Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.02.2018, Side 31

Læknablaðið - 01.02.2018, Side 31
LÆKNAblaðið 2018/104 91 Má þar nefna í fyrsta lagi nauðsyn á samvinnu lækna til að hrinda heilbrigðismálum þjóðarinnar áleiðis og auka þekkingu á þeim, og í öðru lagi hagsmunamál læknastéttarinnar, bæði því að læknar geti staðið sem best í stöðu sinni og að þeir fái sómasam- leg laun fyrir starf sitt. Læknar lifi víða við svo aumleg kjör að vart megi lífvænlegt heita, svo aumleg að illmögulegt sé að fylgjast með í fræðigrein- inni og óvíst sé að Alþingi fáist til að bæta kjörin að nokkru ráði. Þetta myndi horfa öðru vísi við ef öll læknastéttin stæði sem einn maður. ■ ■ ■ Í grein sem Guðmundur ritar 1916 segir hann:5 „Vér þurfum að „o r g a n i s e r a“ læknastéttina hér á landi og síðan starfa samhentir bæði að ýmsum þjóðþrifum og hagsmuna- málum stéttar vorrar. Hvarvetna um heim eru læknar félagslyndir. Eg skil ekki að vér stöndum öllum öðrum að baki.“ Undirbúningi að stofnun íslensks læknafélags miðaði áfram og félagið var formlega stofnað á félagsfundi í Læknafélagi Reykja- víkur 14. janúar 1918. Á fyrsta aðalfundi Læknafélags Íslands 1919 lagði Guðmundur Hannesson, fyrsti formaður þess, til að Ásgeir Blöndal yrði gerð- ur að heiðursfélaga. Hann hefði fyrstur lagt til að læknar hér á landi mynduðu félagsskap með sér. Árið 1933, á 15 ára afmæli félagsins, var Guðmundur Hannes- son kosinn annar heiðursfélagi Læknafélags Íslands. Hann hvarf þá úr stjórn eftir samfellda 15 ára stjórnarsetu, þar af 10 ár sem formaður. ■ ■ ■ Á eftir verða 15 núverandi félagsmenn heiðraðir fyrir störf sín. ■ ■ ■ Árangursríkt félagsstarf byggir á þátttöku og virkni félagsmanna og líka á virðingu í samskiptum þeirra á milli. Það er mikilvægt að temja sér hófsemi í orði og framkomu. Að gleyma aldrei hver við erum og að til okkar er horft sem einstaklinga og sem hluta af ævafornri samheldinni stétt sem þekkt er fyrir að hafa frá örófi alda sett sér siðareglur og unnið læknaeiðinn. Góðir félagar. Siðareglur okkar, Codex ethicus, eru ekki úr lausu lofti gripnar. Hvort sem okkur líkar betur eða verr eigum við öll við meðfædda bresti mannsins að glíma og togstreita milli dyggða og lasta er eilíf barátta allt okkar líf. Ég er viss um að öll getum við litið í eigin barm og fundið orð sem betur hefðu verið ósögð, framkoma og atvik sem við iðrumst. Þá er mikilvægt að sú reynsla og þau orð verði okkur lærdómsrík. Okkar þroskaskref. Styðjum þá sem eiga um sárt að binda, en einnig þá sem hafa vikið af hinum beina vegi. Verum öðrum leiðarljós og sýnum hóf- semi og miskunnsemi í dómum okkar. ■ ■ ■ Það er ekki alltaf auðvelt að vera læknir. Að fylgjast með í erfið- um veikindum sjúklinga sinna, að styðja syrgjandi fjölskyldur, að vera kletturinn sem rís upp úr ölduróti sorgar og gleði á ögur- stundum í lífi samborgara okkar. Það reynir á lækna í samskipt- um sín á milli og við aðra. Þess sjást merki að það tekur sinn toll að vera læknir, bæði af heilsufari og fjölskyldulífi lækna. Þessu þurfum við að mæta sem einstaklingar og sem samheldin stétt. Það er okkar helsta núvitundar verkefni. Gleðistundir eru mikilvægar, næsta vika – Læknadagar, er okkar sólrisuhátíð. ■ ■ ■ Ég vil að lokum færa afmælisnefndum félagsins okkar, starfsfólki og félögum mínum í stjórn LÍ þakkir og þeim fjölmörgu félögum í okkar röðum og samstarfsaðilum sem lagt hafa hönd á plóginn til að gera 100 ára afmæli Læknafélags Íslands að stund gleðinnar og stund framtíðarinnar. Það er með auðmýkt og þakklæti sem ég stend hér og minnist þessara tímamóta. Megi gæfa og gleðiríkir dagar fylgja Læknafé- lagi Íslands og félagsmönum þess. Megi starfsemi félagsins verða landinu og læknum áfram til gagns og blessunar um ókomna tíð. Til hamingjum með daginn íslenskir læknar. Heimildir 1. Ísberg JÓ. Líf og lækningar, íslensk heilbrigðissaga. Reykjavík 2005: 47. 2. Hannesson G. Íslenskt læknfélag. Læknablaðið 1915; 1: 3. 3. Hanneson G. Íslensk læknafélög. Læknablaðið 1915; 1: 30. 4. Jónsson J. „Um læknafundi.“ Læknablaðið 1936; 22: 58. 5. Hannesson G. „Íslenskt læknafélag.“ Læknablaðið 1916; 2: 169-71. Forsetinn, Guðni Th. Jóhannes- son, mættur til leiks í Hörpu til að ávarpa hið hundrað ára gamla Læknafélag Íslands. Reynir Arn- grímsson formaður og Sólveig Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri bjóða hann velkominn.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.