Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.02.2018, Síða 44

Læknablaðið - 01.02.2018, Síða 44
104 LÆKNAblaðið 2018/104 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R Þessar stúlkur munu erfa landið og læknislistin verður í öruggum höndum þeirra í framtíðinni. Elísabet Reykdal Jóhannesdóttir húð- og kynsjúkdómalæknir og Kristín Huld Haraldsdóttir skurðlæknir. Sveinn Magnússon - ánægður með að vera heiðursfélagi í LÍ. slíkra tækja og verja meiri tíma með börnum sínum. Óhætt væri að setja reglur en boð og bönn væru þó líklega til þess eins að brjóta þau. Hádegisfundur um áhrif lakkrís á heilsu manna vakti áhuga margra og sama er að segja um oflækningar sem voru viðfangsefni mál- þings þar sem rætt var um ýmsar hliðar þessa vanda- máls hinna hátæknivæddu samfélaga. Birgir Jakobs- son landlæknir var meðal frummælenda og sagði að vísbendingar væru um of- lækningar í einkarekinni heilbrigðisþjónustu. Hann sagði ástæðurnar margþættar en greiðslukerfið hefði trú- lega haft þýðingu. Lokaorð hans voru þau að „Oflækn- ingar geta skaðað sjúklinga og taka „resúrsa“ frá öðrum mikilvægum sviðum einsog fyrirbyggjandi aðgerðum og lýðheilsustarfi.“ Að lokum má segja að dagskrá Læknadaganna hafi vakið verðskuldaða athygli fjölmiðla þar sem umfjöllun var á hverjum degi í einum eða fleiri miðli og segir Sól- veig Jóhannsdóttir að Lækna- dagarnir hafi sannarlega náð tilgangi sínum að vera í senn öflug fagráðstefna lækna- stéttarinnar og upplýsandi fyrir almenning um lýðheilsu og jafnframt að vekja athygli á mikilvægi læknisfræðinnar í nútímasamfélagi. Keppnisliðin voru tvö að vanda, og svöruðu af öryggi og festu eftir að tæknimál komust í lag og Kristján Guðmundsson byrjaði að dengja yfir þau spursmálum Jens Kristján Guðmundsson, Hróðmar Helgason og Gríma Huld Blængsdóttir. Lára Ósk Eggertsdóttir Claessen, Eyrún Baldursdóttir og Þórir Einarsson Long.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.