Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 22

Læknablaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 22
82 LÆKNAblaðið 2018/104 tækt meira en drengir á frídögum (p<0,01). Þá hreyfðu drengir og stúlkur sig marktækt meira á skóladögum en frídögum (p<0,001). Bæði stúlkur og drengir sváfu skemur á skóladögum (p<0,001) en frídögum. Ekki var marktækur kynjamunur á svefnlengd á skóladögum né á frídögum. Þegar hvíldartími skóladaga var bor- inn saman við ráðlagðan svefntíma unglinga, minnst 8 tíma næt- ursvefn, náðu einungis 5,0% drengja og 19,8% stúlkna ráðlögðum hvíldartíma. Á frídögum náðu 68,9% drengja og 65,6% stúlkna ráðlögðum hvíldartíma fyrir unglinga. Í töflu IV er borin saman hreyfing sem mæld var með hreyfimælum annars vegar og metin með spurningalistum hins vegar. Stúlkur og drengir sem stunduðu íþróttir og/eða líkams- rækt í meira en 6 klukkustundir á viku hreyfðu sig einnig meira dag hvern samkvæmt hröðunarmælum, samanborið við þau sem hreyfðu sig minna en 6 tíma á viku (p<0,001). Þá mældist einnig marktækt meiri hreyfing með hröðunarmæli hjá þeim sem sögð- ust reyna á sig líkamlega þannig að þau mæddust eða svitnuðu að minnsta kosti 6 daga vikunnar en hjá öðrum (p<0,001). Sam- bærilegur munur fékkst milli þeirra sem stunduðu íþróttir með íþróttafélagi og hjá þeim sem stunduðu ekki íþróttir, sérstaklega meðal drengja. Þá mældust ungmenni sem stunduðu íþróttir með 21,1% fleiri slög samkvæmt hröðunarmælum en þeir sem stunduðu ekki íþróttir (p<0,001). Tafla V sýnir niðurstöður fyrir samanburð á svefni mældum með hreyfimælum og svefni metnum með spurningalistum. Um helmingur þátttakenda taldi sig „oftast sofa nægilega mikið“ sam- kvæmt spurningalista. Þessi ungmenni hvíldust og sváfu einnig lengur samkvæmt hröðunarmæli en þau sem sögðust sofa nóg „um helming nátta“ eða „mjög sjaldan“. Í töflu VI eru hvíldartími og svefnlengd mæld með hreyfimæli skoðuð út frá hreyfingu samkvæmt spurningalistum. Ekki var marktækur munur á hvíldar- eða svefnlengd þeirra sem náðu við- miðum um hreyfingu (≥6 tíma á viku) og þeirra sem ekki náðu þeim viðmiðum samkvæmt niðurstöðum spurningalista. Ekki var heldur marktækur munur á svefnlengd eftir þátttöku í íþróttum. Einungis 11,3% þátttakenda uppfylltu viðmið um hreyfingu samkvæmt spurningalista og viðmið um svefn mældan með hreyfimæli yfir vikuna. Á skóladögum náðu einungis um 10,9% þátttakenda að uppfylla viðmið um bæði hvíldartíma og hreyf- ingu. Umræða Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að nokkuð mik- ið vanti upp á að íslensk ungmenni uppfylli viðmið um ráðlagða hreyfingu og svefn. Samkvæmt svörum þátttakenda við spurn- ingalistum uppfyllti ríflega helmingur drengja en nokkuð færri stúlkur viðmið um hreyfingu. Þar sem 39,6% drengja og 29,4% stúlkna hreyfðu sig oftar en 6 sinnum í viku af það mikilli ákefð að þau mæddust eða svitnuðu má ætla að hreyfing ungmennanna komi að einhverjum hluta af miðlungs- eða mikill ákefð eins og ráðleggingar mælast til. Stúlkur hreyfðu sig meira en drengir á frídögum samkvæmt niðurstöðum úr hröðunarmælum (3D-slög/ mín/dag) en ekki var marktækur munur á hreyfingu stúlkna og drengja aðra daga. Þessar niðurstöður eru frábrugðnar niðurstöð- um rannsóknar frá árinu 20113 á hreyfingu íslenskra barna og unglinga mældri með hröðunarmælum sem bornir voru á mjöðm (ActiGraph 7124) þar sem einungis 9% 15 ára unglinga uppfylltu viðmið um ráðlagða daglega hreyfingu (>3400 slög/mín/dag). Þar kom einnig fram munur á hreyfingu kynjanna þar sem einungis 1,5% stúlkna og 14,5% drengja uppfylltu viðmiðin. Hafa ber þó í huga að breytileg skilgreining á miðlungserfiðri hreyfingu og mælitækin sem notast er við geta haft áhrif á hlutfall þeirra sem uppfylla viðmiðin. Í núverandi rannsókn var nokkuð gott sam- ræmi milli hreyfingar samkvæmt spurningalistum og mældri með hreyfimælum, þar sem þau sem sögðust hreyfa sig meira samkvæmt spurningalista mældust einnig með 21,1% meiri með- altalshreyfingu samkvæmt hreyfimælum en þau sem gáfu svar um minni hreyfingu. Þá má sjá að fleiri drengir en stúlkur sögð- ust stunda íþróttir og mæðast eða svitna 6 sinnum í viku eða oftar en stúlkur mældust þó með fleiri slög á mínútu með hreyfimæl- um á frídögum. Þetta gæti gefið til kynna að hreyfing stúlkna og drengja sé að einhverju leyti frábrugðin og að hreyfing stúlkna fari síður fram sem skipulögð æfing eða þjálfun en meðal drengja. Það gæti þýtt að hreyfing stúlkna sé að meðaltali af minni ákefð en hreyfing drengja. Engin viðurkennd viðmið um magn eða ákefð hreyfingar mældrar með hreyfimælum eru til, svo erfitt er að bera hreyfigögn frá úlnliðsmæli saman við almennar hreyfi- ráðleggingar. Niðurstöður rannsóknar á hreyfingu barna og unglinga á Vest- urlöndum benda til að hreyfing minnki um 7% árlega á aldurs- bilinu 7-19 ára. Mest dró úr hreyfingu stúlkna á aldursbilinu 9-12 ára en 13-16 ára hjá drengjum. Talið er að kynþroski hafi áhrif á þessar breytingar og stúlkur þroskist að meðaltali fyrr sem að R A N N S Ó K N Tafla V. Huglægt mat á svefni samanborið við hlutlægt mat úr hröðunarmælum. Huglægar svefnbreytur úr spurningalista: Sefur þú nóg? Alla daga Of mikið (n=3) Oftast (n=136) Helming nátta (n=67) Sjaldan (n=60) p Niðurstöður úr hreyfimælum fyrir alla vikuna Hvíldartími (klst/dag) 8,0 ± 1,2 7,7 ± 0,6 7,5 ± 0,7 7,2 ± 0,7 <0,001 Svefntími (klst/dag) 6,8 ± 1,0 6,7 ± 0,6 6,6 ± 0,8 6,4 ± 0,6 0,017 Svefnnýting (%) 85,7 ± 2,0 87,2 ± 4,3 88,0 ± 4,4 88,5 ± 3,6 0,149 Hvíldust >= 8 klst (n, %) 1,0 (33,3) 40,0 (29,4) 12,0 (17,9) 8,0 (13,3) 0,057 Sváfu >= 8 klst (n, %) 0 (0) 2,0 (1,5) 3,0 (4,5) 0 (0) 0,289 Hreyfing (3D-slög/mín/dag) 2037,1 ± 301,5 2049,3 ± 441,5 1967,1 ± 540,8 2040,4 ± 458,7 0,697 Skammstafanir: n, fjöldi, % hlutfall. 3D-slög/mín/dag, meðalslög á mínútu á dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.