngu samband við andlega vanlíðan meðal
fyrrnefnda hópsins. Hafa ber í huga við túlkun niðurstaðna að
mislangur tími leið frá útskrift sjúklinga til þátttöku þeirra. Hætta
er á að minni sjúklinga um atburði sem gerðust við komu á spít-
ala dvíni eftir því sem lengra líður frá útskrift, sem getur valdið
skekkju í svörum þeirra. Í heild benda niðurstöðurnar þó til þess
að úrbóta sé þörf í stuðningi og upplýsingagjöf til sjúklinga með
ótilgreinda brjóstverki. Bent hefur verið á mikilvægi þess að veita
þessum hópi sérstaka athygli á bráðadeildum, til dæmis með meiri
eftirfylgni eða að veitta fullvissu um orsakir verkja, þar sem kvíði
og áhyggjur geta bæði viðhaldið brjóstverkjum og ýtt undir frekari
endurkomur.10 Meðferðarúrræði sem hafa beinst bæði að vefræn-
um og sálrænum orsökum verkja hafa verið prófuð erlendis fyrir
þennan sjúklingahóp með góðum árangri.32 Slík nálgun hérlendis
gæti leitt til betri lífsgæða fyrir stóran hóp sjúklinga og sparnaðar
í heilbrigðiskerfinu og fyrir samfélagið í heild.
Þakkir
Rannsóknarhópurinn færir starfsfólki gæða- og sýkingavarnar-
deildar kærar þakkir fyrir afnot af húsnæði við framkvæmd
þessarar rannsóknar, og starfsfólki á Hjartagátt og bráðamóttöku
þakkir fyrir veittan stuðning. Rannsóknin var styrkt af Rann-
sóknarsjóði Íslands og Vísindasjóði Landspítala.